Fréttablaðið - 17.11.2005, Page 45

Fréttablaðið - 17.11.2005, Page 45
FIMMTUDAGUR 17. nóvember 2005 11 samasem@samasem.is Hlíðarsmára 11, Kópavogi s: 565 1504 Opið frá 11-18 virka daga. Laugardaga 11-15 Silkiblóm og gjafavara VORUM AÐ FÁ LEIÐISLUKTIR VERÐ: 2100 Rafha eldavél, að sjálfsögðu. Hvað er hafnfirskara? Úr herbergi Siggu. Saumaskrínið á sínum stað Siggubær í Hafnarfirði er eitt gott dæmi um heimili alþýðu- fólks á síðustu öld. Siggubær er lítið bárujárnsklætt timburhús sem kúrir í hrauninu rétt við Hellisgerði í Hafnarfirði. Gluggar eru bara á göflum hans. Hann er um 24 fermetrar að stærð og skiptist í stofu, herbergi, eldhús, gang og snyrtingu. Í upphafi var hann enn minni en nú, en bíslag var reist árið 1915. Bærinn var þó strax í upphafi bústaður þriggja manna fjölskyldu sem um tíma leigði auk þess út eitt herbergi. Það voru hjónin Erlendur Marteinsson og Sigurveig Einarsdóttir sem byggðu bæinn en hann heitir þó eftir dóttur þeirra, Sigríði sem bjó þar alla sína tíð og var merkiskona sem lagði sitt lóð á vogarskálar verkalýðsbar- áttunnar. Siggubær er nú í umsjón Byggðasafns Hafnarfjarðar og er opinn gestum og gangandi daglega á sumrin og eftir samkomulagi á veturna. Þar hefur litlu verið breytt og er líkast því sem Sigga hafi rétt sem snöggvast skroppið út að heilsa upp á vinkonurnar eða rukka fyrir Alþýðublaðið. Eitt af heimilislegum hornum stofunnar. Þar sem nægjusemin ríkti Suðurgaflinn er prýddur mörgum myndum. Mæðgurnar í húsinu, Sigríður Erlendsdóttir og móðir hennar Sigurveig. Siggubær stendur aðeins út í götuna sem skýrist af því að húsið kom fyrst og gatan á eftir. Trén í garðinum eru meðal elstu trjáa bæjarins. Kringlunni - sími : 533 1322 Vandaðar heimilis- og gjafavörur JÓLAKRANSAR í miklu úrvali verð frá 990.- Vandaðar heimilis- og gjafavörur

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.