Fréttablaðið - 03.05.2006, Page 2

Fréttablaðið - 03.05.2006, Page 2
2 3. maí 2006 MIÐVIKUDAGUR VELFERÐ UMHVERFI NÝSKÖPUN Ólafur F. Magnússon, læknir og borgarfulltrúi 1 sæti „ Tryggjum að Reykjavíkurflugvöllur verði áfram í Vatnsmýrinni.“ LÍFEYRISSJÓÐIR Íslendingar og Norð- menn hafa ekki innleitt tilskipun um lífeyrissjóði frá ESB þó að frestur til þess hafi runnið út í lok september. Norðmenn hafa óskað eftir meiri tíma til að innleiða til- skipunina. Tilskipunin snýr ekki að sjóðum með skyldubundna aðild. Maríanna Jónasdóttir, skrif- stofustjóri í fjármálaráðuneytinu, segir að tilskipunin breyti litlu fyrir Íslendinga þar sem hún snúi fyrst og fremst að starfstengdum lífeyrissjóðum þar sem atvinnu- rekendur og launþegar hafi sjálf- viljugir gert samninga um lífeyr- istryggingar. - ghs ESB-tilskipun um lífeyrissjóði: Fresturinn er útrunninn Dæmdur fyrir ölvun og glæfra- akstur Þrjátíu og fimm ára gamall maður missir ökuréttindi sín í fimm mánuði fyrir glæfraakstur. Lögreglan handtók manninn eftir að hafa mælt hann á 132 kílómetra hraða. Maðurinn reyndist ölvaður. Honum er gert að greiða 90 þús- und krónur í sekt á næstu fjórum vikum, ella sitja inni í átta daga. HÉRAÐSDÓMUR FUGLAFLENSA Niðurstöður úr rann- sókn á rúmlega 100 sýnum úr fuglahræjum og fuglasaur sem send voru utan nýlega bárust síð- degis í gær. Þau reyndust öll nei- kvæð, að sögn Halldórs Runólfs- sonar yfirdýralæknis. Hátt á annað hundrað sýni hafa verið send utan og hafa þau öll reynst neikvæð. Spurður hvort menn væru ekki orðnir bjartsýnir á að fuglaflensan kæmi ekki hing- að til lands kvað yfirdýralæknir erfitt að fullyrða um slíkt. Hún hefði ekki fundist í Bretlandi eða Noregi og það væru góð tíðindi. Vissulega yrðu menn vonbetri með hverjum deginum sem liði, en of snemmt væri að fullyrða neitt. -jss Yfirdýralæknir um fuglaflensu: Yfir hundrað sýni neikvæð STJÓRNMÁL Stjórnarandstæðingar veittust hart að ríkisstjórninni á þingi í gær fyrir skerðingu vaxta- bóta enda kæmi hún heimilum og ekki síst efnaminna fólki sérlega illa með aukinni greiðslubyrði samfara verðlagshækkunum. Þetta kom fram í umræðum um breytingar á tekjuskatti fyrir- tækja sem fjármálaráðherra mælti fyrir í gær, en það miðar að sveiflu- jöfnun við útreikninga á tekju- skatti af gengishagnaði. Pétur H. Blöndal, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, sagði að vaxtalækkun banka á húsnæðis- markaði gerði meira en að vega upp það sem fjölskyldur töpuðu með skerðingu vaxtabóta. „Auðvit- að áttu þingmenn að vera vakandi yfir því þegar fasteignaverð hækk- aði svona mikið og hækka mörkin í vaxtabótakerfinu gagnvart eign- um.“ Atli Gíslason, vinstri grænum sagði að almenningi bráðlægi á leiðréttingu vegna sveiflna. Hækk- un fasteignamats og verðhækkun á fasteignum hefði leitt til skerð- ingar á vaxtabótum sem lýsa mætti sem tifandi tímasprengju. Hann tók dæmi af einstakling- um sem hann liðsinnti við skatt- framtöl. Skerðingin yrði umtals- verð þegar álagningarseðlar bærust í sumar. „Það setur fjár- hagsáætlanir þeirra og íbúðakaup í uppnám,“ sagði Atli og spurði hvers vegna ekki hefði verið séð fyrir því að