Fréttablaðið - 17.11.2005, Blaðsíða 35
FIMMTUDAGUR 17. nóvember 2005 1
Glæsilegur
samkvæmisfatnaður
SKIPHOLTI 21 (NÓATÚNSMEGIN)
SÍMI 561 0847
TEXTÍLGALLERY
Margar konur upplifa það að passa
ekki í föt sem hönnuð eru á íðilfagr-
ar og súpergrannar fyrirsætur.
Ekki hafa allar konur kálfa á við
upphandlegg og reynist því erfitt að
finna stígvél sem passa. Annaðhvort
eru þau of þröng eða of víð og oft
er það einskær heppni að finna
fullkomnu stígvélin sem smellpassa.
Breska keðjan Buckles & Bows er
farin af stað með nýja hágæðalínu
af stígvélum. Hönnunarlínan miðar
að því að stærðin passi hverjum
einstaklingi, óháð ummáls
kálfans. Línan er fjöl-
breytt og endurspegl-
ar nýjustu skótískuna
í Evrópu en, sem eru
bestu tíðindin, er örlít-
ið ódýrari. Áhugasamir
geta skoðað vefsíðuna
www.bucklesand-
bows.co.uk og kynnt
sér betur þessi
skemmtilegu
stígvél.
skótíska }
Stígvél sem passa
SUMUM KONUN REYNIST ERFITT AÐ
FINNA STÍGVÉL SEM PASSA
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI
Vogue hefur
safnað fötum
eftir ýmsa
fræga hönnuði
og mun halda
söfnunarsölu í
lok nóvember.
Ritstjórar tíma-
ritsins Vogue hafa
hvatt til söfnun-
ar til styrktar
hjálparstarfinu
í Pakistan. Þeir
hafa beðið fræga
og smekklega
vini sína að gefa
föt á sérstaka
söfnunarsölu en
meðal þess sem
verður í boði
eru föt frá YSL,
Roland Mouret,
Prada, Mulberry,
Gharani Strok,
Chanel, Bur-
berry, Alexander
McQueen, Matthew
Williamson, Louis Vuitton og Alice
Temperley ásamt mörgum fleirum.
Peningarnir verða notaðir til að
kaupa skjól fyrir munaðarlaus börn
í Pakistan en þar mun verða mjög
kalt í vetur. Salan verður haldin í
London 29. nóvember og geta fata-
og merkjaóðir skellt sér í innkaupa-
ferð þangað út og styrkt gott mál-
efni um leið.
Ódýrar merkjavörur
fyrir fátæk börn
Föt eftir Alexander McQueen eru meðal þess sem verður á
sérstakri sölu í London.
Náttföt
15% afsláttur á náttfötum
til mánaðarmóta
Diza
Ingólfsstræti 6 • www.diza.is
opið 11-18 virka daga • 12-16 laugardaga
1 dálkur 9.9.2005 15:17 Page 2