Fréttablaðið - 17.11.2005, Síða 88

Fréttablaðið - 17.11.2005, Síða 88
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000 edda.is Fimm stjörnu bók – „Meistaralega vel sögð.“ „Hallgrímur Helgason er nístandi fyndinn og nastí við nútíma- lífið okkar í nýrri skáldsögu sem er meistaralega vel sögð ... þessi saga á brýnt erindi við stóran hóp lesenda.“ „Í Roklandi kraumar frásagnargleði og húmor. Eldfjörugur söguþráðurinn er kryddaður með fjölmörgum frábærum persónulýsingum, drepfyndnum og eðlilegum samtölum og neyðarlegum uppákomum ... jafnmagnaðar lýsingar á brjálsemi hafa ekki sést síðan í Englum alheimsins.“ Steinunn Inga Óttarsdóttir, Mbl. „Erlendur klikkar ekki ... Arnaldur Indriðason sækir í sig veðrið með hverri bók.“ Þórarinn Þórarinsson, Fbl. „Vetrarborginni verður örugglega víða fagnað, og fer vísast í upplagi hátt í þrjátíu þúsund eintök mörgum til skemmtunar.“ Páll Baldvin Baldvinsson, DV „Fléttan í þessari sögu er ofin þráðum úr samfélaginu í ríkara mæli en hefðbundnum krimmum.“ Ástráður Eysteinsson, Mbl. „Fléttan er þétt og vandlega unnin og heldur lesandanum vel við efnið ... Arnaldur sýnir hér mikla hæfni í sköpun andrúmslofts og stemmningar og minnir Vetrarborgin að því leyti á Mýrina og Grafarþögn.“ Gunnþórunn Guðmundsdóttir, bokmenntir.is Bækur sem klikka ekki Páll Baldvin Baldvinsson, DV Bækur Arnaldar koma út í 26 löndum Gullrýtingurinn 2005 1. sæti Allar bækur Penninn Eymundsson og Bókabú›ir MM 9. – 15. nóv. 3. sæti Allar bækur Penninn Eymundsson og Bókabú›ir MM 9. – 15. nóv. „Rokland er mikil skáldsaga, í senn eftirminnileg persónusköpun og beitt úttekt á mótsögnum samtímans.“ Jón Yngvi Jóhannsson, Kastljós „Stórskemmtileg ... Hallgrímur fer á kostum í lestri sínum yfir samtíðinni.“ Egill Helgason, Silfur Egils Virtustu glæpasagna- verðlaun heims JÓNS GNARR BAKÞANKAR Nú er ég búinn að skrifa Bak-þanka hér í blaðið í rúmt ár. Ég hef oft verið gagnrýndur fyrir skrif mín. Sum gagnrýnin er af misskilningi sprottin og sumt er bara dónaskapur sem ekki er svara verður. En ég vil nota tækifærið og svara nokkr- um atriðum. ÉG var gagnrýndur harðlega fyrir grein sem ég skrifaði um þýðingu Biblíunnar. Þar sagði ég að hátíðlegt málfarið væri snobb og óþarfa þéringar. Það er víst rangt og um að ræða einhverja gamla íslenska málvenju sem ég skil ekki alveg. Ég biðst velvirð- ingar á því. Hér er menntunar- leysi mínu og fljótfærni um að kenna. En mér finnst samt að það eigi að hætta að nota þetta mál- far. Ég var líka gagnrýndur fyrir það, í upphafi, að notast of mikið við „maður“. „Maður er svona og hinsegin.“ Ég er búinn að laga það enda er það ljótur stíll. ÉG hef líka verið gagnrýnd- ur fyrir fullyrðingar mínar um læknisfræði og heilsu. Allt sem ég segi í þeim efnum, þar sem ég vísa ekki til beinna heimilda eða eigin innsæis, hef ég af doktor. is. Ég reyni að fara aldrei með staðlausa stafi. MEST hef ég þó verið gagnrýnd- ur fyrir að skrifa of mikið um trúmál. Mörgum leiðist það til lengdar og ég get vel skilið það. Ég ræð bara stundum ekki við mig. Ég er mikill aðdáandi Biblí- unnar. Ég held að Biblíutal fari í taugarnar á mörgum vegna þess að þeir þekkja hana ekki nema í gegnum fordómana sem þeir hafa á henni. Ég held að fæstir hafi lesið hana. Mér hafa stund- um borist kurteisisleg bréf þar sem ég er beðinn um að hætta þessu endalausa trúarvæli. Ég tek það til greina og reyni að stilla því í hóf. Ég vil ekki verða of einsleitur eða fyrirsjáanleg- ur. Konan mín er líka dugleg að benda mér á þegar ég er að breytast í trúarbrjálæðing. ÉG reyni eftir fremsta megni að skrifa út frá hjartanu og skrifa skemmtilega. En gagnrýni er mjög góð og hefur hjálpað mér að verða betri og skemmtilegri pistlahöfundur. Ég bið afsökunar alla sem ég hef móðgað, þ.e.a.s. þá sem áttu það ekki skilið. Ég vona að ég hafi engan sært. Ég hvet alla sem vilja að senda mér línu, hrós eða gagnrýni á net- fangið: jongnarr@frettabladid. is. Gagnrýni er að rýna til góðs. Gagnrýni
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.