Fréttablaðið - 03.05.2006, Blaðsíða 60
MARKAÐURINN
ÚTGÁFUFÉLAG: 365 – prentmiðlar RITSTJÓRI: Hafliði Helgason RITSTJÓRN: Eggert Þór Aðalsteinsson, Hólmfríður Helga Sigurðardóttir, Jón Aðalsteinn Bergsveinsson, Óli Kristinn Ármannsson
AUGLÝSINGASTJÓRI: Jónína Pálsdóttir RITSTJÓRN OG AUGLÝSINGAR: Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík AÐALSÍMI: 550 5000 SÍMBRÉF: 550 5006 NETFÖNG: ritstjorn@markadurinn.is og aug-
lysingar@markadurinn.is VEFFANG: visir.is UMBROT: 365 – prentmiðlar PRENTVINNSLA: Ísafoldarprentsmiðja ehf. DREIFING: Pósthúsið ehf. dreifing@posthusid.is Markaðinum er dreift
ókeypis með Fréttablaðinu á heimili á höfuðborgarsvæðinu, Suðurnesjum og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Markaðurinn áskilur sér rétt til að
birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds.
eggert@markadurinn.is l haflidi@markadurinn.is l holmfridur@markadurinn.is l
jonab@markadurinn.is l olikr@markadurinn.is
Sögurnar... tölurnar... fólkið...
3. MAÍ 2006 MIÐVIKUDAGUR16
S K O Ð U N
U M V Í Ð A V E R Ö L D
Mikill kraftur og elja hefur
einkennt framgöngu íslensks
athafnafólks undanfarin ár.
Upp úr 1990 hófu íslensk fyr-
irtæki að hasla sér völl í æ
ríkari mæli á erlendri grund.
Fjármálastofnanir hér á landi
hafi stutt dyggilega við bakið
á þessum frumkvöðlum. Þær
hafa jafnframt samhliða styrkt
undirstöður eigin starfsemi með
fjölgun starfstöðva erlendis,
fjölgun tekjustofna með nýjum
starfssviðum og með ráðningu
hæfra starfsmanna. Mikil hækk-
un á hlutabréfum íslenskra fyrir-
tækja undanfarin ár endurspegl-
ar þessa þróun. Allir landsmenn
hafa notið góðs af þeim ávinn-
ingi. Þar af leiðir að allir hafa hag
af því að svo verði áfram. Það
traust sem íslenskt viðskiptalíf
nýtur erlendis er fjöregg þjóð-
arinnar. Falli skuggi á það traust
er það ekki einkamál fjármála-
stofnana og athafnafólks. Málið
varðar okkur öll.
FLEIRI FJÖREGG
Landsmenn eru hluthafar í
íslenskum fyrirtækjum með bein-
um hætti og í gegnum réttindi
og eignir í lífeyrissjóðakerfinu.
Einkar vel hefur tekist til við upp-
byggingu lífeyriskerfisins með
sjóðssöfnun. Þannig er hverjum
og einum gert skylt að leggja fyrir
jafnóðum til að mæta útgreiðsl-
um þegar komið er á eftirlauna-
aldur. Gegnumstreymiskerfi,
sem er andstæða sjóðssöfnunar,
hefur verið við lýði í mörgum
af nágrannalöndum okkar um
langt skeið. Það hefur leitt til
þess að lífeyrissjóðakerfið þar
er á brauðfótum. Við blasir ekk-
ert nema þrot, þar sem fólk á
vinnumarkaði þarf að standa
undir greiðslum til stöðugt
vaxandi hóps eftirlaunaþega.
Heildareignir íslenskra lífeyris-
sjóða voru tæplega 1200 millj-
arðar króna um síðustu áramót.
Enginn ætti því að þurfa að horfa
öfundaraugum til annarra þjóða
sem sumar hverjar búa einnig
yfir digrum sjóðum.
STIGIÐ Á TÆR
Það ætti að vera öllum ljóst hverj-
ir hafa farið fremstir í flokki í
útrás íslenskra fyrirtækja sem
aukið hefur velmegun hér á landi.
