Fréttablaðið - 03.09.2005, Side 71

Fréttablaðið - 03.09.2005, Side 71
GLIMMERPÚÐUR frá Estée Lauder gefur kinnunum fallegt yfirbragð. FJÓLUBLÁIR tónar frá Gosh draga fram ljómann í augunum. Þegar hausttískan er skoðuð kemurí ljós að ekki er nóg að vera í réttufötunum og hafa hárið klippt eftir kúnstarinnar reglum. Andlitið þarf að vera vel snyrt og hárrétt farðað. Lita- dýrðin er mikil þetta haustið. Mikið ber á fjólubláum lit ásamt grænum þegar kemur að augnskuggum, blýöntum og möskurum. Mörgum finnst þetta þó í glannalegri kantinum en ef vörurnar eru notaðar rétt er ekkert mál að líta vel út án þess að líða eins og málverki. Hjá Clarins eru karlmenn í lykilstöðum við að hanna haustútlitið þetta árið. Þeir leggja áherslu á að það megi blanda litunum saman án þess að útkoman verði k l e s s u l e g . Merkið hef- ur hingað til verið þekkt fyrir náttúrulegar förðunarvörur en nú ber við nýjan tón. Hjá Estée Lauder kemur bleiki liturinn mjög sterkt inn ásamt fjólu- bláu. Bleikur kinnalitur gerir mikið fyrir húðina og fer afar vel með öllum þeim brúnu hausttónum sem eru svo vinsælir í fatnaði um þessar mundir. Perluáferðin á naglalakkinu frá Estée Lauder er sérlega falleg og klæðileg og passar fyrir nánast hvaða týpur sem er. Lögð er áhersla á dökka varaliti og þar spilar rauði liturinn stórt hlutverk ásamt brúnum og dökklilluðum tónum. Reglan er samt alltaf sú að ef augun eru mikið máluð er fallegra að hafa varirnar náttúrulegri og öfugt. Hver kona þarf því að finna út hvað klæðir hana og leggja áherslu á það sem gerir meira fyrir hana. martamaria@frettabladid.is Spáir þú mikið í tískuna? Mér finnst orðið „tíska“ vera mjög leiðinlegt en auðvitað tekur maður inn mikið af því sem maður sér. Uppáhaldshönnuðir eða fatamerki? Vivienne Westwood og Jean Paul Gaultier. Svo eru fullt af íslenskum fatahönnuðum flottir. Flottustu litirnir? Það er rosalega flakkandi frá degi til dags en í dag finnst mér skærir litir mjög flottir, til dæmis neonbleikur og túrkislitur. Ég hef aldrei verið fyrir jarðarliti. Hverju ertu veikust fyrir? Ekki neinu og öllu. Bara því sem kemur og fer hverju sinni. Hvaða flík keyptir þú þér síðast? Pils sem ég keypti í Spútnik en nota sem kjól. Það verður að rosa fínum kjól, kóngablátt með mynstri á. Hvað finnst þér flottast í tískunni núna? Það eru svo rosalega mörg flott merki sem eru með gæðavörur. Ég hugsa minn smekk samt ekki út frá tískunni og þegar ég heyri það orð fæ ég alveg hroll. Mér finnst „tíska“ binda mann við ákveðið „season“. Það er búið að ofnota þetta orð svo mikið í skrítnum meiningum að mér finnst að það ætti að finna upp nýtt orð. „Tíma- bundin stemning“ gæti jafnvel komið í staðinn. Hvað ætlar þú að kaupa í haust? Fyrst og fremst þarf ég að hugsa um það hvernig ég held á mér hita. Ég þarf því að byrja á að kíkja í fataskápinn og sjá hvað ég er búin að vera að fela yfir sumartímann. Helst vantar mig hlýja skó og góðan jakka en ég hef leitað að jakka lengi og aldrei fundið neinn sem hentar. Þang- að til vef ég mig bara inn í peysur og fer í föðurland, en það klikkar aldei á veturna. Uppáhaldsverslun? Mér finnst rosalega marg- ar skemmtilegar búðir vera að skjóta upp koll- inum, eins og Kron-fatabúðin, Trilogia og Nakti apinn. Svo stendur Spútnik alltaf fyrir sínu. Hvað eyðir þú miklum peningum í föt á mánuði? Sennilega eitthvað á bilinu sjö til tuttugu þúsund. Hvaða flíkur gætir þú ekki verið án? Nýja ballettsamfestingsins sem Hulda vinkona mín gaf mér. Hann er geggjaður, eitthvað svona sem maður notar bara á sunnudög- um. Uppáhaldsflík? Ég hugsa frekar út frá litum en flíkum. Svartur er alltaf þægi- legur því hann er svo hlutlaus en