Fréttablaðið - 28.05.2004, Qupperneq 18
Menntamálaráðherra vill aðfrumvarp um endurskipulagn-
ingu Ríkisútvarpsins verði lagt
fram fyrir upphaf næsta þings.
Undirbúningsvinna að frumvarpinu
er þegar hafin og nefnd sem mun
vinna að endurskilgreiningu hlut-
verks RÚV mun taka til starfa á
næstunni og skila skýrslu og frum-
varpi í lok sumars.
„Markmiðið er að skapa skilvirk-
ari og skarpari stefnu um RÚV svo
meiri sátt náist um hlutverk stofn-
unarinnar. Ég vil að fyrirkomulag
afnotagjalda verði endurskoðað og
að stjórnskipulag Ríkisútvarpsins
verði stokkað upp þannig að það
verði einfaldara, skýrara og
skarpara,“ segir Þorgerður Katrín
Gunnarsdóttir menntamálaráð-
herra.
Hún segist ekki útiloka að af-
notagjöld verði afnumin og segist
munu skoða aðrar fjármögnunar-
leiðir, svo sem nefskatt eða gjöld
sem tengjast fasteignagrunninum.
Þorgerður Katrín gerir enn frem-
ur ráð fyrir verulegri breytingu á
hlutverki útvarpsráðs og segir ekki
útilokað að íhlutun stjórnmálaflokka
í útvarpsráði verði afnumin.
Þörf á algjörri endur-
skipulagningu
Sérfræðingar í fjölmiðlalögum
og Evrópurétti sem Fréttablaðið
ræddi við segja að þörf sé á algjörri
endurskipulagningu Ríkisútvarps-
ins ef það eigi að falla að nýjum
reglum Eftirlitsstofnunar EFTA,
ESA, um ríkisstyrki til almennings-
útvarps. Skilgreina þurfi hlutverk
almenningsútvarps frá grunni.
Samkvæmt heimildum Fréttablaðs-
ins hafa sérfræðingar á sviði
Evrópulaga, almannaútvarps og
ríkisstyrkja ítrekað lagt það fram
við yfirvöld, allt frá árinu 1991, að
skilgreina þurfi skyldur RÚV, en ís-
lensk stjórnvöld hafi verið treg til
þess fram að þessu.
Í byrjun mánaðarins sendi ESA
íslenskum stjórnvöldum formlega
beiðni um upplýsingar um starf-
semi og skyldur RÚV. Auk þess var
óskað eftir upplýsingum um hvern-
ig fjármögnun stofnunarinnar væri
háttað. Í kjölfarið hafa fjármálaráð-
herra, Geir H. Haarde, og mennta-
málaráðherra, Þorgerður Katrín
Gunnarsdóttir, tjáð sig á opinberum
vettvangi um fyrirætlanir ríkis-
stjórnarinnar um væntanlega
endurskipulagningu RÚV.
Fjármálaráðherra boðar
nýtt fjölmiðlaumhverfi
Geir H. Haarde fjármálaráðherra
sagði á eldhúsdagsumræðum á Al-
þingi fyrr í vikunni að allt frá því að
útvarpsrekstur var gefinn frjáls hafi
ekki tekist að búa rekstri óháðra fjöl-
miðla þannig umhverfi að bæði hann
og Ríkisútvarpið fái þrifist og dafn-
að saman með eðlilegum hætti.
„Næsta verkefni á þessu sviði
hlýtur að vera að skilgreina þetta
umhverfi upp á nýtt. Gera verður
Ríkisútvarpinu kleift að standa
hallalaust undir skyldum sínum,
sem jafnframt verður að endurskil-
greina og draga úr,“ sagði Geir.
Aðspurð sagði Þorgerður Katrín
að áform ríkisstjórnarinnar um
endurskipulagningu RÚV tengdust
ekki því að fyrirkomulag stofnun-
arinnar væri nú til skoðunar hjá
ESA.
„Þegar að því kemur hljótum við
þó að taka mið af tilmælum ESA til
okkar og þess vegna er svo mikil-
vægt að við tökum á rekstrarfyrir-
komulagi ríkisútvarpsins núna,“
segir hún.
Amund Utne, yfirmaður ríkis-
styrkjanefndar ESA, sagði í samtali
við Fréttablaðið að skortur á skil-
greiningu á hlutverki RÚV gæti ef
til vill reynst vandamál. Aðspurð
um það segir Þorgerður Katrín að
rökstuðningur ríkisins gegn því
verði sá að nú sé einmitt hafin vinna
við að skilgreinina hlutverk ríkis-
útvarpsins betur. „Sú vinna kemur
til með að hjálpa okkar málsmeð-
ferð gagnvart ESA,“ segir hún.
Hlutverk RÚV skilgreint í
lögum
Bjarni Guðmundsson, fram-
kvæmdastjóri Sjónvarpsins segir
að skilgreining á hlutverki RÚV
megi finna í lögum um Ríkis-
útvarpið.
„Ríkisútvarpið starfar sam-
kvæmt lögum sem um það gilda. Í
þeim segir meðal annars að Ríkis-
útvarpið skuli veita almenna
fréttaþjónustu og vera vettvangur
fyrir mismunandi skoðanir á þeim
málum sem efst eru á baugi hverju
sinni eða almenning varða. Því er
ætlað að flytja fjölbreytt skemmti-
efni við hæfi fólks á öllum aldri,“
segir hann.
Sérstaklega skuli þess gætt að
hafa á boðstólum fjölbreytt efni
við hæfi barna, jafnt í hljóðvarpi
og sjónvarpi.
