Fréttablaðið - 17.11.2005, Blaðsíða 8
8 17. nóvember 2005 FIMMTUDAGUR
Notkunarsvi›: Paratabs inniheldur parasetamól sem er verkjastillandi og hitalækkandi lyf. fia› er nota› vi›
höfu›verk, tannpínu, tí›averkjum o.fl. Einnig vi› sótthita af völdum inflúensu og annarra umgangspesta eins og
kvefs. Lyfi› inniheldur ekki ávanabindandi efni og hefur ekki sljóvgandi áhrif. Varú›arreglur: Fólk sem hefur
ofnæmi fyrir parasetamóli e›a er me› lifrarsjúkdóma má ekki nota lyfi›. N‡rna- og lifrarsjúklingum er bent á a›
rá›færa sig vi› lækni á›ur en fleir taka lyfi›. Of stór skammtur getur valdi› lifrarbólgu. Aukaverkanir: Parasetamól
veldur sjaldan aukaverkunum og flolist yfirleitt vel í maga. Langvarandi notkun lyfsins getur valdi› n‡rnaskemmdum.
Skömmtun: Nákvæmar lei›beiningar um skömmtun fylgja lyfinu. Ekki má taka stærri skammta en mælt er me›.
Lesi› vandlega lei›beiningar sem fylgja lyfinu. 13.07.05
Paratabs®– Öflugur verkjabani!
Jólin komin!
Ekki missa af frábærri
jólasýningu og skemmtun
Blómastofunnar við Eiðistorg
í kvöld kl: 18 - 22
VÍSINDI Unnið er að stofnun form-
legs samstarfsvettvangs Íslend-
inga, Norðmanna, Færeyinga og
Grænlendinga á sviði vetnisrann-
sókna. Verið er að huga að sameigin-
legum verkefnum en samtökin,
North Atlantic Hydrogen Associat-
ion, á að stofna formlega á fundi á
Grænlandi í ágúst á næsta ári.
Jón Björn Skúlason, fram-
kvæmdastjóri Íslenskrar nýorku,
segir að Nor-
ræna Atlants-
nefndin, NORA,
hafi styrkt verk-
efnið um 250.000
danskar krón-
ur, eða um sem
nemur tæpum
2,5 milljónum
króna. Íslensk
nýorka er tengi-
liður og þunga-
miðja samstarfs-
ins en Jón Björn
gerir ráð fyrir
því að samstarfs-
aðilum fjölgi
þegar á líður.
„Styrkurinn á að nægja til að koma
þessu af stað, en svo sjá samtökin
sjálf um fjármögnun í framtíðinni,“
segir hann og telur ýmislegt unnið
með samstarfinu við nágrann-
aþjóðir okkar. „Þessi lönd hafa
verið að skoða þann möguleika að
koma inn í vetnisheiminn. Græn-
land sótti meðal annars um aðild
að International Partnership for
Hydrogen Economy sem Ísland er
aðili að. Löndin hafa verið að leita
eftir upplýsingum til okkar og við
töldum rétt að koma á formlegum
samskiptum þarna á milli,“ segir
hann og bætir við að einnig hafi
verið horft til þess að betur hentaði
að taka þátt í víðtækara alþjóðlegu
samstarfi í félagi við þessi lönd.
„Það hefur meiri áhrif út á við og
svo opnar þetta möguleika á nýjum
verkefnum og eins aukna fjármögn-
unarmöguleika.“
Jón Björn segir lykilsamstarfið
eiga að felast í skiptum á upplýsing-
um, auk þess að setja af stað sam-
eiginleg verkefni sem nýtist öllum.
Hann segir með ráðum gert að
hafa ekki upphafsráðstefnuna hér
á landi, því með því að vera ann-
ars staðar megi kynna verkefnið
betur almenningi og fyrirtækjum.
„Hér er meiri þekking á þessu en
víða annars staðar. Svo höfum við
fundið fyrir mjög sterkum pólitísk-
um stuðningi við verkefnið í öllum
þessum löndum.“
olikr@frettabladid.is
Nýtt fjölþjóðlegt
samstarf um vetni
Unnið er að stofnun samráðsvettvangs Íslendinga, Grænlendinga, Færeyinga
og Norðmanna um vetnisrannsóknir. NORA, Norræna Atlantsnefndin, hefur
styrkt verkefnið um tæpar 2,5 milljónir króna. Íslensk nýorka er tengiliður hér.
VETNISSTRÆTÓ Í Reykjavík voru til skamms tíma á ferð strætisvagnar sem gengu fyrir vetni.
