Fréttablaðið


Fréttablaðið - 03.09.2005, Qupperneq 20

Fréttablaðið - 03.09.2005, Qupperneq 20
Ég þáði það með þökkum þegar mér var boðið með í róður á línu- bát sem gerir að mestu út á leigu- kvóta frá Siglufirði. Það er mikils virði að kynnast af eigin raun þeirri hörðu vinnu sem sjómenn leggja á sig til þess að draga björg í þjóðarbúið. Sjálfstæðismenn og framsóknarmenn virðast tor- tryggja störf sjómanna svo mjög að flokkarnir hafa komið á víð- tækasta og strangasta eftirlits- kerfi sem nokkur stétt í landinu þarf að búa við. Sjálfstæðisflokk- urinn hefur blásið út sérstaka eft- irlitsstofnun með störfum sjó- manna, Fiskistofu, þar sem meg- ináherslan er lögð á að duglegir sjómenn svindli ekki. Miklu minna fer fyrir skynsamlegum áherslum á að tryggja aukin gæði og bætta meðferð á afla. Ekki er látið sitja við það eitt að nota ein- göngu þær tæplega 700 milljónir sem renna árlega til að fylgjast með störfum sjómanna, heldur eru einnig starfsmenn hafna og Landhelgisgæslan á vaktinni til að tryggja að duglegir sjómenn standi ekki í einhverju svindli. Auðvitað er þetta gífurlega eftirlit algjör áfellisdómur yfir vonlausu fiskveiðistjórnunarkerfi sem hefur skilað helmingi minni þorskafla á land en fyrir daga þess. Er eitthvert vit í því að marg- falt hærri upphæðir fari í eftirlit með duglegum sjómönnum en fara samanlagt í löggæslu með fíkniefnum og rannsókn á stærstu efnahagsbrotum þjóðarinnar? Þó nokkrir sem stunda sjóinn eru á leigukvóta og stærsti hluti af aflaverðmætinu fer til ein- hvers sem er skráður fyrir kvót- anum og kemur hvergi nærri veiðunum. Þetta er auðvitað skammarlegt óréttlæti og undar- legt að Íslendingar láti það við- gangast að fjöldi manna séu leigu- liðar einhverra einstaklinga sem eru skráðir sem handhafar sam- eignar þjóðarinnar. Ég var að hugleiða þessa stöðu sem sjávarútvegur landsmanna er kominn í þegar ég heyrði í ein- um fulltrúa Sjálfstæðisflokksins Guðlaugi Þór Þórðarsyni í útvarp- inu. Hann var að ræða óljóst um eitthvert glerþak á greiðslum úr sameiginlegum sjóðum lands- manna til þeirra sem verða þeirr- ar gæfu aðnjótandi að eignast börn. Á Guðlaugi Þór var að heyra að um eitthvert stórkostlegt rang- læti væri að ræða þegar ekki væri hægt að dæla endalaust af pening- um úr sameiginlegum sjóðum landsmanna. Ég veit að honum og félögum hans í Sjálfstæðis- og Framsóknarflokknum þykir hins vegar mjög réttlátt og sanngjarnt að harðduglegir sjómenn þurfi að leigja til sín rétt til að nýta sam- eign Íslendinga háu verði og að leigan renni óskert til einhverra einstaklinga sem koma hvergi ná- lægt vinnunni og eiga ekki meira en hver annar af því sem þeir eru að leigja frá sér. Vont er þeirra ranglæti en verra er þeirra réttlæti. 3. september 2005 LAUGARDAGUR H blaelgar › Hefurflúsé› DV í dag Bls. 22-23 Eva Sólan í opinskáuHelgarblaðsviðtali þarsem hún ræðir meðalannars dauða föðursíns, baráttu móður sinnar við krabbameinog aðgerðina sem bjargaði sjóninni. Bls. 18-19 Sjónvarpsþulan sem fékk sjónina á ný Eva Sólan Ætlar ekki aðgefast upp MÉR VAR SAGT AÐÉG YRÐI BLIND Arnþrúður Karlsdóttir l tti Andlega veikir segja sögu sína Geðsjúkdómur er ekki dauðadómurÞögnin rofin DAGBLAÐIÐ VÍSIR 199. TBL. – 95. ÁRG. – VERÐ KR. 295 LAUGARDAGUR 3. SEPTEMBER 2005 Helgarblað Bls. 4 Stjörnurnar styrkjaBjörn vagnstjóra Birgitta HaukdalÁ æstan aðdáanda í Kólumbíu Bls. 53 Sirrý býður í mat Bls. 36 Bls. 30-33 SEX TÍSKUDROTTNINGAR Ólíkar týpur tjá sig um tískuna Bls. 26-27 Eva Sólan í opinskáu Helgar- blaðsviðtali þar sem hún ræðir meðal annars dauða föður síns, baráttu móður hennar við krabbamein og aðgerðina sem bjargaði sjóninni. Sjónvarpsþulan sem fékk sjónina á ný j l j i Sjónvarpsstjarnan Gísli Marteinn Baldursson, sem keppir að því að verða odd- viti sjálfstæðismanna í borg- arstjórn Reykjavíkur og jafnframt næsti borgar- stjóri, hefur