Fréttablaðið - 03.05.2006, Qupperneq 58
MARKAÐURINN 3. MAÍ 2006 MIÐVIKUDAGUR14
NÝJASTA TÆKNI OG VÍSINDI
Hópur manna í Massachusetts í
Bandaríkjunum, sem andsnúinn
er Microsoft, hefur hrint í fram-
kvæmd átaki sem á að stuðla að
því að fá netverja til að hætta að
nota Internet Explorer-vafrann
frá Microsoft og fara
að rápa um netið
með Firefox-
vafranum frá
Mozilla. Átakið
nefnist Explorer
Destroyer.
F o r s v a r s -
menn hópsins
segja marga hafa
lengi langað til að
skipta um vafra. Nú
sé rétti tíminn til þess
því þeir fái borgað fyrir ómakið.
Hópurinn nýtir sér nýtt tól frá
Google til þess arna, en hver
sá sem fer á vefsvæði Google
og sækir sér þaðan vafrann frá
Firefox fær greiddan 1 banda-
ríkjadal, jafnvirði rétt
tæpra 75 króna.
V e f s v æ ð i
hópsins er www.
e x p l o r e r -
destroyer.com.
- jab
Átak gegn Microsoft
MERKI FIREFOX Þeir
sem vilja skipta um
vafra fá 75 krónur fyrir
ómakið.
Jón Aðalsteinn Bergsveinsson
skrifar
Svo virðist sem vinsældir hryllingsmyndarinnar
Silent Hill, sem byggir á samnefndum tölvuleik
frá árinu 1999, hafi ýtt heldur betur við kvik-
myndaframleiðendum í Bandaríkjunum. Myndin
var frumsýnd í Bandaríkjunum um þarsíðustu
helgi og skilaði 20,2 milljónum dala í kassann
fyrstu sýningarhelgina. Um þessar mundir er
verið að ræða um framhald kvikmyndarinnar.
Sjö kvikmyndir, sem byggðar eru á tölvuleikj-
um, eru nú í vinnslu og vonast menn eftir meiri
aur í kassann þrátt fyrir að aðlögun tölvuleikja
fyrir hvíta tjaldið hafi alla jafna ekki gefist vel.
Myndirnar sem um ræðir eru DOA: Dead
or Alive, sem frumsýnd verður í ágúst og á
næsta ári verða frumsýndar myndirnar Halo,
sem Peter Jacksson, leikstjóri þríleiksins um
Hringadróttinssögu og risaapann King Kong
framleiðir, og Spy Hunter. Þá er búist við að
seint á næsta ári verði þriðja myndin frumsýnd,
sem gerð er eftir tölvuleikjunum óhugnanlegu,
Resident Evil. Sömuleiðis er í vinnslu gerð kvik-
myndar sem byggir á tölvuleik sem fjallar um
Lísu og ævintýri hennar eftir að hún sneri aftur
frá Undralandi. Auk þessa er Paul W. S. Anderson,
sem leikstýrði Resident Evil: Apocalypse, sagður
vera að gera kvikmynd eftir leiknum Castlevania,
sem fjallar um heila fjölskyldu af vampírubönum
sem eltir uppi vampíruna Drakúla. Enn hefur
ekkert verið gefið upp um væntanlegan frum-
sýningardag en búist er við að myndin nái álíka
vinsældum og Silent Hill.
Þeir sem fylgst hafa með þróun tölvuleikja og
kvikmyndaaðlögunar segja að tölvuleikjaunnend-
ur bíði spenntir eftir kvikmyndum sem gerðar séu
eftir tölvuleikjum og sé næsta öruggt að þær slái í
gegn á meðal fólks á aldrinum 18 til 35 ára.
Engin kvikmynd sem gerð hefur verið eftir
tölvuleik hefur náð jafn miklum vinsældum og
kvikmyndin Lara Croft: Tomb Raider, sem frum-
sýnd var árið 2001 og skilaði 131 milljón banda-
rískra dala í kassann.
Kvikmyndagerðarmenn eru sagðir bíða spennt-
ir eftir næstu kynslóð leikjatölva á borð við
PlayStation 3 og fleiri gerðum en öll myndvinnsla
er sögð verða mun betri en tölvuleikjaunnendur
hafa fram til þessa átt að venjast.
Paul W. S. Anderson, leikstjóri Castlevaniu,
segir að þar sem leikirnir komi til með að líkjast
kvikmyndum að gæðum þá verði kvikmyndagerð-
armenn að koma til móts við nýja tækni með betri
kvikmyndaaðlögun.
Fleiri leikir í bíó
Kvikmyndaframleiðendur telja að myndir sem byggja á tölvuleikjum
verði vinsælar á næstu árum.
ÚR TÖLVULEIKNUM DOOM 3 Samnefnd kvikmynd eftir þess-
um vinsæla tölvuleik var frumsýnd á síðasta ári.
Skólar í Bretlandi eiga í mesta
basli með tölvukost sinn, að því
er fram kemur í árlegri skýrslu
Becta, ríkisstofnunar sem hefur
umsjón með tölvumálum breskra
menntastofnana, sem kemur út
í vikunni. Í skýrslunni kemur
fram að þótt tölvum hafi stór-
fjölgað í breskum skólum þá hafi
lítið gerst síðustu árin og eru
tölvur orðnar allt að þriggja ára
gamlar í mörgum þeirra.
Þá segir að nemendum hafi
fjölgað meira en sem nemur
fjölgun tölva í breskum skólum
síðastliðin ár og og því séu marg-
ir nemendur um hverja tölvu. Í
breskum barnaskólum eru rúm-
lega sex nemendur um hverja
tölvu en í breskum gagnfræða-
skólum deila 3,7 nemendur með
sér einni tölvu. - jab
Gamlar tölvur
GAMLAR TÖLVUR Í INNKAUPAKERRU
Yfirvöld í Bretlandi telja að of gamlar tölvur
séu í mörgum breskum skólum.
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
-
6
0
8
1
LÆGRI KOSTNAÐUR
FYRIR ÞITT FYRIRTÆKI
FYRIRTÆKJAVILD
GLITNIR KYNNIR FYRIRTÆKJAVILD
Fyrirtækjavild samanstendur af bankaþjónustu Glitnis, fjármögnunar-
þjónustu hjá Glitni Fjármögnun og tryggingaþjónustu hjá Sjóvá.
Fyrirtækjavild eykur fríðindi þeirra fyrirtækja sem nýta sér heildarþjónustu
bankans. Þjónustan skiptist í þrjú stig eftir umfangi viðskipta
– Vild, Gullvild og Platínumvild.
• Betri kjör
• Betri þjónusta
• Aukin fríðindi
• Afsláttarkjör
• Heildaryfirsýn yfir fjármálin í Fyrirtækjabankanum
• Aukin þægindi með banka og tryggingar á sama stað
Kynntu þér kosti Fyrirtækjavildar hjá fyrirtækjafulltrúum
okkar í síma 440 4000 eða á glitnir.is.
FJÁRHAGSLEG VELGENGNI ÞÍN
ER OKKAR VERKEFNI