Fréttablaðið - 17.11.2005, Blaðsíða 36
17. nóvember 2005 FIMMTUDAGUR2
Hafnarstræti 106, Akureyri, sími 462 4010
Ármúli 15, Reykjavík, 588 8050 • Grímsbæ v/Bústaðarveg S: 588 8488
Gott úrval af fallegum peysum.
Nýkomið: Buxur, peysur, toppar.
-20% afsláttur
á öllum fatnaði til jóla.
ÍSLENSKAR LEÐURVÖRUR Í
JÓLAGJAFIR TIL STARFSMANNA
OG VIÐSKIPTAVINA.
Heimagallar
verð 6990.-
Á heimasíðu skófyrirtækisins
Vans er hægt að hanna sína
eigin skó og fá þá senda með
póstkröfu.
Vans skór hafa verið geysilega vin-
sælir hér á Íslandi um langt skeið,
sérstaklega á meðal hjólabretta-
stráka og að sjálfsögðu stelpna.
Vans-skórnir byrjuðu hins vegar
fyrst að mala almennilega gull
hér á landi fyrir um tveimur
árum þegar klassísku óreim-
uðu strigaskórnir byrjuðu að
seljast eins og heitar lummur.
Skór með ýmsum munstrum
eins og til dæmis köflóttu,
hauskúpu og fleirum sjást
víða en því miður er erfitt
að fá skó sem enginn annar á og
því ósjaldan sem hægt er að sjá
fólk niðrí bæ í alveg eins skóm og
maður sjálfur er í.
Til að leysa þennan vanda er
hægt að fara á heimasíðu Vans og
útbúa sína eigin skó þar. Reyndar
er ekki hægt að hanna skóna frá
grunni heldur er hægt að breyta
lita- og munstursamsetningu að
vild. Þannig getur maður rölt um
alla heimsins bæi vitandi það að
skórnir sem maður gengur í eru
einstakir.
Hannaðu þína
eigin skó á netinu
Búðu til þína
einstöku skó á
netinu.
Metnaðarfull og óvenjuleg
tískusýning verður á Hótel
Borg á sunnudaginn.
Þrír hönnuðir standa fyrir metn-
aðarfullri og óvenjulegri tísku-
sýningu á Hótel Borg næsta
sunnudag. Auk tískusýningar-
innar verður boðið upp á lifandi
tónlist flutta af íslenskum kven-
blásarakvintett og tónlist samin
af Barða, sem löngum hefur verið
kenndur við Bang Gang, mun
einnig óma undir.
Listdans og kampavín verður
á boðstólum en kynnir verður
hin stórskemmtilega leikkona
Brynhildur Guðjónsdóttir.
Hönnuðirnir þrír sem sýna
munu föt sín eru þær Ásta Guð-
mundsdóttir og Ragna Fróða
fatahönnuðir og skartgripahönn-
uðurinn Guðbjörg K. Ingvadótt-
ir. Sýningin er í tengslum við
hönnunardaga í Reykjavík en er
sjálfstætt verkefni hönnuðanna
þriggja.
Þær sýna það nýjasta og heit-
asta úr smiðju sinni og hafa þær
fengið til liðs við sig úrval fag-
fólks á öllum sviðum. Auk þeirra
sem þegar hefur verið minnnst
á taka þátt þær Margrét Einars-
dóttir stílisti, Fríða María Harð-
ardóttir farðari og Dísa Ander-
mann sem er framkvæmdastjóri
sýningarinnar en hárgreiðslu
módelanna annast starfsfólk
Rauðhettu og úlfsins.
Hönnuðirnir þrír eru mjög
þekktir allar. Ásta Guðmunds-
dóttir sem er þýskmenntaður
hönnuður selur föt sín meðal ann-
ars í Kirsuberjatréinu. Fyrirtæki
hennar er ásta créative chlothes
og er staðsett á Laugavegi 25.
2004 var hún tilnefnd til Norrænu
hönnunarverðlaunanna, Nordisk
designpris.
Ragna Fróða rekur verslun
að Laugavegi 28 þar sem hönn-
un hennar, sem ber merkið Path
of Love er selt. Hún hefur tekið
þátt í fjölda sýninga heima og
erlendis.
Guðbjörg Kr. Ingvadóttir
skartgripahönnuður er mennt-
aður gullsmiður og skartgripa-
hönnuður. Hún rekur fyrirtækið
Aurum sem er í Bankastræti.
Hún hlaut menningarverðlaun
DV fyrir listhönnun 2001.
Tískusýningin hefst klukkan
15 en húsið opnar kl. 14.30.
Nánari upplýsingar um þessa
hönnuði er að finna á heimasíð-
unum www.astaclothes.is, www.
Menningarleg tískusýn-
ing á Hönnunardögum
Ásta Guðmundsdóttir hefur selt föt sín til ýmissa landa.
Ragna Fróða hannar fallegar og líflegar flíkur.
Skartgripir Guðbjargar Kr. Ingvadóttur hafa
víða vakið athygli.
SKARTHÚSIÐ
Laugavegi 12, s. 562 2466
Sendum í póstkröfu
Ný sending af
PILGRIM skarti