Fréttablaðið - 03.05.2006, Page 77

Fréttablaðið - 03.05.2006, Page 77
MIÐVIKUDAGUR 3. maí 2006 21 F í t o n / S Í A F I 0 1 5 8 7 2 Undanfarin sumur þegar lax- og silungsveiðitímabil hafa staðið sem hæst hefur mér oft verið hugsað til þess hvort fiskar, til dæmis lax séu álitin tilfinninga- laus eða yfirleitt ekki álitin dýr. Hvað segja dýraverndunarsam- tök um það að fullorðið fólk verji allt að klukkutíma í að pynta lax og í lokin kyssa fiskinn og sleppa honum síðan. Þegar ég var ungl- ingur stundaði ég veiðar af kappi en þá var markmiðið að landa fisk- inum sem fyrst og drepa síðan á sem fljótlegastan hátt og nýta síðan til matar. Mér finnst dýraverndunarsam- tök sofa á verðinum í þessum efnum. Það er ekki verjandi að fullorðið fólk sé að pynta dýr sér til ánægju (fólk kemur jafnvel hingað til lands eingöngu til þess að stunda þetta „sport“ jafnvel efnafólk). Mér finnst að það eigi að banna lax- og silungsveiðar með einni undantekningu þó; að börn og ungmenni fái að stunda tak- markaðar veiðar sem taki sem stystan tíma að landa aflanum og engum fiski sleppt. Hvernig myndi ykkur líða á eftir ef öngli væri krækt í gegnum kinn, kjálka eða tungu og síðan rifið út úr og þið gætuð ekki leitað læknis eða ann- arrar hjálpar á eftir. Hversu lengi yrðu þau sár að gróa? Ég er nokkuð viss um að þó nokkur hluti laxa sem sleppt er að lokinni píningu drepst fljótlega á eftir kvalafullum dauðdaga. Það hlýtur að vera til önnur og mann- úðlegri afþreying til handa þess- um mönnum. Nægir þeim ekki að eiga og aka dýrum og breyttum jeppum sínum eða þenja gólfkúlur. Verða þeir að fá fullnægju grimmd- arinnar við að pína saklaus dýr. Ég hvet dýraverndunarsamtök til að láta málið til sín taka. Ill meðferð á dýrum UMRÆÐAN JÓN JÓNSSON, FYRRVERANDI VAGN- STJÓRI, SKRIFAR UM LAXVEIÐAR Ég er nokkuð viss um að þó nokkur hluti laxa sem sleppt er að lokinni píningu drepst fljótlega á eftir kvalafullum dauðdaga. Ágæt tíðindi berast nú af skoðana- könnunum Gallup og Fréttablaðs- ins. Frjálslyndir og óháðir í borg- inni styrkja stöðu sína í kosningabaráttunni. exBé listinn er hins vegar kominn í mikil vand- ræði. Eflaust vegna vitlausra hug- mynda um flugvöll á Lönguskerjum sem allir sjá við nánari skoðun og umræður að er fráleit hugmynd. Nú rifjast upp gömul en sönn saga sem hefur glettilega skírskot- un við þá stöðu sem nú er komin upp: „Víkingaskipin lögðu inn á Skerjafjörð laugardaginn 23. júní og stefndu á Seyluna. Steig þá hirð- stjóri á hest með sveit manna, og reið flokkurinn fram og aftur með langar stengur, sem smíðaðar höfðu verið. Var það gert í því skyni, að víkingum virtist þar sveit altygjaðra manna. Víkingar tóku að skjóta úr fallbyssum sínum, er þeir nálguð- ust, og var þeim svarað með fall- byssuskotum úr virkinu og af hirð- stjóraskipinu á Seylunni. Véku þá víkingar skipum sínum undan norð- ur á fjörðinn, en við það tók stærra skipið niðri, þar sem heita Löngu- sker, og stóð fast. Lét hirðstjóri þá hætta skothríðinni, því að honum þótti ekki vogandi að egna vík- ingana til bardaga, ef vera kynni, að þeir létu sér strandið að kenningu verða. Hófu þá víkingar að flytja fanga og þungavarning úr hinu strandaða skipi yfir á hitt, en fleygðu því í sjóinn, er torveldast var viðfangs. Tókst þeim loks eftir hálfan annan sólarhring að ná skip- inu af grynningunum og færðu skip sín þá utar, þar sem þeir voru óhult- ari. Þar selfluttu þeir fólk og varn- ing á ný á milli skipanna, sigldu síðan brott og létu í haf með feng sinn.“ Svona greinir Öldin okkar 1601- 1700 frá því þegar sjóræningjar frá Alsír hugðust gera strandhögg og rán á Bessastöðum sumarið 1627. Engin ferð til fjár, heldur strönduðu þeir á rauðmagamiðum þeim sem tæpum 400 árum síðar varð fyrir- hugað flugvallarstæði exBé-listans. Því miður sluppu víkingarnir úr klemmunni, kannski ekki síst vegna þess að Rósinkrans hirðstjóri á Bessastöðum heyktist á því að láta til skarar skríða og ráða niðurlög- um ræningjanna á Lönguskerjum. Þetta voru mikil mistök, því bófarn- ir áttu eftir að gera strandhögg víðar og valda miklum skaða. Nægir að nefna Vestmannaeyjar í því sam- bandi. Nú hefur skúta exBé-listans undir stjórn sjókafteins Björns Inga Hrafnssonar steytt á Lönguskerj- um eins og skip píratanna árið 1627. Við í Frjálslynda flokknum siglum hins vegar í góðum byr, enda erum við miklu betri sjómenn en þeir sem skipa áhöfnina á ólukkufleytu exBé- listans. Sjókafteinn Hrafnsson og áhöfn hans eru hvergi jafn séðir sjófarendur og víkingarnir forðum frá Algeirsborg, sem fóru strax í að gera ráðstafanir til að losa skip sitt og komust á brott. Þau hafa nefni- lega hvergi gert tilraunir til að losa sína lekabyttu. Frekar kappkostað að auglýsa strand sitt með hátt- stemmdum yfirlýsingum í öllum fjölmiðlum og þannig fest skip sitt kyrfilega á skerjunum. Þar mun fleytan bera beinin. Þau munu ekki komast á brott til að valda lands- mönnum ómældu tjóni eins og ræn- ingjarnir forðum. Nóg er það nú samt. Sjókafteinn Hrafnsson og strandið á Lönguskerjum UMRÆÐAN FLUGVÖLLUR Á LÖNGUSKERJUM MAGNÚS ÞÓR HAFSTEINSSON ALÞINGISMAÐUR 1 dálkur 9.9.2005 15:18 Page 4

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.