Fréttablaðið - 17.11.2005, Blaðsíða 45
FIMMTUDAGUR 17. nóvember 2005 11
samasem@samasem.is
Hlíðarsmára 11, Kópavogi s: 565 1504
Opið frá 11-18 virka daga. Laugardaga 11-15
Silkiblóm og gjafavara
VORUM AÐ FÁ
LEIÐISLUKTIR
VERÐ: 2100
Rafha eldavél, að sjálfsögðu. Hvað er
hafnfirskara?
Úr herbergi Siggu. Saumaskrínið á sínum
stað
Siggubær í Hafnarfirði er eitt
gott dæmi um heimili alþýðu-
fólks á síðustu öld.
Siggubær er lítið bárujárnsklætt
timburhús sem kúrir í hrauninu
rétt við Hellisgerði í Hafnarfirði.
Gluggar eru bara á göflum hans.
Hann er um 24 fermetrar að stærð
og skiptist í stofu, herbergi, eldhús,
gang og snyrtingu. Í upphafi var
hann enn minni en nú, en bíslag var
reist árið 1915. Bærinn var þó strax
í upphafi bústaður þriggja manna
fjölskyldu sem um tíma leigði auk
þess út eitt herbergi. Það voru
hjónin Erlendur Marteinsson og
Sigurveig Einarsdóttir sem byggðu
bæinn en hann heitir þó eftir dóttur
þeirra, Sigríði sem bjó þar alla sína
tíð og var merkiskona sem lagði
sitt lóð á vogarskálar verkalýðsbar-
áttunnar. Siggubær er nú í umsjón
Byggðasafns Hafnarfjarðar og er
opinn gestum og gangandi daglega
á sumrin og eftir samkomulagi á
veturna. Þar hefur litlu verið breytt
og er líkast því sem Sigga hafi rétt
sem snöggvast skroppið út að heilsa
upp á vinkonurnar eða rukka fyrir
Alþýðublaðið.
Eitt af heimilislegum hornum stofunnar.
Þar sem nægjusemin ríkti
Suðurgaflinn er prýddur mörgum myndum.
Mæðgurnar í húsinu, Sigríður Erlendsdóttir
og móðir hennar Sigurveig.
Siggubær stendur aðeins út í götuna sem skýrist af því að húsið kom fyrst og gatan á eftir.
Trén í garðinum eru meðal elstu trjáa bæjarins.
Kringlunni - sími : 533 1322
Vandaðar heimilis-
og gjafavörur
JÓLAKRANSAR
í miklu úrvali
verð frá 990.-
Vandaðar heimilis-
og gjafavörur