Tal um að of geyst hafi verið
farið og nú beri að hægja á ber
vott um lítinn skilning á aðstæð-
um. Nær væri að hvetja fólk til
frekari afreka með hagstæðara
skattumhverfi atvinnurekstrar
til jafns við það sem best gerist
annars staðar og leggja kapp á
að skapa fleiri hálaunastörf hér á
landi. Það dylst engum að íslenskt
athafnafólk og fjármálastofnanir
að baki þeim hafa á leið sinni
stjakað við öðrum. Slíkt gerist
líka á hlaupabrautinni. Ef kepp-
andi er kominn heilum hring á
undan og er við það að taka fram
úr aftur er eðlilegt að keppinaut-
urinn láti finna fyrir sér.
Erlendar fjármálastofnanir og
viðskiptaaðilar hafa misst spón
úr aski sínum samhliða íslenskri
útrás. Viðskiptavinir hafa fært sig
um set, viðskiptasambönd hafa
rofnað og fjárfestingatækifæri
hafa farið forgörðum. Viðbrögð
erlendra fjölmiðla, banka og
greiningarfyrirtækja bera þess
merki að mörgum svíður þetta
sárt. Sumir hafa farið offari í
sinni umfjöllun. Dapurlegra er
þó að aðilar hér á landi hafa kosið
að enduróma illa ígrundaðar yfir-
lýsingar og órökstudda gagnrýni
erlendra samkeppnisaðila.
Framhjá því verður ekki litið
að erlend matsfyrirtæki hafa
nýverið réttilega bent á atriði
sem betur mega fara. Þær ábend-
ingar snúa að ríkisfjármálum og
stjórn peningamála og banka-
kerfinu og rekstri einstakra fjár-
málastofnana. Það yrði að teljast
yfirlætisháttur að taka slíkar
athugasemdir ekki til rækilegrar
skoðunar.
UTAN LANDHELGI
Styrkur íslenskra fjármálastofn-
ana er meiri en áður og þekking
og reynsla íslensks athafnafólks
fer vaxandi. Staða ríkissjóðs er
jafnframt ákaflega sterk. Unnið
hefur verið ötullega að því und-
anfarnar vikur að vekja enn frek-
ari athygli á þessum staðreynd-
um. Skynsemi og yfirvegun er
besta vopnið í baráttunni. Karp
við öfundarmenn er tímasóun.
En það kann að vera við ramm-
an reip að draga. Sá veruleiki
sem við höfum upplifað undan-
farnar vikur er hugsanlega að
vissu marki kominn til að vera.
Skortstaða norska olíusjóðsins
í skuldabréfum íslenskra fjár-
málafyrirtækja kann að valda
mönnum heilabrotum. En hvaða
lögsögu höfum við Íslendingar
í því máli? Nákvæmlega enga.
Líklegt má telja að slíkt endur-
taki sig fremur en að mögulegt sé
að útiloka slík viðskipti. Við þurf-
um að laga okkur að breyttum
aðstæðum. Því fyrr því betra.
BLESSUÐ KRÓNAN
Mikill viðskiptahalli hefur verið
viðvarandi hér á landi um langt
skeið og við slíkar aðstæður
gefur gengi gjaldmiðilsins undan
að lokum. Gengi krónunnar hefur
að undanförnu lækkað umtals-
vert. Sú þróun var fyrirsjáanleg
en telja má líklegt að það stytt-
ist í að jafnvægi verði náð. Við
núverandi aðstæður fá hugmynd-
ir um upptöku Evru byr undir
báða vængi. Vangaveltur um að
Ísland gangi í Evrópusambandið
í skjóli fjölmargra undanþága
eru væntanlega eins fjarri hinu
sanna og hugsast getur – skilyrð-
islaus aðild er mun raunhæfara
vinnulíkan. Umrótið á fjármála-
mörkuðum undanfarnar vikur
verður ekki skrifað alfarið á
krónuna. Rök má færa fyrir því
að lágvaxtaumhverfi evrópska
seðlabankans undanfarin ár hefði
kynt enn frekar undir þá þenslu
sem við verðum nú að horfast
í augu við þrátt fyrir ítrekaðar
stýrivaxtahækkanir Seðlabanka
Íslands.
