Fréttablaðið - 28.05.2004, Qupperneq 66
30 28. maí 2004 FÖSTUDAGUR
Eftir Patrick McDonnell
■ PONDUS
■ ROCKY
■ KJÖLTURAKKAR
■ BARNALÁN
■ PÚ OG PA Eftir SÖB
Eftir Kirkman/Scott
Eftir Martin Kellerman
Eftir Frode Överli
Ég náði þeim merka áfanga að
verða 28 ára í síðustu viku. Fyrir
mér voru þetta merkari tímamót
en að verða tvítugur og ég er
nokkuð viss um að ég fái minna í
magann þegar ég fagna þrítugs-
afmæli mínu eftir tvö ár. Ástæð-
an er einföld, ég féll á rokkara-
prófinu!
Alla mína ævi hef ég lifað með
þeirri rokkgoðsögn að allir al-
vöru rokkarar deyi 27 ára gaml-
ir. Að minnsta kosti létust Brian
Jones, gítarleikari The Rolling
Stones, Jim Morrison úr The
Doors, Jimi Hendrix, Janis
Joplin, Kurt Cobain og Tim
Buckley (pabbi Jeff) öll á þess-
um aldri. Þar sem ég smitaðist af
rokkinu ungur að aldri eyddi ég
heilu ári í ótta. Í fyrra varð ég
líka sérstaklega skelkaður á
miðju stöðuvatni í Svíþjóð þegar
ég áttaði mig á því að seta mín
við tölvuskjáinn í vinnunni hefur
ekki beint aukið þolið. Með bakk-
ann í sjónmáli, og kærustuna
veifandi skælbrosandi til mín,
fann ég að ég hafði ekki þrek í
það að taka annað sundspor. Ein-
hvern veginn náði ég að pína mig
í land, og lifði til þess að segja
ykkur þessa mögnuðu sögu.
En hvað þýðir það þá? Er ég þá
ekki alvöru rokkari? Dæmdur til
þess að hætta í rokkinu og vera
bréfaklemma með vöðvabólgu á
skrifstofunni það sem eftir er?
Ég rannsakaði málið og fylltist
létti þegar ég sá að það eru miklu
fleiri stjörnur sem hafa dáið á
öðrum aldri. Til dæmis 2Pac (25
ára), Notorious B.I.G. (25 ára),
John Bonham, trommari Led
Zeppelin (32 ára), James Dean (24
ára), Aaliyah (22 ára), Jeff
Buckley (30 ára), Karen Carpent-
er (33 ára), Nick Drake (26 ára),
Elliott Smith (34 ára), Bob Marley
(36 ára), Bruce Lee (33 ára), Lisa
„Left Eye“ Lopez (32 ára), Buddy
Holly (23 ára) og Ritchie Valens
(18 ára). Þannig að maður er bara
sloppinn ... eða hvað? ■
STUÐ MILLI STRÍÐA
BIRGIR ÖRN STEINARSSON KOMST AÐ ÞVÍ Í SÍÐUSTU VIKU AÐ HANN ER LÍKLEGAST EKKI ALVÖRU ROKKARI.
■ Ég er bréfaklemma!
Vinningar verða afhendir hjá BT Skeifunni. Reykjavík.99 kr/skeytið. Með því að taka þátt ertu kominn í SMS klúbb
Sendu SMS skeytið JA POPP á númerið 1900 & þú gætir farið á tónleikana.
Við sendum þér spurningu sem þú svarar með SMS skeyti JA A, B eða C á númerið 1900.
Við sendum þér STRAX til baka númer hvað þú ert og hvort þú hafir unnið eða ekki.
Í boði er : MiðaR á P!nk tónleikana • Geisladiskar með P!NK.Varningur með P!NK
& fullt af DVD,VHS og CD’s frá BT & Margt margt fleira.
Miðasala er í Skífunni og hjá BT Akureyri og Egilsstöðum!
