Fréttablaðið - 03.09.2005, Side 36

Fréttablaðið - 03.09.2005, Side 36
6 3. september 2005 LAUGARDAGUR Tjónaskoðun Almennar bílaviðgerðir • SUMARDEKK • HJÓLBARÐAÞJÓNUSTA • HEILSÁRSDEKK • RAFGEYMAÞJÓNUSTA • OLÍS SMURSTÖÐ • BREMSUKLOSSAR • BÓN OG ÞVOTTUR • PÚSTÞJÓNUSTA ALLT Á EINUM STAÐ SMUR- BÓN OG DEKKJAÞJÓNUSTAN SÆTÚNI 4, SÍMI 562 6066 Hvað á að gera við ónýtan bíl? Stundum standa ónýtir bílar svo vikum og mánuðum skiptir óhreyfðir og á meðan er rukkað fyrir tryggingar á bílnum. Einfalt er að skila inn ónýtum bíl til úrvinnslu og taka hann af númerum. Ónýtan bíl er best að taka sem fyrst af númerum svo ekki þurfi að borga af honum tryggingar. Það er gert með því að skrúfa númeraplöturnar af bílnum og skila þeim til Umferðarstofu og skrá þar bílinn úr umferð. Plöt- urnar er hægt að geyma í eitt ár hjá Umferðarstofu, en að þeim tíma loknum þarf að sækja um aftur ef til stendur að geyma þær lengur. Ef til stendur að fleygja bíln- um, er farið með bílinn á úr- vinnslustöð. Þær finnast um allt land en á höfuðborgarsvæðinu eru það Hringrás og Funi sem taka við bílnum. Ef bíllinn er yngri en 1980 módel fær skráður eigandi greiddar 15.000 kr. þegar hann skilar honum til úrvinnslu. Eina skilyrðið fyrir því að fá þetta gjald er að sérstakt úr- vinnslugjald hafi verið greitt að minnsta kosti einu sinni, en það er innheimt tvisvar á ári með bif- reiðagjöldunum og er 350 kr. fyr- ir hvert tímabil, og hafa þau ver- ið innheimt frá 1. janúar árið 2003. Ef sá sem skilar inn bílnum til úrvinnslu er ekki skráður eig- andi, þarf að hann að koma með skriflegt umboð frá eiganda und- irritað af tveimur vottum eldri en 18 ára. Gjaldið er einungis greitt inn á reikning hjá skráðum eig- anda bílsins. Eftir að bílnum hefur veirð skilað á úrvinnslustöð er eiganda afhent skilavottorð sem skilað er inn til Umferðarstofu eða á næstu skoðunarstöð. ■ Fari› me› bíl- inn á haugana Ekki borgar sig að láta ónýtan bíl standa ónotaðan lengi með númer. Skortur á bensíni Olíuporpöllum og olíuhreinsi- stöðvum við Mexíkóflóa hefur verið lokað í kjölfar hörmung- anna af völdum fellibylsins Katrínar. Hætta er á því að talsvert dragi úr olíuframleiðslu í Bandaríkj- unum í kjölfar hörmunganna vegna fellibylsins Katrínar, og hefur það haft veruleg áhrif á heimsmarkaðsverð á olíu. Aðal- vandamálið í augnablikinu er skortur á bensíni og lítil fram- leiðslugeta olíuhreinsistöðva. Fyrr í vikunni var olíuborpöll- um, olíuframleiðslusvæðum og olíuhreinsistöðvum lokað í og við Mexíkóflóa vegna fellibylsins sem hafði í för með sér um 12% samdrátt í hráolíuframleiðslu og 10% samdrátt í framleiðslugetu olíuhreinsistöðva í Bandaríkjun- um. Fyrir um ári dróst olíufram- leiðsla saman í marga mánuði vegna eyðileggingar af völdum fellibylsins Ivans þar sem mest- ur varð skaðinn vegna aurflóða við ósa Mississippi sem skemmdu olíuleiðslur. Óttast er að eitthvað svipað geti gerst í kjölfar Katrínar en New Orleans er hjarta gas- og olíuframleiðslu við Mexíkóflóa. Áhrifanna af þessu hefur nú þegar gætt á Íslandi þar sem síð- astliðinn fimmtudag hækkaði verð á bensínlítranum um heilar 4 kr. Á heimasíðu Esso segir að þörf fyrir hækkun á eldsneytis- verði sé mun meiri en fjögurra króna hækkunin, eða kr. 8,50 á lítrann og 2,80 á dísilolíu og aðr- ar gasolíutegundir. Félagið hafi ekki hækkað verðið meira nú í þeirri von að heimsmarkaðs- verðið taki fljótlega að lækka aftur. Ljóst er þó að enn ríkir mikil óvissa vegna hamfaranna við Mexíkóflóann og um hver verðþróunin verði á næstunni. ■ Olíuverð hefur hækkað talsvert í kjölfar fellibylsins Katrínar. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /G ET TY Land Rover-eigendur á ferð. Jeppaferðir B&L Land Rover um næstu helgi og Hyundai um þar næstu. Árleg jeppaferð Land Rover verður farin laugardaginn 10. september næstkomandi. Að venju safnast þátttakendur við B&L-húsið að Grjóthálsi á níunda tímanum um morguninn áður en lagt er í hann klukkan níu. Leiðin liggur í ár í Þórsmörk með viðkomu í Háfsfjöru og verður grillað og brugðið á leik þegar í Þórsmörkina er komið. Þá verður hin árlega Hyundai-jeppa- ferð B&L farin viku síðar eða laugar- daginn 17. september. Fyrirkomulag verður með svipuðu sniði og í Land Rover-ferðinni. Skráning í báðar ferðir er ásamt leiðarlýsingu á heimasíðu B&L, www.bl.is.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.