Fréttablaðið - 03.05.2006, Síða 34
MARKAÐURINN 3. MAÍ 2006 MIÐVIKUDAGUR6
Ú T L Ö N D
Jón Aðalsteinn Bergsveinsson
skrifar
Æðstu stjórnendur þriggja bílaframleiðenda í
Bandaríkjunum munu funda með George W. Bush,
forseta Bandaríkjanna, 18. maí næstkomandi og
ræða við hann um orku- og lífeyrissjóðsmál og um
að fara að nota bensínblöndu til að draga úr eftir-
spurn eftir hefðbundnu eldsneyti.
Að sögn bandaríska dagblaðsins New York Times
er um að ræða stjórnendur hjá General Motors,
Ford og Chrysler Group. Bílaframleiðendurnir eru
sagðir hafa lengi leitað eftir því að ræða við for-
setann vegna óhagstæðrar stöðu þeirra á heima-
markaði. Fyrirtækin öll hafa tapað umtalsverðri
markaðshlutdeild í Bandaríkjunum og skilað tapi í
kjölfar harðnandi samkeppni við erlenda bílafram-
leiðendur, ekki hvað síst frá Japan. Á meðal þess
sem staðið hefur í bílaframleiðendunum eru auknar
lífeyrissjóðsskuldbindingar, sem leggjast þungt á
fyrirtækin og hafa skilað sér í dýrari bílum. Segja
þeir að japanskir bílaframleiðendur glími ekki við
sama vanda og því séu japanskir bílar ódýrari.
Þá hyggjast bílaframleiðendurnir ræða við
forsetann um notkun etanólblandaðs eldsneytis,
sem kallast E85, en það er talið minnka þörf
Bandaríkjamanna fyrir hefðbundið eldsneyti. Ford
og General Motors hafa framleitt bíla með vélum
fyrir eldsneytisblönduna og Chrysler greindi frá því
í síðustu viku að fyrirtækið hefði í hyggju að hefja
framleiðslu á slíkum bílum. Hins vegar eru engar
reglugerðir til í Bandaríkjunum um verðlagningu á
slíku eldsneyti auk þess sem engar bensínsstöðvar
selja slíkan orkugjafa. Vona bílaframleiðendurnir
að með fundinum verði stigið skref í þá átt að fjölga
bílum sem ganga fyrir blöndu af etanóli og hefð-
bundnu bensíni og muni niðurstaðan verða sú að
eftirspurn eftir hefðbundnu eldsneyti minnki.
Að sögn New York Times hefur forsvarsmönnum
erlendra bílaframleiðenda, s.s. Toyota, ekki verið
boðið til fundarins. Toyota er um þessar mundir að
opna sjöttu verksmiðjuna í Bandaríkjunum og leit-
ar eftir staðsetningu fyrir sjöundu verksmiðjuna.
General Motors og Ford hafa á sama tíma neyðst til
að draga saman seglin, loka verksmiðjum og segja
upp fjölda starfsfólks.
Bílaframleiðendur
ræða við Bush
Bandarískir bílaframleiðendur vilja minnka eftirspurn eftir
hefðbundnu eldsneyti
GEORGE BUSH Bandarískir bílaframleiðendur vilja ræða við forsetann um erfiðleika sína og upptöku eldsneytisblöndu.
Hagnaður bandaríska hugbún-
aðarrisans Microsoft Corp.
jókst um 16 prósent á síðasta
ársfjórðungi. Helsta ástæða
aukningarinnar er meiri eftir-
spurn fyrirtækja og einstaklinga
eftir hugbúnaði fyrirtækisins. Í
afkomuspá fyrirtækisins kemur
hins vegar fram að hagnaður
fyrirtækisins hafi verið minni
en sérfræðingar gerðu ráð fyrir.
Í kjölfarið lækkaði gengi hluta-
bréfa í fyrirtækinu um sex pró-
sent á fjármálamörkuðum á Wall
Street vegna þessa.
Að sögn bandarískra fjár-
málasérfræðinga er mikil þróun
í gangi innan veggja fyrirtækis-
ins og dregur það úr vexti fyr-
irtækisins. Þá sé von á nokkru
meiri vexti fyrirtækisins á næstu
tveimur árum en fjöldi nýrra
forrita frá Microsoft munu líta
dagsins ljós á árinu. Þar á meðal
er nýjasta stýrikerfið, Windows
Vista. - jab
Microsoft undir
væntingum
BILL GATES, STOFNANDI OG STJÓRN-
ARFORMAÐUR MICROSOFT Hagnaður
Microsoft var undir væntingum fjármálasér-
fræðinga á síðasta ári.
Klara Furse, forstjóri
Kauphallarinnar í Lundúnum í
Bretlandi (LSE), skrifaði Vladimír
Pútín, forseta Rússlands, bréf í
síðustu viku þar sem hún skamm-
aði hann fyrir að koma í veg
fyrir að bandaríski fjárfestirinn
William Browder geti sinnt starfi
sínu í Rússlandi.