þegar mig langar að lyfta mér upp þá skapa litirnir skemmtilega stemningu. Það er gaman að blanda litum saman. Hvert myndir þú fara í verslunar- ferð? Ég fór síðast og verslaði á Brick Lane í London og það var mjög gaman en ég væri líka til í að fara til Barcelona. Annars fer ég aldrei í verslunarferðir heldur kíki bara í búðir þar sem ég er. Ljótasta flík sem þú hefur keypt þér? Mér dettur ekkert í hug. Það er í það minnsta ekkert svo alvarlegt að ég muni eftir því. Ballettsamfestingurinn bestur á sunnudögum 50 3. september 2005 LAUGARDAGUR FR ÉT TA B LA Ð IÐ /E .Ó L. SMEKKURINN ANNA SIGRÍÐUR PÁLSDÓTTIR HÁRSTÍLISTI & EIGANDI GEL GALLERÍ Dama í skopparabuxum Í sumar tók ég ástfóstri við víðar buxur. Ég veit ekki hvort það haldist í hendur við mýkri línur (ofát síðustu mánaða) eða hvort þetta sé tískutengt. Þegar ég var á Ítalíu í sumar keypti ég buxur sem flokkast hæglega sem „skopparabuxur“ ef ég þekki þann stíl rétt. Þær eru svo hólkvíðar að ég gæti hæglega fitnað um 30 kíló í viðbót án þess að nokkur tæki eftir því. Það má þó deila um hvort það sé kostur eða galli. Ég er samt einhvern veginn þannig að ef ég tek ástfóstri við flík á ég það til að hugsa allan fataskápinn út frá henni. Nýju „skopparabuxurnar“ komu eins og himnasending inn í til- veruna mína. Ég hef vægast sagt verið í þeim út í eitt síðan ég hnaut um þær í „artífartí“ verslun í miðborg Flórens. Ég fer í þeim út á línuskauta, í vinnuna, á djammið og jafnvel í brúðkaup, eða svona næstum því. Með háhælaða skó og fallegan topp að vopni hefðu buxurnar orðið ansi sparilegar. Mér finnst það að minnsta kosti. Ég veit ekki hvort fegrunarskynið breytist með árunum eða hvort þetta er tískulægt ástand, en mér finnst allt aðrir hlutir fallegir núna en fyrir fimm árum svo ég tali ekki um tíu ár. Ég er farin að leita að allt öðru en ég gerði þegar innkaup eru annars vegar. Núna get ég bara ekki keypt neitt sem mér líður ekki vel í. Ég get til dæmis ekki farið í jakka ef ég get ekki keyrt í honum, en hér áður fyrr lét ég það ekki stoppa mig. Um daginn tók ég næsta skrefið í átt að minni nýju víðu „skopparaveröld“. Ég keypti mér hólkvíðar Levi’s-buxur sem eru svo flottar að ég tími varla að fara úr þeim. Þær eru settar í þvottavél að kvöldi svo hægt sé að fara beint í þær daginn eftir. Það fyndna er þó að ég kom ekki auga á þær sjálf. Tólf ára stjúpdóttir mín var búin að finna þær og dreymdi um að eignast þær. Þegar ég fór með henni í bæinn náði Levi’s að smita mig líka. En kannski var bara tímabært að koma mér úr brúnu „skopparabuxunum“. MÓÐUR VIKUNNAR > MARTA SMARTA FER YFIR MÁLIN > ómissandi ... Það er alveg glatað að vera allt of glansandi í kinnunum. Nýja púðrið frá Guerlain smellpassar í snyrtibudduna og er auðvelt í notkun. Sei›andi litasinfónía FÖRÐUNARMEISTARAR CLARINS nota græna og fjólubláa liti saman svo út- koman verður stórkostleg. PURE POPS gloss frá Estée Lauder sem lyktar eins og bláberjafjall. Mann langar bara til að borða það og svo glitrar það afar fallega. BLEIKI LITURINN verður áberandi í vetur hjá Clarins. FJÓLUBLÁR DRAUMUR frá Guerlain. CHAMELEON PRISM A6 naglalakk frá Estée Lauder gefur bleika perluáferð. EYE SHIMMER púðurblýantur frá Clarins býður upp á ótal möguleika. ÞAÐ ER LANGT FRÁ ÞVÍ að vera hallærislegt að vera með maskara í lit, þvert á móti. AUGNSKUGGAPALLETTAN frá Estée Lauder skartar fallegri litasinfoníu. PALLETTUBOX með fjórum mis- munandi augnskuggum frá Clarins. Bronslitaður er heitur í vetur. PALLETTAN frá Bourjois skartar fallegum litum TÚRKÍS OG GRÁR tilheyra haustlínunni frá Chanel. GRÆNN OG FJÓLU- BLÁR frá Clarins.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.