Fréttablaðið - 17.11.2005, Blaðsíða 67
FIMMTUDAGUR 17. nóvember 2005
Ný North Face deild í Glæsibæ
SÍMI 545 2500 ::: WWW.SINFONIA.IS
Harmur stríðsins
Benjamin Britten ::: Sinfonia da Requiem
Dímítríj Sjostakovítsj ::: Sinfónía nr. 8
Hljómsveitarstjóri ::: Rumon Gamba
Listrænn stjórnandi Sinfóníuhljómsveitar Íslands,
Rumon Gamba, fer fyrir hljómsveitinni þegar mögnuð
og dramatísk verk verða flutt.
gul tónleikaröð í háskólabíói
Í KVÖLD, FIMMTUDAGSKVÖLD KL. 19.30Fít
o
n
/
S
Í
A
F
I
0
1
5
0
2
8
Tónleikakynning Vinafélagsins hefst kl. 18.00 í Sunnusal Hótel Sögu.
Árni Heimir Ingólfsson tónlistarfræðingur kynnir efnisskrá kvöldsins.
Verð 1.000 kr. Súpa og brauð innifalið. Allir velkomnir.
Síðasta máltíðinSýnt í Iðnó
"Drepfyndið."
Bergþóra Jónsdóttir - mbl
Næstu sýningar:
fös. 11.nóv. kl.20:00 í Bíóhöllinni á Akranesi
lau. 12.nóv. kl.17:00 í Iðnó
lau. 19.nóv. kl.17:00 í Iðnó
lau. 26.nóv. kl.17:00 í Iðnó
lau. 3.des. kl.17:00 í Iðnó
Miðasala í Iðnó í síma 562-9700,
idno@xnet.is og á www.midi.is
Hinsegin óperetta
KRINGLUKRáINKRINGLUK ÁIN
Landsbankinn er stoltur
bakhjarl sýningarinnar.
MIÐASALA: www.midi.is og í Iðnó s. 562 9700
ÉG ER MÍN EIGIN KONA
Næstu sýningar:
fim. 17.11 kl. 20 uppselt
fös. 18.11 kl. 20 ósóttir miðar í sölu
lau. 19.11 kl. 20 uppselt
sun. 20.11 kl. 20 ósóttir miðar í sölu
Ath. ósóttar pantanir seldar viku f. sýn.
Stærstu bókaforlög Bretlands hafa
barist um útgáfuréttinn á tveim-
ur bókum Yrsu Sigurðardóttur
rithöfundar, bæði Þriðja tákninu
sem er rétt nýkomin út og einnig
á næstu skáldsögu Yrsu sem enn
er óskrifuð.
„Þessi tíðindi eru miklu stærri
en maður þorir að segja,“ segir
Pétur Már Ólafsson hjá forlaginu
Veröld sem er útgefandi Yrsu hér
á landi. „Fyrst voru þetta sjö for-
lög og síðan þrjú sem buðu hvert
í kapp við annað, fyrst í eina
bók hennar og svo í tvær bækur.
Venjulega hafa menn bara gert sig
ánægðan með að fá útgefanda og
þegið það.“
Veröld hefur nú gengið frá
samningum við Hodder Headline,
næststærstu bókaútgáfu Bret-
lands, um útgáfu á bæði spennu-
sögunni Þriðja tákninu og einnig
á næstu bók Yrsu. Samningurinn
gildir um útgáfu bókarinnar í öllu
breska samveldinu, og þar með
hefur verið samið um útgáfu á
bókinni á tólf tungumálum.
Vegna þess hve ákafi bresku
forlaganna var mikill urðu for-
svarsmenn Veraldar að efna til
uppboðs á Þriðja tákninu milli
þeirra og stóð það í viku. Ekki
eru þekkt dæmi um slík uppboð í
Bretlandi þegar um íslenska höf-
unda er að ræða.
