Fréttablaðið - 03.09.2005, Page 4
KAUP
Gengisvísitala krónunnar
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
USD
GBP
EUR
DKK
NOK
SEK
JPY
XDR
60,88 61,18
111,85 112,39
76,40 76,82
10,243 10,303
9,799 9,857
8,218 8,266
0,5554 0,5586
90,31 90,85
GENGI GJALDMIÐLA 02.09.2005
GENGIÐ
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
SALA
106,3506 -0,5%
4 3. september 2005 LAUGARDAGUR
Lyfjasending Glaxo í gæðaeftirliti fram yfir helgi:
Bóluefni gegn lifrarbólgu B ófáanlegt
LYFJAMÁL Bóluefni gegn lifrar-
bólgu B er nú ófáanlegt hjá inn-
flytjanda hér. Ný sending er kom-
in til landsins og er í gæðaeftirliti.
Bóluefnið verður aftur fáanlegt í
næstu viku, að sögn Hjörleifs
Þórarinssonar, forstjóra Glaxo á
Íslandi.
Hjörleifur segir að bóluefnið
hafi fyrst klárast hjá fyrirtækinu
í júlí. Það hafi ekki varað lengi,
því fljótlega hafi komið ný send-
ing. Á þriðjudaginn var hafi bólu-
efnið svo klárast aftur. Það þurfi
að fara í gegnum sérstakt gæða-
eftirlit áður en því er dreift og
það standi einmitt yfir nú. Vonir
standa til að sala hefjist á bóluefn-
inu í næstu viku.
Hjörleifur bætir við að yfir-
leitt sé hægt að sjá þörfina á
þessu bóluefni nokkuð fyrir. Það
sé tiltölulega vandmeðfarið og
geymist illa. Því sé ekki hægt að
liggja með miklar birgðir í einu.
Nú í ágúst hafi einn aðili allt í einu
keypt mörg hundruð skammta.
Bóluefni gegn lifrarbólgu B er
einkum notað til bólusetningar
starfsfólks á heilbrigðisstofnun-
um, að sögn Hjörleifs. Einnig er
það notað af lögreglu og á öðrum
vettvangi þar sem hætta er á að
fólk lendi í návígi við smitað blóð
eða líkamsvökva. - jss
Ney›arástand ríkir í
leikskólum borgarinnar
Um hundra› starfsmenn vantar í leikskóla Reykjavíkurborgar en engar tölur
eru til um fjölda barna á bi›lista eftir plássi. Borgarstjóri heitir auknu fjár-
framlagi svo leysa megi starfsmannavandann.
LEIKSKÓLAR Engar tölur eru til um
það hjá menntasviði Reykjavíkur-
borgar hve mörg börn eru á
biðlista eftir plássi í leikskólum
borgarinnar vegna starfsmanna-
eklu.
Að sögn Gerðar G. Óskars-
dóttur, sviðsstjóra menntasviðs
Reykjavíkurborgar, vantar enn
um 100 starfsmenn í leikskólana
og hafa leikskólastjórar í átján
leikskólum tilkynnt að þeir neyð-
ist hugsanlega til að grípa til að-
gerða vegna skorts á starfsfólki
ef starfsmannamál leysast ekki á
næstunni.
„Leikskólastjórar segjast
neyðast til að stytta dvalartíma
barna og stytta skóladaginn,“
segir Gerður. Þá hafa myndast
biðlistar vegna manneklu því
sumir leikskólar geta ekki tekið
inn ný börn sem sótt hafa um vist.
Alls eru 132 börn á biðlista í
þeim 18 leikskólum sem ástandið
er verst í. Leikskólinn Geisla-
baugur í Grafarholti er þar á
meðal. Þar eru 34 börn á biðlista
og enn á eftir að ráða í sex stöður
af 24, að sögn leikskólastjórans,
Ingibjargar Eyfells.
Guðrún María Harðardóttir,
leikskólastjóri á Grandaborg, hélt
fund með foreldrum og starfs-
mönnum leikskólans í fyrradag og
var Steinunn Valdís Óskarsdóttir
borgarstjóri viðstödd. Á Granda-
borg vantar í þrjár til fjórar stöð-
ur en leikskólinn er samt sem
áður fullsetinn því búið var að
taka öll ný börn inn áður en
starfsfólk hætti fyrirvaralaust.
„Við ákváðum á fundinum að
skerða vistunartíma á hvert barn
um eina klukkustund,“ segir
Guðrún María. „Það eru mildustu
aðgerðirnar sem við gátum gripið
til,“ segir hún og bendir á að aðrir
leikskólar hafi jafnvel þurft að
loka deildum til skiptis heilu
dagana.
Steinunn Valdís tilkynnti þar
jafnframt að kjarasamningar
starfsmanna á leikskólum og frí-
stundaheimilum yrðu endurskoð-
aðir fyrr en ætlað var og að borg-
in geri ráð fyrir auknum kostnaði
sem nemi 20 til 50 milljónum
vegna aukins álags á starfsfólk
vegna manneklu.