skerða ekki vaxtabæt- urnar. Atli tilfærði dæmi af einstæðri móður með tvö börn sem fengið hefði fullar vaxtabætur, samtals 207 þúsund krónur árið 2005. Skuldir og vaxtagjöld hennar nú væru nánast þau sömu en fast- eignamat hefði hækkað um 4,1 milljón króna milli ára. Við þetta hefði, með einu pennastriki, verð á eignum hennar hækkað með þeim afleiðingum að hún fengi ekki neinar bætur nú. Annað dæmi hafði Atli af tæplega fimmtugum manni sem fékk liðlega 150 þús- und króna vaxtabætur í fyrra en fengi engar í ár vegna hækkunar á eignum. „Hér er atvinnulífinu komið til hjálpar sem er dæmigert fyrir rík- isstjórnina. Hagstjórnin nær til þess,“ sagði Atli. Margir stjórnarandstæðingar tóku í sama streng og töldu ekkert síður auðvelt að koma til móts við heimilin í landinu eins og fyrirtæk- in líkt og gera ætti í frumvarpi fjár- málaráðherra. johannh@frettabladid.is Þúsundir heimila missa vaxtabætur Hækkun fasteignaverðs og fasteignamats þurrkar út tugi og hundruð þúsunda króna vaxtabætur hjá þúsundum heimila. Pétur H. Blöndal, Sjálfstæðisflokki, segir að þing- ið hefði mátt vera á varðbergi. Stjórnarandstæðingar gagnrýna stjórnvöld hart. ATLI GÍSLASON PÉTUR H. BLÖNDAL HÆKKUN FASTEIGNAVERÐS Veruleg hækk- un fasteignaverðs útilokar að óbreyttu þúsundir einstaklinga frá vaxtabótum og rýrir kjör sem því nemur. DÓMSMÁL Aðalmeðferð í máli Tryggva Lárussonar, sem hlaut sex ára fangelsi fyrir þátt sinn í innflutningi á tæplega átta kílóum af amfetamíni í fyrra, hefst 18. maí. Tryggvi, sem hefur verið í gæsluvarðhaldi í fimmtán mán- uði, var ákærður að nýju þar sem það þótti ekki afdráttarlaust í dómi héraðsdóms að Tryggvi hefði verið í Hollandi á þeim tíma sem fíkniefnin voru keypt þar. Tryggvi hefur haldið því fram að hann hafi verið á Hróarskeldu- hátíðinni í Danmörku á þeim tíma sem fíkniefnin voru keypt í Hol- landi. - mh Réttarhöld í Dettifossmálinu: Ákærður á ný Bush hittir ekki Stoltenberg Hvíta húsið hefur sent forsætisráðherra Noregs, Jens Stoltenberg, tilkynningu þess efnis að forsetinn sé of upptekinn næstu mánuðina til að hitta forsæt- isráðherrann. Telja norskir ráðamenn líklegra að ástæðan liggi í ákvörðun Stoltenbergs um að draga norska hermenn heim frá Írak, frekar en annríki Bandaríkjaforseta. NOREGUR SKIPULAGSMÁL Svæði það sem hestamannafélagið Gustur hefur nú undir hesthúsabyggð sína mun fara undir verslunar- og þjón- ustuhúsnæði, að sögn Gunnars I. Birgissonar, bæjarstjóra í Kópa- vogi. „Það er að hefjast vinna við drög að skipulagi á þessu svæði,“ segir Gunnar. „Við verðum að hafa það á hreinu til að geta reiknað dæmið rétt út. Við vitum ekki ennþá hversu mikið rúmast af byggð á því, en það verður all- tént það mikið að það kemur rétt út úr dæminu fyrir Kópavogs- bæ.