Fréttablaðið - 17.11.2005, Blaðsíða 4
4 17. nóvember 2005 FIMMTUDAGUR
Kristín Gísladóttir sjúkraþjálfari aðstoðar við val
á réttri dýnu alla fimmtudaga á milli kl. 16 og 18.
Opið virka daga: 10-18
Reykjavík: Mörkin 4, s: 533 3500
140 milljónir í veisluhald Sænska
áfengiseinkasalan Systembolaget hélt
veislu fyrir starfsmenn sína sem kostaði
jafnvirði um 140 milljóna króna. Stjórn-
málamenn í stjórnarandstöðu gagnrýna
þessa meðferð á skattpeningum og telja
kostnaðinn langt fyrir ofan velsæm-
ismörk. Þetta kom fram í vefútgáfu
Expressen.
SVÍÞJÓÐ
GENGIÐ
GENGI GJALDMIÐLA 16.11.2005
Gengisvísitala krónunnar
61,88 62,18
106,85 107,37
72,31 72,71
9,695 9,751
9,248 9,302
7,523 7,567
0,5178 0,5208
87,86 88,38
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
USD
GBP
EUR
DKK
NOK
SEK
JPY
XDR
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
KAUP SALA
102,3065
FANGAFLUG Yfirvöld í hinum ýmsu
Evrópuríkjum þrýsta nú á Banda-
ríkjastjórn að svara fyrir meint
fangaflug á vegum bandarísku
leyniþjónustunnar CIA um loft-
helgi og flugvelli viðkomandi
landa.
Talsmaður norska utanríkis-
ríkisráðuneytisins sagði í gær að
bandaríska sendiráðið í Noregi
hefði neitað því að einkaþota, sem
lenti á Óslóarflugvelli í júlí síð-
astliðnum, hefði verið í leynileg-
um erindagjörðum fyrir CIA eða
aðra bandaríska stjórnarstofnun.
Þotan, með einkennisnúmerið
N50B, er á lista sem bandarískir
fjölmiðlar hafa birt yfir flugvélar
sem sagðar eru oft notaðar af CIA
til að flytja fanga sem bandarísk
yfirvöld hafa grunaða um aðild
að hryðjuverkum eða íslömskum
öfgasamtökum. Sama þota, sem
er af gerðinni Gulfstream, er
einnig sögð hafa átt viðkomu á
Keflavíkurflugvelli.
Deilt var um hið meinta fanga-
flug um sænska lögsögu á sænska
þinginu í fyrradag. Lars Ohly, for-
maður Vinstriflokksins, skoraði
á ríkisstjórn Görans Persson að
upplýsa allt sem henni er kunn-
ugt um ferðir umræddra flugvéla
um sænska flugvelli og lofthelgi.
Talsmaður stjórnarinnar, Lars
Danielsson, sagði hins vegar að
stjórnin vissi ekkert um flug á
vegum CIA í Svíþjóð. Sænska TT-
fréttastofan hafði áður greint frá
því að a.m.k. tvær flugvélar sem
talið væri að hefðu verið notaðar
til fangaflugs fyrir CIA hefðu lent
á sænskum flugvöllum á síðustu
þremur árum.
Yfirvöld á Spáni hafa hafið
formlega rannsókn á því hvað
hæft er í fullyrðingum um að
flugvélar í slíkum leynilegum
fangaflutningum á vegum CIA
hafi ítrekað lent á spænskum
flugvöllum. José Antonio Alonso,
innanríkisráðherra Spánar, til-
kynnti þetta á þriðjudag. Hann
sagði í sjónvarpsviðtali að reynd-
ust þessar frásagnir réttar myndi
það hafa alvarlegar afleiðingar
fyrir samskiptin við Bandaríkin.
Að sögn spænskra fjölmiðla hefur
CIA einkum notað flugvöllinn á
Mallorca til millilendinga. Slíkar
lendingar hafi verið að minnsta
kosti tíu á tímabilinu frá janúar
2004 til janúar síðastliðins.
Þingmenn tveggja flokka á
þinginu í Portúgal kröfðu í gær
ríkisstjórnina svara vegna frétta
um að tvær meintar CIA-fanga-
flutningavélar hefðu sést á flug-
völlunum í Porto og Tires við
Lissabon.
Getgátur um að CIA reki leyni-
leg fangelsi í Austur-Evrópu og
flytji fanga með leynd fram og
aftur um evrópska lofthelgi voru
líka ræddar á Evrópuþinginu í vik-
unni. Skorað var á framkvæmda-
stjórn Evrópusambandsins að
rannsaka ásakanirnar. Franco
Frattini, sem fer með dómsmál
í framkvæmdastjórninni, tjáði
þinginu að það væri komið undir
ríkisstjórnum hvers aðildarríkis
fyrir sig að rannsaka málið.
audunn@frettabladid.is
Krefja CIA um svör
Stjórnvöld margra Evrópuríkja þrýsta nú á yfirvöld í Washington að upplýsa
um meint fangaflug á vegum bandarísku leyniþjónustunnar CIA um evrópska
flugvelli og lofthelgi. Fátt hefur orðið um svör fram til þessa.
Á PALMA-FLUGVELLI Yfirvöld á Spáni hafa fyrirskipað rannsókn á lendingum meintra fangaflutningavéla CIA á flugvellinum á Mallorca.
