Morgunblaðið - 18.12.2005, Blaðsíða 50
50 SUNNUDAGUR 18. DESEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
Fréttir á SMS
Í KASTLJÓSI Ríkissjónvarps-
ins þriðjudaginn 6. desember síð-
astliðinn lét Viktor B. Kjartansson
stjórnarmaður í Flugkef (samtök
sem vilja flytja mið-
stöð innanlandsflugs-
ins til Keflavík-
urflugvallar) hafa
eftir sér:
„Sjúkraflugið eins
og við vitum nátt-
úrulega … þá eru allt
bráðaflug og bráða-
tilfelli eru í þyrlum
og það eru þyrlur
sem flytja alstaðar
þar sem verða slys og
bráð tilfelli. Þegar
verið er að flytja
sjúklinga á milli staða
í flugvélum, er það
venjulega vegna þess að þá er ver-
ið að flytja fólk á milli stofnana,
ekki vegna þess að það er í bráðri
lífshættu.“
Í ljósi ofangreindra ummæla
sem eru röng, vill undirritaður
koma nokkrum atriðum á fram-
færi í tengslum við sjúkraflug á
Íslandi, til að fyrirbyggja frekari
rangfærslur.
Frá því vorið 2002 hefur verið
starfandi læknavakt á Fjórðungs-
sjúkrahúsinu á Akureyri sem
mannað hefur öll sjúkraflug sem
þarfnast læknisfylgdar á svoköll-
uðu Norðursvæði sem nær frá
Höfn í Hornafirði til Hrútafjarðar
auk austurstrandar Grænlands.
Fjórðungssjúkrahúsið á Ak-
ureyri, Slökkvilið Akureyrar og
Flugfélag Íslands hafa haft sam-
starf um sjúkraflugið á þessum
tíma með mjög góðum árangri, en
á þessum tíma hafa yfir þúsund
sjúklingar verið fluttir með
sjúkraflugi.
Yfir 600 einstaklingar hafa verið
fluttir til Reykjavíkur um Reykja-
víkurflugvöll á þessum þremur ár-
um, nokkuð stór hluti þessara
sjúklinga hefur verið í alvarlegu
eða lífshættulegu ástandi.
Nokkrum sinnum hafa sjúkling-
ar farið í hjartastopp í flutningi …
Nokkrum sinnum hafa ein-
staklingar verið með lífshættulega
skotáverka …
Fjöldamargir hafa verið með al-
varlega hrygg- eða mænu-
áverka …
Fjöldamörgum hefur verið hald-
ið sofandi í öndunarvél á flugi
vegna alvarlegra heilablæðinga
eða höfuðáverka …
Nýbura og fyr-
irbura hefur þurft að
flytja í mjög alvarlegu
ástandi á milli stofn-
ana …
Konur í hótandi
fyrirburafæðingum
hefur þurft að flytja
til Reykjavíkur til að
tryggja sérhæfða
meðferð fyrirburans
en þarna geta mín-
úturnar skipt miklu
máli …
Gjörgæslusjúklinga
hefur þurft að flytja
margoft á milli stofnana …
Hjartaþræðingar eru eingöngu
framkvæmdar á LSH við Hring-
braut, en þar er rekin sólarhrings-
vakt fyrir bráðahjartaþræðingar.
Sýnt þykir í dag að hjartaþræðing
sé besta mögulega meðferð við
bráðu hjartadrepi en þó innan
ákveðinna tímamarka eigi við-
unandi ávinningur að nást. Flutn-
ingstíminn ræður því miklu um
endanlega útkomu sjúklinga og
seinkun getur haft alvarlegar af-
leiðingar í för með sér …
Sjúkraflugið hefur þýtt aukið
öryggi fyrir íbúa Norðursvæðisins,
sjúklingar fá fyrr sérhæfðari að-
stoð, greiðari flutning á næsta
sjúkrahús og læknar þurfa ekki að
skilja héruð sín eftir læknislaus.
Í umræðu um sjúkraflug á Ís-
landi undanfarið hefur endurtekið
verið ruglað saman almennu
sjúkraflugi og leitar- og björg-
unarflugi. Miðstöð leitar- og
björgunarflugs á Íslandi er í
Reykjavík og eru þyrlur Land-
helgisgæslunnar hornsteinninn í
þeirri góðu þjónustu. Miðstöð
sjúkraflugs á Íslandi er hinsvegar
á Akureyri af augljósri miðlægri
landfræðilegri staðsetningu m.t.t.
alls landsins. Hornsteinn þeirrar
starfsemi hefur verið flugvélar
sem geta farið hraðar yfir og flog-
ið við erfið veðurskilyrði auk
þeirra aðila sem komið hafa að
sjálfum rekstri sjúkraflugsins.
Sérstaklega þarf að taka fram
að þyrlur eru ekki álitlegur kostur
fyrir almennt sjúkraflug vegna
tímataps og hæðatakmarkana,
þær fara hægar yfir og eru ekki
búnar jafnþrýstibúnaði. Ástand
sjúklinga er stundum svo alvarlegt
að það leyfir ekki flutning loftleið-
ina nema í jafnþrýstibúnum flug-
vélum. Arngrímur Jóhannsson,
flugstjóri og fyrrverandi forstjóri
Atlanta, fór vel yfir þessar stað-
reyndir í sama sjónvarpsþætti.
Svör Viktors bera með sér
mikla vanþekkingu á umsvifum og
mikilvægi sjúkraflugs á Íslandi.