“ Spurður um hver staðan væri á eignarhaldi lóða sem á stæðu hús er „uppkaupsmenn“ hefðu keypt á sínum tíma segir Gunnar að Gustur hefði gert samkomu- lag við „uppkaupsmennina“ um að neyta forkaupsréttar á þeim 40 prósentum húsa í hverfinu sem þeir hefðu keypt. Forráða- menn félagsins hefðu síðan leit- að til bæjarins um samvinnu í þessu máli. Gunnar segir enn fremur að verið sé að skipuleggja nýtt svæði fyrir Gust á Kjóavöllum. Áætlað sé að ljúka því í sumar. Þá sé hægt að byrja að byggja þar á þessu ári, þannig að Gustsfélagar flytji 2007-2008. Áætlað sé að hefja bygginga- framkvæmdir á núverandi svæði um leið og hægt er. - jss GUNNAR I. BIRGISSON Bæjarstjórinn í Kópavogi með tillögu að nýju deiliskipulagi fyrir svæðið. Hann segir Gust fá landsvæði á Kjóavölllum og skipu- lagning þess sé hafin. Gustssvæðið verður nýtt undir verslunar- og þjónustuhúsnæði: Vinna við skipulag að hefjast LÖGREGLA Stúlka með tveggja mán- aða ökuleyfi velti jeppa er hún beygði af Suðurlandsbraut yfir á Vesturlandsveg til vesturs í gær. Fjórir jafnaldrar stúlkunnar voru í bílnum en enginn slasaðist alvarlega. Stúlkan fékk skurð á handlegg og hnykk á háls. Einn farþeganna kenndi eymsla í hné og fékk hnykk á háls. Hinir fengu skrámur. Gert var að sárum þeirra á slysadeild. Lögreglan í Reykjavík rann- sakar orsök veltunnar, en allir voru allsgáðir í bifreiðinni. - gag Bílslys á Suðurlandsvegi: Fimm sluppu vel úr veltu BIFREIÐIN VALT Sautján ára ökumaður og jafnaldar hans sluppu vel þegar bifreiðin valt. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN SPURNING DAGSINS? Páll, eiga landsmenn að fá afnot af afnotagjöldunum? Þeir fá afnot af þeim á hverju kvöldi. Hugsanlegt er að Ríkisútvarpinu verði gert að endurgreiða hluta afnotagjalda ef Eftir- litsstofnun EFTA kemst að þeirri niðurstöðu að RÚV hafi þegið ólöglega ríkisaðstoð á árunum 1997 til 2005. Páll Magnússon er útvarpsstjóri. KELDUR Sýni úr fuglahræjum og fuglasaur bárust til landsins í gær. OLÍUVERÐ Árni M. Mathiesen fjár- málaráðherra lagði fram frum- varp til breytinga á lögum um olíugjald í gær þar sem lagt er til að tímabundin lækkun olíugjalds verði framlengd í hálft ár, eða til 31. desember 2006. „Ég held að það sé ekki skynsamlegt fyrir okkur að gera ráðstafanir sjálf til að hækka verð á eldsneyti,“ segir Árni en jafnframt að ekki séu for- sendur til að skoða frekari lækk- anir núna. Samkvæmt lögum um olíugjald frá 2004 skal olíugjald vera 45 krónur á hvern lítra. Á þessu ákvæði laganna var gerð sú breyt- ing í júlí 2005 að gjaldið var lækk- að í 41 krónu í sex mánuði og voru aðstæður á mörkuðum ástæðan. Þessi lækkun var síðar framlengd til 1. júlí 2006. „Ef við horfum á tímabilið frá því að olíugjaldið var sett á árið 2005 og til dagsins í dag þá hefur rekstur á meðalstórum flutninga- bíl hækkað um sjö krónur á hvern ekinn kílómetra,“ segir Tryggvi Þór Ágústsson, forstöðumaður flutningasviðs Samtaka verslunar og þjónustu. Hann telur að slíkur bíll aki um hundrað þúsund kílómetra á ári svo aukinn kostnaður vegna olíu- verðshækkana er sjö hundruð þús- und krónur á hvern flutningabíl á einu ári. Þessi kostnaður getur hækkað um fjögur hundruð þús- und krónur á ári á hvern bíl ef tímabundin lækkun olíugjalds væri ekki framlengd. - shá Fjármálaráðherra lagði fram nýtt lagafrumvarp í gær: Olíugjaldið mun ekki hækka Á KEYRSLU Vegna eldsneytishækkana er 700 þúsund krónum dýrara að keyra flutningabíl 100 þúsund kílómetra í dag en það var fyrir ári.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.