Pólyfóntónar
Lag/ FLYTJANDI Kóði
Trouble / P!nk 452
Feel Good Time / P!nk 453
Don't let me get.. / P!nk 454
Get the Party Started / P!nk 455
Family Portrait / P!nk 456
You make me sick / P!nk 457
Most Girls / P!nk 458
God is a DJ / P!nk 459
Just Like A Pill / P!nk 460
GSM TóNAR Með P!nk
Hringitónar
Lag/ FLYTJANDI Kóði
Dont let me get me/ P!nk 10163
Family Portrait / P!nk 13692
Feel Good Time/ P!nk 13802
Just Like A Pill / P!nk 13163
Family Portrait / P!nk 21652
Feel Good Time / P!nk 21740
Trouble / P!nk 21830
Leiðbeiningar Pólýfónótnar
1.Þú pantar fjöltón, með því að senda "BTC PT kóði" á
símanúmerið 1900. t.d.BTC PT 413
2. Þú færð bókamerki (e. Bookmark) og velur þá "Sýna" (e. View).
3. Veldu nú "Valkostir" og "Vista" (e. Options og Save)
4. Veldu bókamerkið sem þú vistaðir með því að velja "Valkostir" og "Fara til" (e. Options
og Go to).
5. Þá birtist "Smelltu hér til að hlaða niður fjöltón", veldu það. Hinkraðu augnablik.
6. Nú birtast "Hringitónn móttekinn" (e. Ringtone received). Veldu "Vista" (e. save) undir
því nafni sem þú vilt.
7. Tónninn er nú vistaður í símann. Þú þarft aðeins að fara þangað sem þú vistaðir
fjöltóninn til að virkja hann.
149 kr SMSið
Gangtu úr skugga um að þú sért með GPRS
Leiðbeiningar Hringitónar
Þú sendir inn SMS skeytið JA TONE “Kóði” á númerið 1900 og tóninn
kemur í síma þinn. Dæmi: JA TONE 21672
99 kr SMS-ið
Engjateigi 5, sími 581 2141
Opið virka daga frá kl. 10.00-18.00, laugardaga frá kl. 10.00-16.00.
15 % AFSLÁTTUR
AF ÖLLUM KJÓLUM, STUTTUM,
SÍÐUM OG TVÍSKIPTUM
Nú er ég búinn að segja þér ALLT sem ég
veit um KISS! En hvað með þig? Sagðistu
ekki hafa verið Norðfjarðarmeistari í fingra-
prjóni eða eitthvað?
Það er allt að fyllast af ein-
hverju túristapakki núna! Maður
ætti að drullast upp á öræfi eða
eitthvað til að komast burt!
Já, það er viðbjóður að
horfa upp á þetta lið!
Hundfeitir að rogast um með
myndavélar, kappklæddir í
lopapeysur og röflandi á ein-
hverjum óskiljanlegum
hrognamálum!
Mann langar bara að vera
heima að sofa til að sjá
þetta ekki!
En svo er allt líka fullt af
einhverju slímugu liði að
reyna að selja þeim eitthvað!
Það vilja allir samt fá pen-
ingana þeirra!
Fólk getur sokkið svo
djúpt, maður!
Fáið flotta boli hérna!
Tveir fyrir þrjú-
þúsundkall!
Hvar er kött-
urinn? Ég hef
ekki séð hann í
allan dag!
Ég held að
hann sé að
fela sig inn í
skáp. Hvað er
að þessum
ketti!?!
Ég þarf mitt
tilfinningalega
svigrúm!
Ég heyrði
þetta!!
Solla, þetta er fimm ára
afmælið þitt, þess vegna
máttu bjóða
fimm vinum.
Hvað með alla
vini mína í
leikskólanum?
Elskan, ef þú myndir bjóða
öllum krökkunum á leikskól-
anum yrðu 35 krakkar í
veislunni! Það yrði bara
alltof mikið!
Af
hverju?
Af því að pabbi
þinn segir það.