fengið byr í seglin að undanförnu. Flokknum hans er spáð meirihluta í borgarstjórn og samkvæmt skoðanakönnun Fréttablaðsins vill meiri- hluti borgarbúa að hann verði næsti borgarstjóri. Fjölmiðlar elta hann á rönd- um og keppast við að fjalla um hann. Í gær var hann í forsíðuviðtali við Sirkus og sama dag birtist heilsíðuút- tekt á honum í Viðskiptablað- inu. Fréttablaðið slæst í hóp- inn og útnefnir Gísla Martein „mann vikunnar“. Gísli er alinn upp í Breið- holtinu, sonur Baldurs Gísla- sonar skólameistara og Elísa- betar Jónu Sveinbjörnsdóttur. Ekki voru stjórnmálaumræð- ur á heimilinu hvetjandi fyrir hann til að ganga í Sjálfstæðis- flokkinn, því foreldrar hans voru bæði vinstrisinnuð. En Gísli Marteinn reyndist sjálf- stæður í hugsun og fór sínar eigin leiðir. Hann fór í Versl- unarskólann, þar sem hann varð hrókur alls fagnaðar í félags- lífinu og gat sér orð fyrir ræðu- mennsku. Hann kaus að læra stjórnmálafræði við Háskóla Ís- lands og kynntist þar Hannesi Hólmsteini Gissurarsyni prófess- or, sem haft hefur mikil áhrif á hann. Eftir að hafa dvalist um hríð við framhaldsnám í Þýska- landi var hann ráðinn fréttamaður á Sjónvarpinu og síðan hefur sú stofnun verið vinnustaður hans. Þekktastur er hann fyrir spjall- þættina á laugardagskvöldum þar sem hann hefur skapað sér ímynd hins hláturmilda og hressa sjón- varpsmanns. Það er ekki nýtt, hvorki hér- lendis né erlendis, að fjölmiðla- stjörnur hasli sér völl í stjórnmál- um. En það er ekki nóg að vera frægur og frískur; þegar nær dregur kosningum vilja menn vita fyrir hvað frambjóðendur standa. Sumum finnst það heldur óljóst hvað Gísli Marteinn ætlar að hafa á boðstólum nái hann oddvitasæti sjálfstæðismanna. Hann kallar sig frjálshyggjumann og talar mikið um aðdáun sína á Davíð Oddssyni. En það segir svo sem ekki mikið þegar kemur að borg- armálum. Ef menn halda að Gísli Marteinn vilji koma á víðtækri einkavæðingu í borgarkerfinu getur Davíð varla verið fyrirmyndin. Andstæðingar Gísla Mart- eins í vinstriflokkunum munu leggja sig í líma við að finna á honum snögga bletti og líklega telja þeir vænlegt til árangurs að tala um að hann ætli að selja skólana í borginni. Steinunn Valdís borgarstjóri var komin í þennan ham í sjónvarpinu í vikunni en náði einhvern veginn ekki að fylgja því eftir. Eitt stefnumál Gísla Marteins er opinbert. Hann vill flytja Reykjavíkurflug- völl á brott og byggja í Vatns- mýrinni. Í samtali við Sirkus í gær vefst þetta gamla vand- ræðamál allra stjórnmála- flokkanna lítið fyrir honum: „Ef við kæmust að þá mynd- um við byrja á þessu daginn eftir“. En hvað um önnur mál sem brenna á borgarbúum? Dag- vistarmál, lóðamál, miðborg- armál, umferðarmál? Um þau hefur Gísli Marteinn verið fá- orður en viðbúið að hann þurfi að vera tilbúinn að segja skoð- un sína afdráttarlaust nú þeg- ar prófkjörsbaráttan í Sjálfstæð- isflokknum er að hefjast. Sumum finnst Gísli Marteinn full ungur til að verða borgar- stjóri. En það er kannski vegna þessa að hann lítur út fyrir að vera yngri en hann er. Gísli Mart- einn er orðinn 33 ára og eins og hann hefur sjálfur bent á voru Bjarni Benediktsson og Davíð Oddsson báðir yngri en hann þegar þeir urðu borgarstjórar. Í viðskiptalífinu þykir það ekki til- tökumál að treysta ungum mönn- um til ábyrgðarstarfa og sama hlýtur að gilda um stjórnmálin. MAÐUR VIKUNNAR Hress en fáor›ur um stefnumálin GÍSLI MARTEINN BALDURSSON BORGARSTJÓRAEFNI TE IK N IN G : H EL G I S IG U RÐ SS O N – H U G VE R K A. IS Sjálfstæ›is- og framsóknarmenn tortryggja sjómenn SIGURJÓN ÞÓRÐARSON ALÞINGISMAÐUR UMRÆÐAN LEIGUKVÓTI Er eitthvert vit í flví a› marg- falt hærri upphæ›ir fari í eftirlit me› duglegum sjó- mönnum en fara samanlagt í löggæslu me› fíkniefnum og rannsókn á stærstu efnahags- brotum fljó›arinnar?
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.