Samkvæmt upplýsingum frá
Íþrótta- og tómstundaráði Reykja-
víkur vantar enn um 100 starfs-
menn á frístundaheimili borgar-
innar.
sda@frettabladid.is
Íslenska fyrir útlendinga:
Kenna 700
útlendingum
MENNTUN Mímir-Símenntun tekur
að sér íslenskukennslu um sjö
hundruð útlendinga en síðustu árin
hafa Námsflokkar Reykjavíkur haft
umsjón með henni.
Samningur þess efnis var undir-
ritaður í Miðbæjarskólanum við
Fríkirkjuveg 1 klukkan hálf tvö í
gær.
Mímir nýtur þó krafta nokkura
kennara úr Námsflokkunum sem
áfram munu kenna útlendingunum.
Í samningnum felst einnig að
Reykjavíkurborg stofni starfshóp
skipaðan fólki með þekkingu og
reynslu og hefur hópurinn það verk
með höndum að þróa kennsluhætti í
íslensku fyrir útlendinga. - jse
Innbrot í tölvuverslun:
firír fengu
skilor›
DÓMSMÁL Þrír ungir menn um og
yfir tvítugt voru í gær dæmdir
fyrir innbrot í tölvuverslun þar
sem þeir stálu vörum fyrir tæpar
600 þúsund krónur. Sá sem
þyngstan dóm hlaut var dæmdur
til sex mánaða fangelsisvistar, en
hinir tveir í þriggja mánaða fang-
elsi. Dómarnir voru allir skilorðs-
bundnir í þrjú ár.
Sá sem þyngstan dóminn hlaut
er jafnframt elstur í hópnum, en
hann var auk innbrotsins ákærður
fyrir vörslu kannabisefna og am-
fetamíns. Þá hafði hann í tvígang
verið gripinn fyrir að aka bíl próf-
laus.
Dómurinn var kveðinn upp í
Héraðsdómi Reykjavíkur. - óká
Kosningar á Srí Lanka:
Fri›ur er
forgangsatri›i
SRÍ LANKA, AP Mahinda Rajapakse,
forsætisráðherra Sri Lanka, er
talinn manna líklegastur til að
fara með sig-
ur af hólmi í
forsetakosn-
ingum sem
haldnar verða
í landinu síð-
ar á þessu ári.
H a n n
sagði í sam-
tali við AP-
fréttastofuna
að ef hann
næði kjöri
yrði efst á
forgangslista
hans að koma
á varanlegum
friði á milli stríðandi fylkinga
Tamíla og Singala.
Rajapakse er flokksbróðir
Chandrika Kumaratunga, nú-
verandi forseta landsins, en hún
má ekki gefa áfram kost á sér
vegna kosningalaga landsins.
GAMAL MUBARAK Gamal stýrir kosninga-
baráttu föður síns og er sagður eftirmaður
hans.
Sonur Mubarak:
Fetar í spor
fö›ur síns
EGYPTALAND, AP Gamal Mubarak,
sonur Hosni Mubarak, forseta
Egyptalands, sést iðulega við hlið
föður síns í kosningabaráttunni
sem stendur yfir í landinu.
Gamal, sem er yngsti sonur
forsetans, er 41 árs og er sagður
sjálfskipaður eftirmaður föður
síns. Það hve áberandi hann hefur
verið í kosningabaráttu föður síns
er talið til marks um að forsetinn
sé að undirbúa jarðveginn fyrir
hann sem arftaka sinn.
Hann stýrir kosningabaráttu
föður síns en vinnur einnig að um-
bótum innan flokks síns.
ÓK Á HÚS Fólksbíll eyðilagðist
þegar honum var ekið af Reykja-
víkurvegi í Hafnarfirði á hús á
horni Skúlaskeiðs. Að sögn lög-
reglunnar í Hafnarfirði slapp
ökumaður bílsins ómeiddur, en
hann er grunaður um ölvun við
akstur.
BÍLVELTA Í GRAFARHOLTI Bifreið
skemmdist mikið í veltu við Jóns-
geisla við Reynivatnsveg í Graf-
arholti á tólfta tímanum á
fimmtudagskvöld. Að sögn lög-
reglu í Reykjavík voru tveir
menn í bílnum og sluppu þeir
lítið meiddir.
LÖGREGLUFRÉTTIR
VEÐRIÐ Í DAG
LÖGREGLAN Lögreglumenn eru meðal
þeirra starfshópa sem fá bólusetningu við
lifrarbólgu B.
MAHINDA RAJAPAKSE
Hann er talinn manna
líklegastur til að fara
með sigur af hólmi í
forsetakosningum á Srí
Lanka.
GUÐRÚN MARÍA HARÐARDÓTTIR LEIKSKÓLASTJÓRI Guðrún hélt fund með foreldrum í
Grandaborg þar sem Steinunn Valdís Óskarsdóttir borgarstjóri lofaði auknu fjárframlagi frá
borginni til að leysa starfsmannavanda leikskólanna.