RÍKIÐ OG BANKI BANKANNA
Færa má rök fyrir því að
Seðlabankann hafi skort stuðn-
ing þeirra sem stjórna ríkisfjár-
málum í baráttu sinni við verð-
bólguna. Sjálfsagt hefði bankinn
átt að kveða fastar að orði í yfir-
lýsingum sínum og aðgerðum og
fyrr. En það er auðvelt að fella
dóma. Mestu skiptir nú mat á
framhaldinu og viðeigandi við-
brögð. Rýmri aðgangur almenn-
ings að lánsfé á betri kjörum
en áður á vissulega sinn þátt í
því að verðbólga hefur mælst of
mikil um langt skeið. Stjórnvöld
riðu á vaðið með verulegri hækk-
un hámarkslána Íbúðalánasjóðs.
Þau hafa nú ákveðið að rýmka
enn útlánamörk og slaka á kröf-
um um tryggingar. Núverandi
fyrirkomulag á rekstri sjóðsins
er ekki vænlegt til framtíðar. Á
það hefur verið bent í skýrsl-
um erlendra matsfyrirtækja.
Mikilvægt er að ríkissjóður dragi
úr afskiptum sínum af húsnæð-
ismarkaðnum sem fyrst. Það er
eðlilegt framhald og í fullu sam-
ræmi við minnkandi ríkisafskipti
af fjármálamarkaði. Hlutdeild
sjóðsins á íbúðalánamarkaði er
nú um 40% og fyrsti áratugur
nýrrar aldar er nú þegar rúmlega
hálfnaður.
Enginn er annars bróðir í leik
Gunnar Árnason
Sérfræðingur
efnahagsmála hjá
SPV
O R Ð Í B E L G
Í dag verður kynnt í New York skýrsla sem Frederic Mishkin,
prófessor við Colombiuháskóla í New York hefur unnið um
íslenskt viðskipta og efnahagslíf.
Skýrslan er unnin að beiðni hagsmunaaðila á Íslandi og er
viðbragð við neikvæðri umræðu sem verið hefur um íslenskt
viðskiptalíf bæði erlendis og hér heima.
Niðurstaða þessa virta fræðimanns er ekki ljós þegar þetta er
skrifað, en búast má við því að skýrslan
muni vekja nokkra athygli og verða til
þess fallin að umræðan færist í átt til
meiri raunveruleika en verið hefur. Sú
skoðun er byggð á þeirri sannfæringu
að þrátt fyrir ójafnvægi í hagkerfinu sé
í því mikill styrkur og fjármálakerfið
standi traustum fótum.
Uppgjör fyrsta ársfjórðungs bank-
anna styðja þá skoðun að áhætta þeirra
af innlendum sveiflum sé mun minni
en af hefur verið látið. Þannig var
ávöxtun innlendra eigna bankanna
fremur rýr á fyrsta ársfjórðungi.
Hlutabréfamarkaður hækkaði mun
minna en ofaldir fjárfestar eiga að
venjast og gjaldmiðillinn rýrnaði veru-
lega. Það er því ánægjulegt að sjá að öll
fjármálafyrirtækin hafa skilað afkomu
umfram spár greiningaráðila.
Samanlagður hagnaður banka á
fyrsta ársfjórðungi er tíu og hálfum
milljarði umfram spár og hagnaður-
inn yfir sextíu milljarðar. Mikill geng-
ishagnaður einkennir uppgjör bank-
anna sem fyrr, en í þetta skiptið eru
það erlendar eignir sem gefa af sér.
Uppgjörin sýna glöggt þá grundvallar-
breytingu sem orðið hefur á skömmum
tíma. Ekki þarf að leita langt aftur til
þess að forsvarsmenn stærstu fyrir-
tækja landsins ljómuðu af gleði vegna
árshagnaðar sem nam einu prósenti
af ársfjórðungshagnaði fjármálafyrir-
tækjanna.
Árangurinn nú mun hjálpa í erlendri
umræðu um íslenskt viðskipta- og
atvinnulíf. Líklegt er þó að bankarnir
þurfi að sýna góðan rekstur á næstu
mánuðum til að vinna sig í gegnum nei-
kvæða umræðu síðustu mánaða.
Skýrsla Mishkin‘s og ráðstefna Economist sem haldin verð-
ur um miðjan maí eru mikilvæg innlegg í umræðuna. Hvort
tveggja mun leiða til jarðbundnari og yfirvegaðri umræðu um
viðskiptalífið. Það er mikil þörf á slíkri umræðu og gott að sjá að
forystufólk íslensks viðskiptalífs hefur tekið umræðuna alvar-
lega og lagst á árar til að upplýsa umheiminn um þann raunveru-
leika sem býr að baki viðskiptaævintýri síðustu ára.