Í upphafi vildu sjö breskar bóka-
útgáfur kaupa réttinn á glæpasögu
Yrsu þegar Veröld kynnti bókina
fyrir forlögum á Bretlandseyj-
um. Eftir því sem útgáfurétturinn
hækkaði í verði heltust forlögin
smám saman úr lestinni og loks
stóðu þrjú eftir sem buðu hvert í
kapp við annað í Þriðja táknið og
næstu bók frá Yrsu.
Pétur Már segist ekki hafa
neina skýringu á velgengi Yrsu
aðra en þá sem höfð er eftir
útgáfustjóra Hodder Headline,
sem segir að „eitthvað alveg sér-
stakt“ sé við bækur Yrsu.
Áður en breski samningurinn
var staðfestur hafði verið geng-
ið frá samningum um útgáfu á
skáldsögu Yrsu Sigurðardóttir á
ellefu tungumálum, á þýsku, hol-
lensku, frönsku, ítölsku, spænsku,
norsku, sænsku, dönsku, finnsku,
grísku og litháísku, með útgáfu- og
sölurétti til yfir 30 landa. Nú bæt-
ist tólfta tungumálið, enska, við
og útgáfa og sala í um 70 löndum.
Bókin er því væntanleg á markað
í ríkjum Evrópu, Suður-Ameríku,
Afríku, Asíu og Eyjaálfu. Meðal
fjölmennra markaða utan Evrópu,
sem samningurinn við Hodder
tekur til, má nefna Suður-Afríku,
Ástralíu, Singapore, Pakistan og
Indland.
YRSA SIGURÐARDÓTTIR RITHÖFUNDUR Bresk bókaforlög hafa sýnt bókum hennar slíkan
áhuga að efna þurfti til uppboðs um útgáfusamninginn.
Bretar keppast um bækur Yrsu
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
NÓVEMBER
14 15 16 17 18 19 20
Fimmtudagur
■ ■ TÓNLEIKAR
19.30 Sinfóníuhljómsveit
Íslands flytur Sinfonia de Requiem
eftir Benjamin Britten og áttundu
sinfóníu Sjostakovitsj á tónleikum
sínum í Háskólabíói. Stjórnandi er
Rumon Gamba.
20.00 Ragnheiður Gröndal heldur
útgáfutónleika í Íslensku óperunni
ásamt tólf manna hljómsveit í tilefni
útgáfu geisladisksins After the Rain
sem 12 Tónar gefa út.
20.30 Kristjana Stefánsdóttir og
Agnar Már Magnússon flytja sígild
popplög í eigin djassútsetningum
á tónleikum, sem þau halda í Nýja
safnaðarheimilinu á Hellu í tengslum
við útgáfu nýrrar geislaplötu sem
nefnist Ég um þig. Auk þeirra
koma fram Valdimar Kolbeinn
Sigurjónsson bassaleikari og Scott
McLemore trommuleikari.
22.00 Benni Hemm Hemm heldur
tónleika í Þjóðleikhúskjallaranum
ásamt hljómsveit sinni. Nýútkomin
plata sveitarinnar hefur fengið
frábæra dóma í dagblöðum og á
netmiðlum.
■ ■ BÆKUR
20.00 Rithöfundarnir Reynir
Traustason, Guðrún Eva
Mínervudóttir, Óttar M. Norðfjörð
og Hreinn Vilhjálmsson lesa úr
nýjum bókum sínum á Súfistanum
við Laugaveg.
21.00 Árni Þórarinsson,
Jón Hallur Stefánsson,
Reynir Traustason, Súsanna
Svavarsdóttir, Viktor Arnar
Ingólfsson, Þráinn Bertelsson og
Ævar Örn Jósepsson lesa upp úr
nýútkomnum glæpasögum sínum
á árlegum upplestri Hins íslenska
glæpafélags á Grand Rokk. Seiðandi
djasstónar leika um eyru gesta á
undan upplestri, undir upplestri og
að lestri loknum.
Upplýsingar um viðburði og sýningar
sendist á hvar@frettabladid.is ekki
síðar en sólarhring fyrir birtingu.
1 dálkur 9.9.2005 15:17 Page 2