Morgunblaðið - 18.12.2005, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 18.12.2005, Blaðsíða 46
46 SUNNUDAGUR 18. DESEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN NÝLEGA yfirstaðin kynning á ís- lenskri list í Köln gefur tilefni til hugleiðinga um vissa hugarfarslega þætti menningartengsla Þýskalands og Íslands. Samband þessara tveggja landa hefur löngum verið sérstakt. Fyrir utan Norðurlandabúa eru Þjóðverjar þeir ná- grannar okkar í Evr- ópu sem mestan áhuga og þekkingu hafa á Ís- landi. Þrátt fyrir hug- myndafræðilega mis- notkun nasista á nor- rænum goðsagnaarfi hefur Ísland haldið áfram að heilla marga Þjóðverja. En hug- myndin um Ísland hefur breyst. Áherslan hefur færst frá sagnaarf- inum yfir á náttúru Íslands. Þetta gerist á sama tíma og Þjóðverjar hafa að miklu leyti glatað náttúru síns eigin lands. Óvíða er jafn mikil umræða um umhverfismál og nátt- úruvernd eins og í Þýskalandi. Í huga margra Þjóðverja er Ísland eitt örfárra landa sem hafa sloppið við afleiðingar efnaiðnaðar og rask á vistkerfi sem þýsk náttúra líður fyrir. Ef litið er til þýskrar fjölmiðla- umfjöllunar um Ísland eru íslensk þjóðareinkenni iðulega sett í sam- hengi við villta og ósnortna náttúru landsins. Í móðurlandi rök- og tæknivæðingar nútímans þar sem „dulmagnið“ er horfið, eins og þýski félagsfræðingurinn Max Weber komst að orði fyrir tæpri öld, þykir eyjan í Norðurhafi, þar sem fólk trúir á álfa og tröll, afskaplega for- vitnileg. Þarna lifir þjóðtrú sem Þjóð- verjar þekkja varla lengur af eigin raun. Íslendingar birtast þýskum blaðamönnum, ef dæma má ýmsar blaðagreinar og sjón- varpsþætti um Ísland, sem hálfgerðir álfar. Svo virðist sem margir þýskir blaðamenn leiti eftir náttúrubarninu í íslenskum viðmæl- endum sínum, og grafi hér upp allt sem er skrýtið og sér- viskulegt. Íslendingar gangast iðu- lega upp í þessu hlutverki og halda sjálfir á lofti ímyndinni um eins- konar nútímalega náttúruálfa. Ástæðan fyrir því hve margir Þjóð- verjar einblína á þessa þætti í ímynd Íslands hlýtur að vera sú að landið er þeim griðastaður fyrir hreina náttúru, þjóðtrú og skemmti- lega óstýriláta manngerð sem þrífst vart lengur í þeirra eigin þéttbýla, iðnvædda, staðlaða, niðurnjörvaða og náttúrunídda landi. Einn íslensku listamannanna sem sýndi verk sín á listkynningunni í Köln, Ósk Vilhjálmsdóttir, stóð þar fyrir gerningi sem var eins og ör sem miðaði í hjarta hinnar rómant- íseruðu myndar af Íslandi. Ósk mál- aði eftirfarandi texta á þýsku eld- rauðum stöfum á vegg í sýningarrýminu: „Í Skítlandi er allt að fara í skít. Skítþjóðverjarnir elska Skítland. Þeir halda að Skítlendingarnir lifi í sátt við náttúruna. Skítþjóðverj- arnir sjá skítálf eða skíttröll í hverj- um einasta Skítlendingi. Á hálendi Skítlands mun verða til risastórt skítlón svo að amerískt skítfyrirtæki geti keypt ódýra skít- orku til þess að reka stóra skítál- bræðslu. Þetta risavaxna skítverk- efni mun eyðileggja hálendi Skítlands. Skítlendingarnir halda að þeir muni græða fullt af skítpen- ingum. Nú hafa skítþýskir listasafn- stjórar sett upp sýningu á skítlist frá Skítlandi.“ Augljóslega passar þessi mynd af Skítlandinu ekki við ímyndina af hinu hreina Íslandi. Með verki sínu vill Ósk draga fram þann tvískinn- ungshátt sem er að finna bæði í þýskri og íslenskri afstöðu til nátt- úrunnar. Ísland er markaðssett sem land hinnar hreinu og ósnortnu náttúru á sama tíma og hálendið er lagt undir tröllauknar stíflur og stóriðjuvæðing er í fullum gangi. Verk Óskar snertir líka annað mál. Það hefur verið merkilega hljótt um Kárahnjúkavirkjun í þýskum fjölmiðlum. Það hefði mátt ætla að hinir umhverfismeðvituðu þýsku fjölmiðlamenn hefðu aldeilis gert þessu máli skil, enda er Kára- hnjúkavirkjun á svörtum lista World Wildlife Fund yfir nýjar virkjanir sem valda óverjandi um- hverfisspjöllum. Hvernig stendur á þessari sérkennilegu þögn? Hvers vegna sýna þýskir Íslandsvinir ekki ást sína í verki? Kann ein ástæðan að vera sú að umhverfisspjöllin á hálendinu ógni draumsýninni um hina hreinu og óspjölluðu náttúru landsins? Er þessi draumsýn kannski Þjóðverjum nauðsynleg til þess að komast af í sínu eigin landi? Þegar náttúran heima fyrir er „í skít“ er gott að eiga sér draumaland hreinnar náttúru annars staðar. Vart þarf að geta þess að það fór hljótt um þetta verk Óskar í fjöl- miðlaumfjöllun um Íslandskynn- inguna. Það hefur komið óþægilega við þá sem næra staðalhugmyndir og þá sem nærast á klisjum um Ís- land. En list stendur ekki undir nafni ef hún hættir að ögra. Að einu leyti tók Íslandskynn- ingin í Köln fram hinni stóru og 50 milljóna króna dýru kynningu á ís- lenskri menningu og list sem fram fór í París fyrir ári: Landsvirkjun var ekki kölluð til, en fyrirtækið var á menningarkynningunni í París með yfirgripsmikla og glæsta sýn- ingu á hinni „hreinu, endurnýj- anlegu, íslensku orku“. Lands- virkjun hefur á undanförnum árum eytt hundruðum milljóna króna í boðun virkjana- og stóriðjustefnu. Til að fegra ímynd sína hefur fyr- irtækið m.a. styrkt fjölda lista- manna sem sýna verk sín m.a. í virkjunum fyrirtækisins. Hið hug- rakka verk Óskar, „Skítland“, er ekki síst sett til höfuðs þeim lygum sem Landsvirkjun og íslensk stjórn- völd boða með goðsögninni um að orkan sem verður framleidd í Kára- hnjúkavirkjun sé „hrein og end- urnýjanleg“. Klisjur og draum- sýnir um Ísland Sigríður Þorgeirsdóttir fjallar um sýningu íslenskra listamanna í Köln ’… list stendur ekkiundir nafni ef hún hætt- ir að ögra.‘ Sigríður Þorgeirsdóttir Höfundur er heimspekingur. „Með verki sínu vill Ósk draga fram þann tvískinnungshátt sem er að finna bæði í þýskri og íslenskri afstöðu til náttúrunnar.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.