Fréttablaðið - 17.11.2005, Blaðsíða 88
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000
edda.is
Fimm stjörnu bók – „Meistaralega vel sögð.“
„Hallgrímur Helgason er nístandi fyndinn og nastí við nútíma-
lífið okkar í nýrri skáldsögu sem er meistaralega vel
sögð ... þessi saga á brýnt erindi við stóran hóp lesenda.“
„Í Roklandi kraumar frásagnargleði og húmor.
Eldfjörugur söguþráðurinn er kryddaður með fjölmörgum
frábærum persónulýsingum, drepfyndnum og eðlilegum
samtölum og neyðarlegum uppákomum ... jafnmagnaðar
lýsingar á brjálsemi hafa ekki sést síðan í Englum alheimsins.“
Steinunn Inga Óttarsdóttir, Mbl.
„Erlendur klikkar ekki ... Arnaldur Indriðason sækir í sig veðrið
með hverri bók.“
Þórarinn Þórarinsson, Fbl.
„Vetrarborginni verður örugglega víða fagnað, og fer vísast í upplagi
hátt í þrjátíu þúsund eintök mörgum til skemmtunar.“
Páll Baldvin Baldvinsson, DV
„Fléttan í þessari sögu er ofin þráðum úr samfélaginu í ríkara mæli en
hefðbundnum krimmum.“
Ástráður Eysteinsson, Mbl.
„Fléttan er þétt og vandlega unnin og heldur lesandanum vel
við efnið ... Arnaldur sýnir hér mikla hæfni í sköpun andrúmslofts og
stemmningar og minnir Vetrarborgin að því leyti á Mýrina
og Grafarþögn.“
Gunnþórunn Guðmundsdóttir, bokmenntir.is
Bækur sem klikka ekki
Páll Baldvin Baldvinsson, DV
Bækur Arnaldar
koma út í 26 löndum
Gullrýtingurinn
2005
1. sæti
Allar bækur
Penninn Eymundsson
og Bókabú›ir MM
9. – 15. nóv.
3. sæti
Allar bækur
Penninn Eymundsson
og Bókabú›ir MM
9. – 15. nóv.
„Rokland er mikil skáldsaga, í senn eftirminnileg
persónusköpun og beitt úttekt á mótsögnum
samtímans.“
Jón Yngvi Jóhannsson, Kastljós
„Stórskemmtileg ... Hallgrímur fer á kostum í lestri
sínum yfir samtíðinni.“
Egill Helgason, Silfur Egils
Virtustu glæpasagna-
verðlaun heims
JÓNS GNARR
BAKÞANKAR
Nú er ég búinn að skrifa Bak-þanka hér í blaðið í rúmt
ár. Ég hef oft verið gagnrýndur
fyrir skrif mín. Sum gagnrýnin
er af misskilningi sprottin og
sumt er bara dónaskapur sem
ekki er svara verður. En ég vil
nota tækifærið og svara nokkr-
um atriðum.
ÉG var gagnrýndur harðlega
fyrir grein sem ég skrifaði um
þýðingu Biblíunnar. Þar sagði ég
að hátíðlegt málfarið væri snobb
og óþarfa þéringar. Það er víst
rangt og um að ræða einhverja
gamla íslenska málvenju sem ég
skil ekki alveg. Ég biðst velvirð-
ingar á því. Hér er menntunar-
leysi mínu og fljótfærni um að
kenna. En mér finnst samt að það
eigi að hætta að nota þetta mál-
far. Ég var líka gagnrýndur fyrir
það, í upphafi, að notast of mikið
við „maður“. „Maður er svona og
hinsegin.“ Ég er búinn að laga
það enda er það ljótur stíll.
ÉG hef líka verið gagnrýnd-
ur fyrir fullyrðingar mínar um
læknisfræði og heilsu. Allt sem
ég segi í þeim efnum, þar sem ég
vísa ekki til beinna heimilda eða
eigin innsæis, hef ég af doktor.
is. Ég reyni að fara aldrei með
staðlausa stafi.
MEST hef ég þó verið gagnrýnd-
ur fyrir að skrifa of mikið um
trúmál. Mörgum leiðist það til
lengdar og ég get vel skilið það.
Ég ræð bara stundum ekki við
mig. Ég er mikill aðdáandi Biblí-
unnar. Ég held að Biblíutal fari í
taugarnar á mörgum vegna þess
að þeir þekkja hana ekki nema
í gegnum fordómana sem þeir
hafa á henni. Ég held að fæstir
hafi lesið hana. Mér hafa stund-
um borist kurteisisleg bréf þar
sem ég er beðinn um að hætta
þessu endalausa trúarvæli. Ég
tek það til greina og reyni að
stilla því í hóf. Ég vil ekki verða
of einsleitur eða fyrirsjáanleg-
ur. Konan mín er líka dugleg
að benda mér á þegar ég er að
breytast í trúarbrjálæðing.
ÉG reyni eftir fremsta megni að
skrifa út frá hjartanu og skrifa
skemmtilega. En gagnrýni er
mjög góð og hefur hjálpað mér
að verða betri og skemmtilegri
pistlahöfundur. Ég bið afsökunar
alla sem ég hef móðgað, þ.e.a.s.
þá sem áttu það ekki skilið. Ég
vona að ég hafi engan sært. Ég
hvet alla sem vilja að senda mér
línu, hrós eða gagnrýni á net-
fangið: jongnarr@frettabladid.
is. Gagnrýni er að rýna til góðs.
Gagnrýni