Fréttablaðið


Fréttablaðið - 03.09.2005, Qupperneq 30

Fréttablaðið - 03.09.2005, Qupperneq 30
ABigger Bang er fyrsta hljóð-versplata The Rolling Stoneí átta ár, eða síðan Bridges to Babylon kom út 1997. Heiti plöt- unnar er rakið til áhuga sveitarinn- ar á vísindakenningunni um að heimurinn hefði orðið til í stórri sprengingu. Alls eru sextán lög á plötunni þar sem rokklög með blúsáhrifum eru sem fyrr í for- grunni. Þetta er jafnframt lengsta plata Stones síðan Exile on Main Street kom út árið 1972 við miklar vinsældir. Fyrsta smáskífulag plötunnar er ballaðan Streets of Love. Á meðal fleiri laga eru Rough Just- ice, Laugh, I Nearly Died og Rain Fall Down. Einnig verða á plöt- unni lögin This Place in Empty og Infamy sem eru bæði sungin af gítarleikaranum Keith Richards. Tónleikaferð The Rollings Stones um heiminn til að fylgja plötunni eftir hófst í Boston 21. ágúst og stendur yfir fram á næsta haust. Fyrst um sinn ferð- ast sveitin um Norður-Ameríku. Síðan liggur leiðin til Suður-Am- eríku, Mið-Austurlanda, Nýja-Sjá- lands, Ástralíu og loks til Evrópu. Töluverðar mannabreytingar Mannabreytingar á The Rolling Stones hafa verið nokkrar, sem er kannski ekki skrítið þar sem sveitin hefur starfað í yfir fjöru- tíu ár. Stones kom fyrst fram op- inberlega í Marquee-klúbbnum í London árið 1962. Á þeim tíma samanstóð sveitin af Mick Jagger, Keith Richards, Brian Jones, Ian Stewart, Mick Avory og Dick Taylor. Nokkrum vikum eftir tón- leikana hætti Taylor og bassaleik- arinn Bill Wyman kom í hans stað. Ekki leið heldur á löngu þar til Avory hætti í sveitinni og eftir stutt stopp Tony Chapman við trommusettið gekk Charlie Watts til liðs við Stones. Ári síðar gerðist Andrew Looq Oldham umboðsmaður Stones og lagði hann mikla áherslu á að hljómsveitin liti út eins og hinn illi tvíburi Bítlanna. Sveitin gekk um í leðurjökkum, talaði hispurslaust í fjölmiðlum og spilaði ágengara rokk en Bítlarnir voru þekktir fyrir. Í framhaldinu var krafta Ian Stewart ekki lengur óskað í sveit- inni þar sem hann þótti ekki henta nýrri ímynd sveitarinnar. Þar með var komin hin rétta uppstilling Stones sem átti eftir að endast til ársins 1969 þegar Brian Jones ákvað að hætta. Mán- uði síðar fannst hann látinn í sundlaug sinni. Mick Taylor hljóp í skarðið fyrir gítarleikarann Jones og var meðlimur Stones til ársins 1974. Þá var komið að Ron Wood, sem hafði áður spilað með Jeff Beck og Rod Stewart, að taka gítarinn í hönd og hefur hann gert það allar götur síðan. Bill Wyman sagði skilið við Stones árið 1991 eftir útgáfu tón- leikaplötunnar Flashpoint. Vegna sólóverkefna annarra liðsmanna var ekki ráðinn nýr maður í hans stað fyrr en 1994 þegar Darryl Jones, sem hafði áður spilað með Miles Davis og Sting, gekk til liðs við Stones. Aðeins Mick Jagger og Keith Richards hafa verið í The Rolling Stones frá stofnun sveitarinnar. Þeir hafa límt hana saman með öflugri sviðsframkomu og fjöl- mörgum slögurum sem munu lifa um ókomin ár. Umfangsmiklar tónleikaferðir The Rolling Stones hefur alltaf lagt mikinn metnað í tónleikaferð- ir sínar. Fyrsta tónleikaferð Stones sem setti aðsóknarmet í Bandaríkjunum var World’s Greatest Rock & Roll Band árið 1969. Á meðal fleiri stórra ferða sem sveitin hefur farið í eru Steel Wheels-tónleikaferðin sem sló fjölmörg