Hér má sjá fyllt á einn slíkan á vetnisstöð Skeljungs. Ísland hefur verið kallað kjörlendi
vetnisrannsókna vegna aðgengis að raforku. FRÉTTABLAÐIÐ/HARI
JÓN BJÖRN SKÚLA-
SON Jón Björn er
framkvæmdastjóri
Íslenskrar nýorku,
sem fer fyrir nýjum
fjölþjóðasamstarfs-
vettvangi á sviði
vetnisrannsókna.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
HEILBRIGÐISMÁL Óttar Guðmunds-
son geðlæknir telur gagnrýni
Önnu Kristjánsdóttur á forræðis-
hyggju og íhaldssemi heilbrigð-
isyfirvalda hvað varðar leiðrétt-
ingaraðgerðir á kyni óréttmæta
sleggjudóma. Hann segir það
ábyrgðarleysi af Önnu að fara
fram með þessa gagnrýni því að
um stórkostlegt inngrip í líf fólks
sé að ræða. Anna viti það best
sjálf.
„Þær reglur sem gilda hér
eru svo til orðrétt teknar upp
úr dönsku og sænsku reglunum.
Þegar það verða svo ótrúlega
miklar breytingar á lífi og högum
einnar manneskju verður að hafa
mjög ákveðnar reglur. Reynslan
hefur sýnt að slíkar aðgerðir hafa
mistekist. Fólk hefur séð eftir að
fara í aðgerðina og einstaklingar
hafa fyrirfarið sér vegna óham-
ingju eftir hana,“ segir hann.
Óttar segir að á Vesturlöndum
séu umsóknir transgender-fólks
skoðaðar af gaumgæfni og gagn-
rýni. Eðlilegt sé að gera ákveðn-
ar kröfur, til dæmis um að ein-
staklingar hafi náð ákveðnum og
aldri og þroska og hafi ákveðið
félagslegt net í kringum sig til
að geta tekist á við svo miklar
breytingar. - ghs
Geðlæknir um gagnrýni vegna kynskiptiaðgerða:
Eðlilegt að gera kröfur
KRÖFUR EÐLILEGAR Óttar Guðmundsson
geðlæknir telur eðlilegt að gera ákveðnar
kröfur áður en fólk fer í leiðréttingaraðgerð
á kyni. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
VEISTU SVARIÐ
1 Hvað heitir forsætisráðherra Íraks?
2Hverjir keyptu 34 prósenta hlut í Árvakri?
3Við hvaða lið er David Moyes, knatt-spyrnustjóri Everton, orðaður?
SVÖR Á SÍÐU 62
SJÓNVARP Nýja fréttastöðin hefur
útsendingar í dag. Það þýðir einnig
að fréttatími Stöðvar 2 í gær var sá
síðasti sem þar var gerður en hér
eftir munu kvöldfréttir frá NFS
vera á skjá stöðvarinnar á þessum
tíma.
Forsvarsmenn NFS kynntu í
gær hvers sjónvarpsáhorfendur
mættu vænta frá stöðinni. „NFS er
fyrsta fréttastöðin á Íslandi sem er
með fréttaútsendingar linnulaust
frá morgni til kvölds,“ sagði Sig-
mundur Ernir Rúnarsson frétta-
stjóri. „Íslendingar eru fréttaþyrst
þjóð og þrá það að fá fréttir beint í
æð og við ætlum að svara því kalli,“
bætti hann við.
Fréttatímar verða sendir út frá
klukkan sjö að morgni til ellefu að
kvöldi á heila og hálfa tímanum. Á
milli þeirra verða svo fréttatengdir
þættir. Jóhannes Kr. Kristjánsson
mun svo hafa umsjón með þætti
sem heitir Kompás en sá þáttur
verður byggður upp á rannsóknar-
blaðamennsku.
Sigurður Þ. Ragnarsson, betur
þekktur sem Siggi stormur, sagði
að á stöðinni yrði veðurvöktun og
veðurspá auk þess sem höfð yrði
samvinna við Vegagerðina um upp-
lýsingar um færð á vegum. „Það
verður því lítil veðurstofa hér á
fréttastöðinni,“ sagði Siggi storm-
ur svo það gustaði af honum. - jse
Nýja fréttastöðin, NFS, hefur útsendingar í dag:
Sjónvarpsstöð fyrir fréttaþyrsta þjóð
Í NÝJA FRÉTTASETTINU Róbert Marshall, Edda Andrésdóttir og Sigmundur Ernir Rúnarsson
munu héðan í frá flytja fréttirnar frá þessari nýju fréttastofu í Skaftahlíð.