Fréttablaðið - 28.05.2004, Blaðsíða 58

Fréttablaðið - 28.05.2004, Blaðsíða 58
Sumarið er komið eins og myndin ber með sér. Veðurspá er góð um hvítasunnuhelgina og margir eiga eflaust eftir að njóta veðurblíðunnar. SJÓNARHORN Ásgeir Kolbeinsson, sjónvarpsmaður á Popptíví og útvarpsmaður á rásinni FM95,7, er nýkom- inn frá Cannes þar sem hann var að skoða sig um á kvikmyndahátíðinni á vegum vinnunnar. Þar sem hann missti nokkra daga úr á Klakan- um þá hrannast verkefnin upp og hann er á kafi í vinnu þannig að hann tók því fegins hendi að láta sér detta í hug mjög afslappandi draumahelgi. FÖSTUDAGSKVÖLD Ég væri búinn að vinna á fullu allan daginn, bæði í sjónvarpsþáttunum á Popptíví og vera í útsendingum á FM 95,7 þannig að ég myndi reyna að láta mig hverfa strax eftir vinnu upp í sumarbústað á einhvern fallegan stað upp í sveit, eins og í Úthlíð í Árnessýslu. Þar myndi ég koma mér vel fyrir, slökkva á síma og sjónvarpi og reyna að láta ekkert trufla mig heldur eyða kvöldinu með fjölskyldu og vinum. LAUGARDAGUR Ég myndi sofa út og vakna endurnærður í sól og blíðu og laus við alla streitu og hávaðann í borginni. Ég myndi fá mér eitthvað gott í morgunmat og fara svo í göngutúr og rölta um svæðið í Úthlíð sem er svo einstaklega fallegt. Ég myndi kannski ekki leggja í neinar fjallgöngur heldur taka því rólega og njóta lífsins almennilega undir berum himni. LAUGARDAGSKVÖLD Um kvöldið myndi ég svo borða góðan mat og drekka gott vín með og virkilega njóta kyrrðarinnar. Eftir matinn myndi ég kannski aðeins leggja mig og síðan skella mér beint í heita pottinn og virkilega setja tærnar upp í loftið. Kvöldið yrði svo kórón- að með góðum nætursvefni í sveitasælunni. SUNNUDAGUR Nú fer að líða að brottför og þá þarf að taka saman farangurinn og huga að heimför. Ég er fljótur að pakka og reyni að nýta daginn sem best í að skoða meira af svæðinu og setjast svo að snæðingi með vinum og fjöl- skyldu. Síðan yrði keyrt í bæinn og farið snem- ma upp í rúm með góða bók og hnýtt enda- hnútinn á hvíldina fyrir annasama vinnuviku. VERULEIKINN Á föstudagskvöldið kem ég örugglega seint heim úr vinnu og enda með því að sofna þar sem líklegt er að ég þurfi að vinna báða dagana. Ég ætla að reyna að vinna mikið fram í tímann af þáttum bæði fyrir Popptíví og FM95,7 og þá kemst ég ef til vill í sumarfrí í september. Með mikilli heppni gæti verið að draumahelgin mín yrði að veruleika, allavega að hluta til. ■ ÁSGEIR KOLBEINSSON VISSIR ÞÚ ... ...að tæplega 110.000 kílómetrar af símalínum eru í Pentagon-bygging- unni í Arlington í Virginíuríki í Bandaríkjunum? ...að fyrsta hlustunarpípan, sem var fundin upp árið 1816, var búin til úr pappírsrúllu? ...að rétt nafn töframannsins Harry Houdini var Erich Weiss? ...að pýramídarnir í Egyptalandi eru gerðir úr það miklum steini að hægt væri að byggja úr þeim vegg sem væri rúmlega þriggja metra hár og tæplega tveggja metra þykkur sem næði frá New York til Los Angeles? ...að klósett endast að meðaltali í fimmtíu ár? ...að Reykjavík er líklegast snyrti- legasta borg í heimi? ...að það að strjúka einhverjum um kinn þýðir að hann sé aðlaðandi í Grikklandi, Ítalíu og Spáni en í Króa- tíu og Bosníu þýðir það að sá hinn sami nýtur velgengni? ...að engir tveir köngulóarvefir eru eins? ...að bráðnandi ís notar næstum því eins mikla orku í að breytast í fljót- andi vatn eins og þarf til að fá fros- ið vatn til að sjóða? ...að þegar orka er notuð þá hverfur hún ekki heldur fer hún einfaldlega eitthvað annað eða er breytt í ann- að form? ...að eina virka demantanáman í Bandaríkjunum er í Arkansas? ...að 97 prósent af koffíni verður að fjarlægja úr kaffi svo það geti heitið koffínlaust? DRAUMAHELGIN 28. maí 2004 FÖSTUDAGUR12 FR ÉT TA B LA Ð IÐ /S TE FÁ N FR ÉT TA B LA Ð IÐ /G VA
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.