Skýrsla, hringborð og uppgjör banka hjálpa til við að
snúa umræðunni:
Viðskiptalífið
snýr vörn í sókn
Hafliði Helgason
Samanlagður
hagnaður banka
á fyrsta ársfjórð-
ungi er tíu og
hálfum milljarði
umfram spár og
hagnaðurinn yfir
sextíu milljarðar.
Mikill gengis-
hagnaður ein-
kennir uppgjör
bankanna sem
fyrr, en í þetta
skiptið eru það
erlendar eignir
sem gefa af sér.
Uppgjörin sýna
glöggt þá grund-
vallarbreytingu
sem orðið hefur á
skömmum tíma.
Kannabis fyrir sjúka
Economist | Breska vikuritið Economist gerir notk-
un kannabisefna að umfjöllunarefni í nýjasta tölu-
blaði sínu. Þar segir að ef kannabis myndi skyndi-
lega finnast falið í fjallshlíð þá myndi það heyra
til stórtíðinda
í læknavís-
i n d u n u m .
Læknar og
aðrir sér-
fræðingar í
heilbrigðisgeiranum myndu ausa lofi á hæfileika
þess til að lina sársauka og þjáningar vegna
ýmissa sjúkdóma, m.a. krabbameins. Staðreyndin
sé hins vegar sú að heilbrigðisyfirvöld margra
landa setja kannabisefni í flokk með hættulegum
fíkniefnum. Þar fara bandarísk stjórnvöld fremst
í flokki, að mati tímaritsins. Sannleikurinn er hins
vegar sá að efnið hefur fylgt mannkyni í þúsundir
ára og velti það fremur á stjórnvöldum en öðrum
að viðurkenna það sem lyf svo sjúklingar víða um
heim þurfi ekki að útvega sér það eftir krókaleið-
um.
Netbólan snýr aftur
Fortune | Netbólan, sem sprakk með látum skömmu
eftir síðustu aldamót með skelfilegum afleiðing-
um, er komin aftur, að sögn bandaríska vikurits-
ins Fortune. Í nýjasta tölublaði tímaritsins segir
að her þeirra
netfyrirtækja
sem hafi litið
dagsins ljós
í netbólunni
hafi horfið á
braut og eftir standi tækninýjungar sem muni
verða til næsta aldarfjórðunginn. Þá segir enn-
fremur að fjárfestar ættu í raun að sjá hag sínum
borgið með fjárfestingum í nýjum net- og tækni-
fyrirtækjum. Nú sitji mun fleiri fyrir framan
tölvurnar en áður auk þess sala á tækjum á borð
við gsm-síma og iPod-spilara hafi margfaldast
á milli ára. Litlar líkur eru taldar á sprengingu
netbólunnar með jafn slæmum afleiðingum og
um aldamótin og ættu fjárfestar að vera öruggari
nú en áður dembi þeir sér í nethafið á ný, að sögn
blaðsins.
VR og fleiri stéttarfélög styrkja þátttöku félagsmanna sinna á námskeiðinu.
“...hvergi áður náð jafn hárri ávöxtun á
tímasparnað ...”
Fylkir Sævarsson, 39 ára Iðnfræðingur.
“Í þessu er fólginn mikill tímasparnaður.”
Ester Ýr Jónsdóttir, kennari
“Hreinn tímaþjófur að láta það fram hjá sér fara.”
Rut Skúladóttir, 20 ára nemi.
Meiri tími – Aukið forskot – Sterkari sérstaða
Hvað segja nemendur okkar um námskeiðið:
Frábært, markvisst, hnitmiðað, krefjandi, mikil aðstoð, árangursríkt, góð þjónusta.
3. vikna hraðnámskeið 13. júní
Akureyri 3. vikna hraðnámkeið 17. maí
Náðu árangri með okkur í sumar og skráðu þig á
sumarnámskeið Hraðlestrarskólans.
Gerum föst verðtilboð í fyrirtækjanámskeið
Betri leið til
að vinna á
tímaskorti