Fréttablaðið - 17.11.2005, Blaðsíða 71
FIMMTUDAGUR 17. nóvember 2005 47
af öllum stærðum og gerðum
Mesta úrval landsins á einum stað!
H L J Ó Ð F Æ R A H Ú S I Ð
Suðurlandsbraut 32 • 108 Reykjavík • 591 5350
Yamaha píanó.
Yamaha píanó og flyglar
með og án SILENT búnaðar.
Veldu gæði – veldu Yamaha!
Samick píanó.
Mest seldu píanó á Íslandi!
Fáanleg í svörtu, hnotu og mahoný.
Verð frá 357.000 kr.
Goodway píanó.
Fáanleg í svörtu, hnotu og mahoný.
Verð frá 238.000 kr.
15 mán. Vaxtalausar greiðslur.
Estonia flyglar.
Handsmíðuð gæðahljóðfæri.
Steinway & Sons
Fyrir þá sem vilja aðeins það besta.
Til sýnis í verslun okkar.
Delicato-fjölskyldan er einn af elstu
vínframleiðendum í Kailiforníu. Sikil-
eyingurinn Gasparé Indelicato stofn-
aði fyrirtækið Delicato í Kaliforníu
árið 1935. Undir stjórn þriggja sona
hans, Tony, Frank og Vince, hefur
fyrirtækið tekið stórstígum
framförum og vakið verðskuld-
aða athygli fyrir framleiðslu
sína undanfarin ár. Fyrir-
tækinu hlotnaðist sá heiður
að vera kosið vínframleið-
andi ársins 2004 í Kaliforn-
íu. Þetta er sérstakur heið-
ur, þar sem framleiðendur
Kaliforníu kjósa hann úr
sínum röðum. Sömu aðilar
völdu shiraz-vínið hið besta
sinnar tegundar fimmta árið í
röð. Eins má geta þess að hinn
virti vínrýnir Robert Parker sá ást-
æðu til að taka sérstaklega fram að
Delicato-vínin væru góð viðbót við
gæðavínflóru Kaliforníu.
Delicato Shiraz hlaut nýverið við-
urkenninguna „Gyllta
glasið“ sem Vínþjóna-
samtök Íslands
veittu en það
voru keppendur
á Norðurlanda-
móti vínþjóna
sem völdu
vínin og var
Delicato eitt
af tíu vínum í
verðflokknum
1.200-1.500 kr.
sem hlutu viður-
kenninguna.
Vínið er dumb-
rautt, með angan
af grænum pipar
og lakkrís. Afar góð
fylling. Það er með
kraftmiklu bragði með
keim af leðri og í löngu
eftirbragðinu kemur
fram bragð af bláberj-
um og vanillu. Vínið er
kjörið með grillmat,
sérstaklega grísakjöti,
og piparsósa á eintak-
lega vel við það. Vínið er
afar gott með þroskuðum
ostum.
Verð í Vínbúðum
1.220 kr.
DELICATO: Besta shiraz Kaliforníu fimmta árið í röð
VEITINGASTAÐURINN
BABALÚ KAFFIHÚS
SKÓLAVÖRÐUSTÍG 22A, 101
REYKJAVÍK
Hvernig er stemningin? Eitt heim-
ilislegasta og notalegasta
kaffihús miðborgarinnar.
Eigendurnir tóku gam-
alt íbúðarhúsnæði og
innréttuðu upp á nýtt,
en sumt úr gömlu inn-
réttingunum fékk að halda sér. Hús-
gögnin eru sótt hingað og þangað,
stólarnir til dæmis í Stýrimannaskól-
ann, sem gefur staðnum gamaldags
en jafnframt flottan blæ.
Matseðillinn: Óvíða má finna betri
crepes, franskar pönnukökur, en á
Babalú. Þær eru bornar fram með
alls kyns ostum, skinku og eggjum
og bókstaflega bráðna á tungunni.
Auk þess státar staðurinn ávallt af
nýbökuðu baguette ásamt hinu
hefðbundna úrvali sem finna má á
kaffihúsum.
Vinsælast: Frönsku pönnukökurnar
og baguette-brauðin eru vinsælust á
matseðlinum. Staðurinn er opnaður
árla morguns og er opinn langt fram á
kvöld og eru pönnukökurnar vinsæl-
ar hvort sem er að morgni eða þegar
degi fer að halla. Þá er einnig hægt
að fá sér sætar crepes með hunangi,
sykri, súkkulaði eða rjóma en það
kostar álíka mikið og kaffibolli.
Réttur dagsins: Stundum er boðið
upp á súpu dagsins en yfirleitt er
hinn hefðbundni matseðill látinn
ráða. Pönnukökurnar kosta á bilinu
650 til 700 krónur en brauðin rétt
innan við 600 krónur.
Bestu crepes í
bænum
ÁSTARFLEYIÐ
FIMMTUDAGA KL. 21:00
FYLGSTU MEÐ!
����