Browder, sem hefur breskt
vegabréf, stýrir einum stærsta
hlutabréfasjóði Rússlands,
Hermitage Capital Management,
sem meðal annars er stór hlut-
hafi í rússneska gasfyrirtækinu
Gazprom. Hann var stöðvaður
á Sheremetyevo-flugvellinum í
Moskvu í nóvember síðastliðnum
og meinað að koma inn í landið af
öryggisástæðum. Honum hefur
enn ekki verið hleypt inn í land-
ið þrátt fyrir tilraunir ýmissa
ráðamanna, svo sem Jacks Straw,
utanríkisráðherra Bretlands.
Í afriti af bréfi Furse, sem
breska fjármálablaðið Financial
Times hefur komist yfir, segir að
ef hindra eigi starf eins stærsta
fjárfestis í Rússlandi þá séu það
mjög neikvæð skilaboð og geti
komið í veg fyrir að aðrir fjár-
festar hugsi sig tvisvar um áður
en þeir kaupa í rússneskum fyr-
irtækjum.
Stjórn LSE vildi hvorki játa
því né neita hvort forstjóri
Kauphallarinnar hefði sent bréf-
ið til Pútíns. - jab
Pútín skammaður
WILLIAM BROWDER Browder stýrir
einum stærsta hlutabréfasjóði Rússlands
en hefur verið meinað að koma til landsins
síðan í nóvember.
Sala á lófatölvum hefur minnkað
mikið og er spáð að salan muni
halda áfram að dragast saman á
næstunni.
Samkvæmt upplýsingum
samtakanna Handheld Qview,
sem safna upplýsingum um sölu
á lófatölvum, seldust 1,5 milljón-
ir stykkja á fyrsta ársfjórðungi
2006. Það er 22,3 prósenta sam-
dráttur frá sama tíma í fyrra.
Á síðasta ári seldust 7,5 millj-
ón lófatölvur en það er 16,7 pró-
sentum minna en árið 2004.
Samdrátturinn varð mestur
á fyrsta ársfjórðungi 2006 hjá
hátæknifyrirtækjunum Dell, sem
hefur 11,4 prósenta markaðshlut-
deild á lófatölvumarkaðnum,
og Hewlett-Packard, sem hefur
26,2 prósenta markaðshlutdeild.
Sala á lófatölvum dróst saman
um 33,8 prósent hjá Dell en 30,3
prósent hjá Hewlett-
Packard. Þriðji
stóri framleiðandi
lófatölva í heim-
inum er Acer, sem
hefur 6,5 prósenta
markaðshlutdeild en
sala á lófatölvum dróst
saman um 10,8 prósent
hjá fyrirtækinu á fyrsta
ársfjórðungi. Eina fyrirtæk-
ið sem horfði fram á betri tíð var
hátæknifyrirtækið Mio, sem jók
sölu á lófatölvum um 84,4 pró-
sent á fyrstu þremur mánuðum
ársins. Fyrirtækið hefur einung-
is 3 prósenta hlutdeild á markaði
með lófatölvur.
Talið er að ástæðan fyrir sam-
drætti í sölu á lófatölvum sé sú
að farsímar eru orðnir full-
komnari og geta orðið fram-
kvæmt flest það sem hægt
er að gera með lófatölv-
um. - jab
Minni sala á lófatölvum
LÓFATÖLVA Sala á lófatölvum
hefur dregist saman milli ára.
Stjórn bandaríska fjármála-
eftirlitsins, SEC, hefur lagt til
breytingar á lögum um launa-
kjör stjórnenda hjá fyrirtækj-
um í Bandaríkjunum. Markmið
breytinganna er að draga fram í
dagsljósið kaupréttarákvæði, líf-
eyrisgreiðslur, og önnur hlunn-
indi stjórnenda fyrirtækjanna
til að svipta hulunni af raun-
verulegum launakjörum þeirra.
Búist er við því að hluthafar fyr-
irtækjanna verði ánægðir með
breytingarnar sem vonast er til
að verði að lögum á næsta ári.
Mörg fyrirtæki hafa þegar
gert launakjör stjórnendanna
gegnsærri, en önnur fyrirtæki
reyna enn hvað þau geta til að
fela þau með flóknum bókhalds-
klækjum, að mati SEC, sem
hefur þrýst á fyrirtæki síðast-
liðin 14 ár að fá skýrari upplýs-
ingar um raunveruleg kjör og
hlunnindi stjórnenda fyrirtækja
í Bandaríkjunum. - jab
Skýrari launakjör
BANDARÍKJADOLLARAR Bandaríska
fjármálaeftirlitið vill gera launakjör stjórn-
enda hjá fyrirtækjum gegnsærri.