Þrátt fyrir endurtekin greinaskrif
ýmissa aðila, m.a. undirritaðs, á
síðustu mánuðum um starfsemi
sjúkraflugsins á Íslandi.
Best væri auðvitað að menn sem
ekki hafa næga þekkingu á því
sem þeir eru að tala um, tjái sig
sem minnst um slík mál í fjöl-
miðlum, til að ala ekki ennþá frek-
ar á röngum hugmyndum eða mis-
skilningi.
Á sama tíma eru ummæli hans
móðgun við það heilbrigðisstarfs-
fólk sem kemur að starfsemi
sjúkraflugs á Íslandi og þá ein-
staklinga sem eiga líf sitt og
heilsu sjúkrafluginu að þakka á
liðnum árum.
Það er hreint ótrúlegt að á með-
an Suðurnesjamenn eru að berjast
fyrir því að halda úti sólarhrings-
vakt á skurðstofum Heilbrigð-
isstofnunar Suðurnesja vegna of
mikillar fjarlægðar frá Reykjavík,
skuli sumir þeirra halda því fram
að lenging á flutningstíma sjúk-
linga myndi engu breyta færi allt
sjúkraflug um Keflavíkurflugvöll.
Sjúkraflug á Íslandi í flugvélum
er löngu búið að sanna mikilvægi
sitt og staðsetning Reykjavík-
urflugvallar skiptir þar miklu. Það
er því sorgleg staðreynd að vegna
pólitísks fjaðrafoks í Reykjavík og
hagsmunapots á Suðurnesjum sé
endurtekið verið að vega að jafn-
mikilvægum þætti í heilbrigð-
isþjónustu landsbyggðarinnar.
Rangfærslur um
sjúkraflug á Íslandi
Theódór Skúli Sigurðsson
fjallar um Reykjavíkurflugvöll
og sjúkraflug ’Sjúkraflug á Íslandi íflugvélum er löngu búið
að sanna mikilvægi sitt
og staðsetning Reykja-
víkurflugvallar skiptir
þar miklu.‘
Theódór Skúli
Sigurðsson
Höfundur er umsjónarlæknir
sjúkraflugs Fjórðungssjúkrahússins
á Akureyri.
Fréttir í tölvupósti
Íbúðir
Mjög gott 131 fm raðhús á tveimur hæðum auk rislofts í Grafarvogi. Á neðri hæð er for-
stofa, hol, gestasalerni, þvottaherbergi með hillum, eldhús með góðri borðaðstöðu,
parketlögð stofa og borðstofa. Uppi eru þrjú herbergi, öll með skápum og flísalagt bað-
herbergi auk rislofts sem nýtt er sem herbergi í dag. Tengt fyrir sjónvarpi í öllum her-
bergjum. Gengið í ræktaðan suðurgarð úr stofu. Verð 30,9 millj.
HÚSIÐ VERÐUR TIL SÝNIS Í DAG, SUNNUDAG, FRÁ KL. 14-15
VERIÐ VELKOMIN
FASTEIGNA-
MARKAÐURINN
ÓÐINSGÖTU 4, SÍMI 570 4500, FAX 570 4505. OPIÐ VIRKA DAGA KL. 9–17.
Netfang: fastmark@fastmark.is - Heimasíða: http://www.fastmark.is/.
Jón Guðmundsson, sölustjóri og lögg. fasteigna- og skipasali.
Fífurimi 24
Tvílyft raðhús
Opið hús í dag frá kl. 14-15
Aðalþing - Raðhúsalóðir
með útsýni yfir Elliðavatn
Til sölu glæsilegar útsýnislóðir undir fjögur raðhús við
Aðalþing upp við Elliðavatn. Gert er ráð fyrir tveggja hæða
húsum með hámarks leyfilegum grunnfleti hvers húss
132m2. Samtals 264m2 með innbyggðum bílskúr.
Nánari upplýsingar á skrifstofu FM sími 550-3000 eða
eftir lokun skiptiborðs Hinrik 893-4191.150080
ÞORRAGATA - GLÆSILEGT ÚTSÝNI
Falleg og vönduð 131 fm íbúð á 2. hæð í eftirsóttu húsi. Íbúðin
skiptist þannig: stór stofa og borðstofa, eldhús, baðherbergi,
þvottahús, tvö svefnherbergi og forstofa. Yfirbyggðar svalir að
hluta. Stæði fyrir tvö bíla í opnu bílskýli fylgir. Sér geymsla fylgir í
kjallara. Sameiginlegt útigeymsla. Um er að ræða íbúð fyrir eldri
borgara. Glæsileg sjávarútsýni er úr stofu. 5521
Höfum til sölu sumarbústað innan þjóðgarðs Þingvalla ásamt gestahúsi.
Bústaðurinn liggur alveg að vatninu á fallegri gróinni lóð með stórkostlegu
útsýni yfir vatnið og fjallahringinn. 3.000 fm leigulóð.
Allar nánari upplýsingar veittar á skrifstofu.
FASTEIGNA-
MARKAÐURINN
ÓÐINSGÖTU 4, SÍMI 570 4500, FAX 570 4505. OPIÐ VIRKA DAGA KL. 9–17.
Netfang: fastmark@fastmark.is - Heimasíða: http://www.fastmark.is/.
Jón Guðmundsson, sölustjóri og lögg. fasteigna- og skipasali.
Glæsilegur sumarbústaður
í þjóðgarðinum, Þingvöllum