Fréttablaðið - 03.05.2006, Side 6
6 3. maí 2006 MIÐVIKUDAGUR
���������������������������������������������������������������������
�������������
������������
���������������
������������������������������������������������������������������
����
�����
�����
�
LAGERSALA
50%
AFSLÁTTUR
AF ÖLLU !
OPIÐ 11-19
FELLSMÚLA 28
(GAMLA WORLD CLASS HÚSINU)
KJÖRKASSINN
Óttastu frjálsa för verkafólks
hingað til lands?
já 63,2
nei 36,8
SPURNING DAGSINS Í DAG
Eru hátíðarhöld vegna 1. maí
tímaskekkja?
Segðu þína skoðun á Vísir.is
ALÞINGI Útilokað er að
Alþingi ljúki 4. maí. Í dag
eða á morgun skýrist vænt-
anlega hvenær þingi verður
frestað og hvort samkomu-
lag næst milli stjórnar og
stjórnarandstöðu. Ögmund-
ur Jónasson, þingflokks-
formaður vinstri-grænna,
segir ekkert benda til þess
að ríkisstjórnin vilji ná sam-
komulagi.
„Mjög þungskýjað og
skyggni slæmt, útilokað að sjá út úr
augum.“ Þannig lýsir Ögmundur
Jónasson, formaður þingflokks
vinstri-grænna, horfunum á Alþingi
núna og segir ríkisstjórnina verða
að gera upp við sig hvernig hún
vilji hafa þinghaldið þar sem hún
hafi hafnað öllu samkomulagi um
lyktir þingsins.
Í dag verður fundur með for-
mönnum þingflokkanna og forseta
þingsins og þá næst hugsanlega
niðurstaða hvenær þingi lýkur
fyrir sumarið. Á fundi í gær áttu
sér stað viðræður um að gera hlé á
laugardag og koma saman aftur
eftir sveitarstjórnarkosningar.
Landsbyggðarþingmenn þrýsta á
að komast heim í kosningabarátt-
una.
„Ef þetta verður raunin þá veit
maður ekki hvaða mál fara í gegn.
Þá eru fimm vikur eftir og það er
langur tími,“ segir Magnús Þór
Hafsteinsson, formaður þingflokks
Frjálslynda flokksins.
„Pókerinn er í gangi og menn
sitja með pókerfés,“ segir Hjálmar
Árnason, formaður þingflokks
Framsóknarflokksins. „Miðað við
þann fjölda þingmála sem eftir er
má ætla að það eigi eftir að dragast
því að ekki er búið að ná samkomu-
lagi. Spurning er hvort tekið verði
til óspilltra málanna eftir
kosningar.“
Líklegt er að frumvarpið
um RÚV nái í gegn fyrir
helgi enda er það tilbúið í
þriðju umræðu. Það mætir
þó gríðarlegri andstöðu, sér-
staklega meðal þingmanna
vinstri-grænna. Arnbjörg
Sveinsdóttir, formaður þing-
flokks Sjálfstæðisflokksins,
segir frumvarpið um RÚV
fullklárað mál, „engin
ástæða er til að ætla annað en að
það klárist,“ segir hún.
Nefndadagur er í dag og má
búast við að bæði ágreiningsmál og
samkomulagsmál komi úr nefnd-
um. Margrét Frímannsdóttir, for-
maður þingflokks Samfylkingar-
innar, telur ríkisstjórnina leggja
áherslu á RÚV og frumvarp við-
skiptaráðherra um Nýsköpunar-
miðstöðina.
Önnur stór mál, sem áhersla er á
að afgreiða, eru fjölmiðlafrum-
varpið, frumvarp um málefni sam-
kynhneigðra, Flugmálastjórn,
Landhelgisgæsluna og lax- og
silungsveiði. ghs@frettabladid.is
Mögulegt að Alþingi
fundi eftir kosningar
Útilokað er að Alþingi ljúki á morgun. Allt stefnir í að hlé verði gert á laugar-
dag og þingmenn komi aftur saman eftir kosningar svo að landsbyggðarþing-
menn komist í kosningabaráttuna. Samkomulag er ekki í loftinu.
ÖGMUNDUR
JÓNASSON
HJÁLMAR
ÁRNASON
ARNBJÖRG
SVEINSDÓTTIR
STJÓRNMÁL „Mér finnst athyglis-
vert að sama fólkið og talar um að
stjórnsýslan verði að laga sig að
breyttum aðstæðum setur sig svo
upp á móti öllu þegar þar að
kemur,“ segir Valgerður Sverris-
dóttir iðnaðarráðherra.