„Ríkisútvarpinu er einnig ætlað
að flytja efni meðal annars á sviði
lista og bókmennta, vísinda og sögu
auk tónlistar. Það skal auk þess
veita almenna fræðslu,“ segir
Bjarni.
Sérfræðingar í fjölmiðlarétti og
Evrópulögum sögðu við Fréttablað-
ið að til þess að RÚV stæðist við-
18 28. maí 2004 FÖSTUDAGUR
BEÐIÐ Á MÓTMÆLUM
Íraskir múslimar tóku þátt í hádegisbæn-
unum fyrir utan Abu Ghraib fangelsið í út-
jaðri Bagdad. Þar voru þeir að mótmæla
misþyrmingum bandarískra hermanna á
íröskum föngum í fangelsinu.
Bílastæðasjóður breytir til:
Sektir skilvísra lækka
BÍLASTÆÐASJÓÐUR Þeir sem greiða
stöðumælasektir sínar innan
þriggja daga frá útgáfu þeirra fá
550 króna staðgreiðsluafslátt sam-
kvæmt breytingum Bílastæða-
sjóðs sem hafa þegar tekið gildi.
Sé sektin greidd innan þriggja
daga lækkar hún í 950 krónur í
stað 1.500. Aftur á móti hækka
sektir hinna skuldseigu eftir því
sem lengri tími líður. Hafi sektin
ekki verið greidd innan fjórtán
daga hækkar hún um 50 prósent
eins og áður og verður 2.250 krón-
ur. Hafi skuldin enn ekki verið
greidd eftir 28 daga hækkar hún
um aðrar 750 krónur og verður þá
orðin 3.000 krónur. Ferill annarra
stöðubrotagjalda verður eins.
Með þessu vonast Bílastæða-
sjóður til að koma til móts við
hagsmunaaðila um lækkun
stöðvunarbrotagjalda, en þau
hækkuðu mikið með breytingum
árið 2000. Með þessu móti er
þeim umbunað sem greiða sektir
sínar fljótt og vel. Sjóðurinn von-
ast til að geta staðið undir bygg-
ingaráformum sínum, þrátt fyrir
breytingarnar. ■
Gjörbylting á
Ríkisútvarpinu
Stefnt er að því að leggja fram frumvarp um endurskipulagningu Ríkisútvarpsins fyrir upphaf
næsta þings. Menntamálaráðherra vill afnema afnotagjöld og gjörbreyta stjórnskipulagi. Út-
varpsráð verði ekki lengur pólitískt kjörið og hlutverk þess breytist.
Tekinn af lífi:
Myrti til
að deyja
FLÓRÍDA, AP Nær fimmtugur karl-
maður var tekinn af lífi í Flórída
og fékk þannig ósk sína uppfyllta.
John Blackwelder var dæmdur
í lífstíðarfangelsi fyrir ítrekuð
kynferðisbrot gegn ungmennum.
Meðan hann sat inni myrti hann
annan fanga, sem sat inni fyrir
morð, og kvaðst hafa gert það til
að yfirvöld neyddust til að taka
sig af lífi. Hann sagðist ekki geta
hugsað sér að sitja í fangelsi það
sem eftir væri ævinnar og því
vildi hann deyja. Þar sem hann
vildi ekki fremja sjálfsmorð
ákvað hann að fremja morð til að
vera dæmdur til dauða. ■
SLÖKKVILIÐSMENN VIÐ ÆFINGU Á
BÆNUM BALA Á LANGEYRI
Slökkviliðið æfði reykköfun og kæfingu
elds og gekk æfingin ljómandi vel.
Æfing slökkviliðsins:
Kveiktu í
bænum Bala
SLÖKKVILIÐIÐ Slökkviliðið í Reykja-
vík æfði reykköfun og kæfingu
elds á gömlum bæ, Bala, upp af
Langeyri í Hafnarfirði í gær. Að
sögn Jóns Friðriks, sviðsstjóra
hjá slökkviliðinu, var búist við að
húsið myndi brenna á mun
skemmri tíma en það gerði vegna
eldfims efnis í einangrun þess.
Voru slökkviliðsmenn því að von-
um ánægðir því fyrir vikið fengu
þeir mun lengri tíma í æfingar.
Náðu þeir að senda fjóra menn inn
í reykkafanir og má því segja að
þeir hafi nýtt tímann vel. ■
GANDHI OG SINGH
Sonia Gandhi og Manmohan Singh voru
við minningarathöfn um fyrsta forsætisráð-
herrann sem lést fyrir 40 árum.
Takmörk á einkavæðingu:
Mjólkurkýr
ekki seldar
NÝJA-DELÍ, AP Ríkisfyrirtæki sem
eru rekin með hagnaði verða ekki
einkavædd í tíma nýrrar ríkis-
stjórnar Indlands. Þetta kemur
fram í stefnuskjali stjórnarinnar
sem birt var í gær. Þar segir
einnig að stjórnvöld ætli að greiða
fyrir erlenda fjárfestingu og lofa
að hagvöxtur verði sjö til átta
prósent á ári næsta áratuginn.
Manmohan Singh, nýi forsætis-
ráðherrann, segist einnig ætla að
tryggja réttindi verkamanna og
bænda auk þess að halda áfram
stuðningi við fátæklinga.
Markaðir brugðust illa við tíð-
indunum og lækkuðu verð þegar
spurðist út hverju stjórnin stefndi
að. ■
SIGRÍÐUR D. AUÐUNSDÓTTIR
BLAÐAMAÐUR
FRÉTTASKÝRING
ENDURSKIPULAGNING RÍK-
ISÚTVARPSINS
STÖÐUMÆLAVÖRÐUR VIÐ STÖRF
Bílastæðasjóður vill koma til móts við
hagsmunaaðila með breytingunum.