Fréttablaðið - 17.11.2005, Blaðsíða 73
49FIMMTUDAGUR 17. nóvember 2005
góða skemmtun!
CYNIC GURU
„Þetta er ný Bítla-plata... ...á þessari plötu er að mínu viti lag
ársins, lagið Drugs... ...fjórar stjörnur...“
Andrea Jónsdóttir, Rás 2. Umfjöllun um plötu vikunnar í Popplandi
„Iceland er einfaldlega ein besta plata ársins og Cynic Guru er
komin í hóp minna uppáhaldshljómsveita. Platan er fersk, frumleg
og lætur afar vel í eyrum. Eftir að ég setti Iceland í spilarann er ég
nánast búinn að gleyma því hvernig á að skipta um disk.“
Snorri Sturluson X-fm 91.9
„Roland Hartwell, sem er Cynic Guru, er listamaður af Guðs náð.
Ef réttlætið ríkti ætti hann að fá gullplötur í flestum löndum
jarðkringlunnar.”
Guðni Már Henningsson, Rás 2.
„Kemur skemmtilega á óvart“
Matti...x-fm 91.9
KOMIN Í VERSLANIR
Á föstudagskvöldið var blásið til
íslenskrar veislu í Kaupmanna-
höfn. Heimildarmyndin Gargandi
snilld eftir Ara Alexander Magn-
ússon var sýnd fyrir fullu húsi og
hljómsveitin Apparat spilaði fyrir
bíógesti á eftir. Viðburðurinn var
hluti af heimildarmyndahátíðinni
cph:dox sem staðið hefur yfir und-
anfarnar tvær vikur.
Það reyndi hins vegar á þolinmæði
bíógesta því sýna þurfti myndina
í þremur bútum vegna bilunar á
DVD-diskum. Mátti heyra fuss
og svei um allan sal enda margir
pirraðir á viðvaningslegum vinnu-
brögðum starfsfólks. Aðrir gáfust
upp og biðu á barnum eftir því að
myndin kláraðist.
Meðlimum Apparat tókst hins
vegar að hressa miskáta bíógesti
við eftir myndina. Þessi íslenska
veisla heppnaðist því ágætlega. Í
það minnsta var ekki annað að sjá
en að gestirnir, sem flestir voru
íslenskir, væru ánægðir.
- KS
ARI ALEXANDER ERGIS
Gargandi snilld.
Gargandi snilld og Apparat
í Kaupmannahöfn
Hljómsveitin Apparat hélt uppi stuðinu í Köben.
leikari sem kom á kynnum okkar
og það var ást við fyrstu sýn hjá
mér. Ég skil hreint ekki í mér að
hafa ekki leitað fyrr út fyrir bæjar-
mörkin (skellihlær).
Sönn ást sem endaði í heilögu
hjónabandi í sumar.
Já, þetta er allt saman löglegt
(bendir hlæjandi á bumbuna). Við
vissum bara að við vildum alltaf
vera saman; korteri eftir að við
hittumst. Hann á tvö börn sem
eru hjá okkur aðra hverja helgi
og það er yndislega gaman. Mér
finnst ég í fyrsta sinn vera tilbúin
til að eignast barn núna og hlakka
óstjórnlega til.
Hvaða tónlist ertu að kynna fyrir
hinu ófædda barni?
Ég hlusta frekar lítið á tónlist
heima, en þarf endilega að fara að
skella Mahler á fóninn og kynna
barninu menningarlega tónlist
(hlær dátt).
Barnið fæðist á mörkum stein-
geitar og vatnsbera og þú ert tví-
buri. Ertu dæmigerður tvíburi?
Já, því ég er algjörlega tvískiptur
karakter. Þannig get ég klætt mig
eins og tvær gjörólíkar manneskj-
ur; verið annars vegar hefðbundin
og dömuleg, en hina stundina eins
og íþróttaálfurinn. Þá er ég mikil
öfgamanneskja og fer annað hvort
sex sinnum í viku í ræktina, eða
helli mér óskiptri í óhollustu og
leti.
Fyrir hvern er nýja platan?
Hún er fyrir breiðan hóp hlust-
enda sem hafa smekk fyrir flottum
lögum sem eru þægileg áheyrnar.
Ertu ánægð með útkomuna?
Já, og mjög stolt. Samt á ég alls
ekki auðvelt með að hlusta á sjálfa
mig syngja, en finnst það þó bæri-
legra „live“.
Hvernig sérðu framtíðina fyrir
þér?
Draumurinn er að halda áfram
að leika og syngja, og vera áfram
svo lánsöm að fá hlutverk sem eru
krefjandi og þroska mann. Nú hef
ég líka eignast líf fyrir utan leik-
húsið og það er mér mikils virði.
Áður gat ég ekki skilið hvernig
kollegar mínir gátu hugsað um
annað en leikhúsið, en verið með
hugann heima, en nú skil ég það
allt betur (brosmild).
Hvað verður það fyrsta sem
litla barnið fær að heyra með
mömmu?
Það verður einhver teiknimynd
sem ég hef ljáð rödd mína. Ég
á erfitt með að gera upp á milli
þeirra, en vel einhverja með góð-
um boðskap.
Það var Björn Ingi Hilm-
arsson leikari sem kom á
kynnum okkar Þorsteins
og það var ást við fyrstu
sýn hjá mér. Ég skil
hreint ekki í mér að hafa
ekki leitað fyrr út fyrir
bæjarmörkin.