Frumvarp hennar um að steypa
Byggðastofnun, Rannsóknarstofn-
un byggingariðnaðarins og Iðn-
tæknistofnun í eina sæng Nýsköp-
unarmiðstöðvar, fer til enn einnar
umræðu í iðnaðarnefnd Alþingis í
dag. Samkvæmt heimildum verð-
ur reynt að afgreiða það úr nefnd-
inni sem er forsenda þess að frum-
varpið verði að lögum á
yfirstandandi þingi eins og Val-
gerður gerir sér vonir um.
Óvíst er hvort það næst enda
hafa flestir sérfræðingar sem
fyrir nefndina hafa komið lagst
gegn því en Valgerður vill meina
að misskilnings ríki hjá mörgum.
„Það verður að horfa á heildar-
hagsmunina í þessu. Frumvarpið á
að einfalda stuðningskerfi við
atvinnulífið frá því sem nú er og
samræma betur atvinnuþróunar-
starfsemi víða um landið. Þannig
fæst fram ein stefna í þessum
málum og það tel ég forsendu til
að ná árangri í framtíðinni. - aöe
Ráðherra segir misskilnings gæta vegna frumvarps um Nýsköpunarmiðstöð:
Forsenda góðs árangurs
ÞINGFUNDUR Formenn þingflokkanna og forseti þings koma saman til fundar í dag þar sem hugsanlega næst niðurstaða hvenær þinglok
verða fyrir sumarið.
KANNANIR „Athugasemdirnar hafa
með það að gera að samkeppnis-
aðilar og Gallup kynna tölur um
áhorf á aðalfréttatíma NFS án
þess að reikna út heildaráhorf á
öllum stöðvum,“ segir Sverrir
Agnarsson hjá 365 miðlum.
Samkvæmt síðustu könnun
IMG Gallup á sjónvarpsáhorfi
landsmanna kemur fram að áhorf
á aðalfréttatíma Nýju frétta-
stöðvarinnar, NFS, hafi verið rúm
27 prósent að meðaltali yfir vik-
una þegar reyndin er að saman-
lagt áhorf mældist um 33,24 pró-
sent. Segir Sverrir að sú prósenta
sé fengin með því að leggja saman
áhorf á alla miðla sem fréttatími
NFS er sendur út á. „Rúmlega 27
prósenta áhorf mælist þegar
aðeins er mælt áhorf á útsend-
ingu Stöðvar 2 þegar reyndin er
sú að fréttatíminn er einnig send-
ur út á Sirkus og á stöð NFS.
Raunverulegt áhorf er því sam-
anlögð sú tala en ekki eingöngu
áhorfið á fréttatímann á Stöð 2.“
Fréttir NFS eru í mikilli sókn
samkvæmt þessum niðurstöðum
en þess má geta að umrædd könn-
un var gerð áður en NFS fékk
aðgang að dreifikerfi Símans sem
auka mun dreifingu stöðvarinnar
verulega.
Gert er ráð fyrir að 85 prósent
heimila í landinu nái sendingum
stöðvarinnar innan skamms
tíma. - aöe
NÝJA FRÉTTASTÖÐIN Útsending fréttatíma
NFS næst á þremur stöðvum en mælingar
fara aðeins fram á einni þeirra.
Áhorf á fréttir NFS meira en kannanir gefa til kynna:
Raunáhorf ríflega 33 prósent
SLYS Sex tonna steypuplata féll á
starfsmann Ístaks á Keflavíkur-
flugvelli um kaffileytið í gær. Var
í fyrstu talið að um mjög alvarlegt
vinnuslys væri að ræða og var
maðurinn fluttur í skyndi með
sjúkrabíl til Reykjavíkur.
Að sögn læknis á slysadeild
Landspítalans er hreint með ólík-
indum hve vel maðurinn slapp en
hann var sendur heim að lokinni
skoðun, með lítilsháttar mar og
skrámur.
Röð sérkennilegra atburða varð
til þess að manninn sakaði lítið
sem ekkert að sögn læknisins sem
telur það hreint og klárt krafta-
verk. - sdg
Fékk sex tonn á sig og slapp:
Kraftaverk að
ekki fór verr