aðsóknarmet og Voodoo Lounge sem gekk enn þá betur. Tónleikaferðin vegna útgáfu plöt- unnar Bridges to Babylon var einnig gríðarstór, auk þess sem sveitin fór í umfangsmikla ferð árið 2002 til þess að fylgja eftir safnplötu sinni. Nýjasta tónleikaferð The Roll- ing Stones verður frábrugðin hin- um á þann hátt að áheyrendum gefst nú kostur á að vera uppi á sviði með sveitinni. Nokkur hund- ruð sæti hafa verið smíðuð inn í sviðsmyndina til þess að aðdáend- ur Stones geti fengið forsmekkinn af því hvernig tilfinning það er að spila fyrir framan að minnsta kosti 50 þúsund manns. Stones spilar reyndar ekki eingöngu á stórum leikvöngum heldur einnig í smærri tónleikahöllum og í klúbbum. Það verða engir aukvisar sem hita upp fyrir Stones. Nöfn á borð við Metallica, Pearl Jam, Beck, Black Eyed Peas, Alanis Moris- sette, Mötley Crüe, Maroon 5, Joss Stone og Wilco sjá um að hita lýðinn upp. Allir virðast vera til- búnir til þess að stíga á svið á und- an Stones enda um að ræða eina frægustu og áhrifamestu rokk- sveit allra tíma. freyr@frettabladid.is ÓLAFUR HELGI KJARTANSSON Ólafur Helgi er gríðarlegur Rolling Stones-aðdáandi. Hann er mjög hrifinn af nýjustu plötu sveitarinnar, A Bigger Bang. 30 3. september 2005 LAUGARDAGUR Ó lafur Helgi Kjartansson, sýslumaður á Selfossi, er vafalítið Stones-aðdáandi númer eitt á Íslandi. Hann sá bæði fyrstu og aðra tónleika Stones í nýju tón- leikaferðinni sem voru haldnir á Fenway Park í Boston dagana 21. og 23. ágúst fyrir framan 35 þúsund manns. „Þetta var ótrúleg upplifun,“ seg- ir Ólafur. „Það kemur mér reynd- ar alltaf jafnmikið á óvart hvað þeir eru góðir. Þeir eru eiginlega betri en nokkru sinni fyrr og nýja platan þeirra, sem ég hef orðið svo heppinn að fá að heyra, er al- veg afburða góð. Þar er horfið aftur til einfaldleikans og ég flokka hana með því besta frá þeim síðan þeir gáfu út Tattoo You árið 1981,“ segir hann. „Þeir tóku fjögur lög af nýju plötunni og í laginu Back of My Hand sat Ronnie Wood fyrir framan trommusettið hjá Charlie Watts og rétti upp hendurnar á meðan Jagger spilaði fyrri partinn á gítarinn. Þeir taka vanalega eitt tökulag og þarna tóku þeir lagið The Night Time is the Right Time eftir Ray Charles. Það var heljarinnar stuð. Annars var það athyglis- vert að það voru ekki nema fimm lög frá tíma- bilinu áður en þeir stofnuðu Rolling Sto- nes Records árið 1971,“ bætir hann við. Ólafur hefur nú farið á 24 tónleika með Stones og voru þeir fyrstu 21. ágúst árið 1989. Hann stefnir á að halda uppteknum hætti og sjá þá bæði vestanhafs og austan í þessari tón- leikaferð. Líklega sér hann þá í Kaupmannahöfn og síðan koma borgirnar Glasgow og Newcastle einnig til greina. JAGGER OG WOOD Hljómsveitin The Roll- ing Stones var stofnuð í byrjun sjöunda áratug- arins og virðist eiga nóg inni þrátt fyrir ófá ár í bransanum. ÁTTA ÁRA BIÐ Á ENDA KEITH RICHARDS Richards syngur tvö lög á nýju plötunni, This Place is Empty og Infamy. Breska rokksveitin The Rolling Stones hefur veri› starfrækt svo lengi sem elstu menn muna. N‡jasta plata sveitarinnar, A Bigger Bang, kemur út á mánu- daginn og hinir fjölmörgu Stones-a›dáendur um heim allan bí›a hennar a› sjálfsög›u me› mikilli eftirvæntingu. Hefur sé› Stones 24 sinnum
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.