MYND/AP
ÞÓRA ÁKADÓTTIR Þóra skipaði annað sæti
á lista sjálfstæðismanna í síðustu kosn-
ingum og hefur verið forseti bæjarstjórnar
Akureyrar frá árinu 2001. FRÉTTABLAÐIÐ/KK
AKUREYRI Þóra Ákadóttir, bæjar-
fulltrúi Sjálfstæðisflokksins og
forseti bæjarstjórnar Akureyrar,
hefur ákveðið að taka ekki sæti á
framboðslista Sjálfstæðisflokks-
ins vegna bæjarstjórnarkosning-
anna á næsta ári.
„Vissulega kom til álita að halda
áfram þessu stjórnmálastarfi,
enda er það bæði gefandi og
skemmtilegt. Niðurstaðan var
hins vegar sú að láta gott heita
þegar yfirstandandi kjörtímabili
lyki og gefa þar með öðrum færi á
að spreyta sig á vettvangi bæjar-
málanna, segir Þóra.
- kk
Sjálfstæðismenn á Akureyri:
Forseti bæjar-
stjórnar hættir
KJARASAMNINGAR Félagar í Starfs-
mannafélagi Garðabæjar felldu
kjarasamning við bæinn nú
nýlega.
177 greiddu atkvæði og var það
88 prósenta þátttaka. Nei sögðu
93, já sögðu 64. Auðir seðlar voru
20. Þetta þýðir að samningurinn
er felldur og munu samningsaðil-
ar því endurmeta stöðuna og hitt-
ast fljótlega aftur. - ghs
Starfsmenn Garðabæjar:
Höfnuðu nýjum
kjarasamningi
FANGAFLUG „Að mínum dómi eru
þessi svör alls ekki fullnægjandi
enda er þeirri spurningu ósvarað
hvort umræddir flutningar hafi
átt sér stað eða ekki,“ sagði Geir
H. Haarde utanríkisráðherra á
Alþingi í gær. Orð Geirs voru í
svari hans við fyrirspurn Stein-
gríms J. Sigfússonar um hvort
órnvöld ætluðu sér að koma í veg
fyrir flug um íslenska lofthelgi
með fanga sem væru pyntaðir við
yfirheyrslur.
Helgi Hjörvar gerði athuga-
semd við svör utanríkisráðherra
og sagði þjóðina meðseka í mál-
inu vegna framgöngu og þátttöku
stjórnvalda í innrásinni í Írak.
„Er ráðherrann svo hræddur við
að herinn sé að fara að hann þorir
ekki að anda á Bandaríkjamenn?
Eða er það kannski af því að við
erum meðsek?“ spurði Helgi.
Á svipuðum tíma lenti á Reykja-
víkurflugvelli flugvél sem er í
eigu Devon Holding and Leasing.
Fréttastofa Stöðvar 2 fullyrti í
fréttatíma í gærkvöldi að fyrirtæki
þetta stundaði flutninga á föngum
fyrir bandarísku leyniþjónustuna
CIA. Áhöfn vélarinnar vildi ekki
tjá sig við fréttamanninn.
Í frétt í þýska dagblaðinu Die
Tageszeitung fyrr í vikunni er
fullyrt að vitað sé um 67 lendingar
meintra CIA-fangaflutningavéla á
Íslandi, en íslensk stjórnvöld vilji
ekkert við þær kannast. Að sögn
blaðsins er Ísland aðalmillilend-
ingarstaður þessara flugvéla. - saj
Meint fangaflugvél lenti í Reykjavík í gær á sama tíma og utanríkisráðherra svaraði fyrirspurn um fangaflug:
Svör Bandaríkjamanna eru ófullnægjandi
FRAKKLAND, AP Ástandið í óeirða-
hrjáðum hverfum franskra borga
er nú að færast í „nærri eðlilegt
horf“ að því er talsmenn franskra
lögregluyfirvalda greindu frá í
gær. Í fyrrinótt voru spellvirki
framin í 79 sveitarfélögum en þau
voru um 300 þegar óeirðaaldan
var í hámarki. Í dag eru liðnar
þrjár vikur frá því hún hófst.
Efri deild franska þingsins
lagði í gær blessun sína yfir fram-
lengingu á gildistíma neyðarlaga
fram í febrúar. Þau sættu einnig
gagnrýni. Vinstriblaðið Liberation
sagði þau jafngilda gjaldþrots-
yfirlýsingu stjórnvalda gagnvart
þeim félagslegu vandamálum sem
undir lægju. - aa
Óeirðirnar í Frakklandi:
Ástandið er
nærri eðlilegt
LÖG OG REGLA Rúmlega tíu þúsund
lögreglumenn eru á vakt hverja nótt í
„óeirðahverfum“ franskra borga.
Fjarðaál án rafmangs Rafmagn
fór af framkvæmdasvæði Fjarðaáls á
Reyðarfirði í um klukkutíma í gærkvöldi.
Stöðvaðist vinna á svæðinu á meðan.
Rafmagn fór einnig af starfsmannaþorp-
inu en þar búa í kringum sjö hundruð
manns. Rafmagnsleysið má rekja til
bilunar í dreifikerfi RARIK.
AUSTFIRÐIR
FANGAFLUGVÉL Í REYKJAVÍK Hér sést flugvélin sem lenti í Reykjavík í gær. Hún er í eigu
fyrirtækisins Devon Holding and Leasing en fullyrt hefur verið að fyrirtækið sjái um fanga-
flug fyrir bandarísku leyniþjónustuna. FRÉTTABLAÐIÐ/E.ÓL.