Fréttablaðið - 03.05.2006, Qupperneq 78
3. maí 2006 MIÐVIKUDAGUR22
Sturla Böðvarsson samgönguráð-
herra lýsti því yfir á dögunum að
nú vildi hann fara að hefjast handa
við uppbyggingu Samgöngumið-
stöðvar í Vatnsmýrinni eins og
samkomulagið við Steinunni Val-
dísi borgarstjóra hljóðar uppá.
Sturla er búinn að tryggja fjár-
magn til verksins og ítrekar mikil-
vægi þess að lóð verði afmörkuð
fyrir starfsemina til þess að hægt
verði að hefjast handa. Viðbrögð
borgarstjórans í Reykjavík við
erindi samgönguráðherrans eru
hins vegar engin ef marka má
fréttir undanfarna daga. Málið er í
nefnd eins og sagt er og ekki er
vitað hvort hún á að skila af sér
fyrir eða eftir kosningar.
Tengja saman flugið og almenn-
ingssamgöngur á landi
Staðsetning samgöngumiðstöðvar
er gríðarlega mikilvæg og þarf að
taka til margra þátta. Samgöngu-
miðstöðin þarf að þjónusta flugið
til og frá borginni og hún þarf að
þjónusta almenningssamgöngurn-
ar bæði innan borgar og utan. Til
þess að Samgöngumiðstöðin nái að
þjónusta þessa meginpósta
almenningssamgangna þá þarf
staðsetningin að vera vel útfærð.
Tilvalinn staður fyrir þessa starf-
semi er við gatnamót Hringbraut-
ar og Njarðargötu. Þessi staðsetn-
ing tengir saman tvo meginstrauma
út úr borginni, hún er vel staðsett
miðað við að flugvöllur verði á
Lönguskerjum auk þess sem teng-
ing og nálægð við miðborgina er
ákjósanleg. Aðrir þættir eins og
nálægð við Háskóla Íslands og
Landspítalann skipta líka miklu
máli. Þetta er lóðin sem borgin á
að úthluta Sturlu. Þessi lóð hefur
staðsetningu sem getur lagt grunn-
inn að öflugum almenningssam-
göngum í Reykjavík sem tengjast
landinu öllu. Það er löngu tíma-
bært að miðstöð almenningssam-
gangna verði fundinn verðugur
staður í höfuðborg landsins.
Höfum hana miðsvæðis og tengj-
um saman hina ólíku samgöngu-
möguleika landsmanna með öfl-
ugri samgöngumiðstöð eins og við
sjáum útum allan heim í löndum
sem við helst viljum bera okkur
saman við.
Styð Sturlu
Það er auðvelt að setja sig í spor
samgönguráðherrans. Hann gerði
samkomulag við borgarstjórann í
Reykjavík um uppbyggingu sam-
göngumiðstöðvar í Vatnsmýrinni
og vill núna ljúka því máli með
því að ákveða endanlega stað-
setningu miðstöðvarinnar svo
hægt verði að hefjast handa. Ekk-
ert svar, því málið er í nefnd.
Framtíðarstaðsetning samgöngu-
miðstöðvar er mál sem borgar-
stjórinn í Reykjavík virðist hafa
sett á ís vegna þess að hún er í
kosningabaráttu þar sem hennar
flokkur getur ekki tekið afstöðu
til framtíðar innanlandsflugsins.
Reyndar er flokksbróðir sam-
gönguráðherrans, Vilhjálmur Þ.
Vilhjálmsson, ekki alveg viss
hvernig hann vill leysa framtíð
innanlandsflugsins heldur, þannig
að lausnina á staðsetningu sam-
göngumiðstöðvar er alveg örugg-
lega ekki að finna hjá Samfylk-
ingunni og Sjálfstæðisflokknum.
Framsóknarflokkurinn í
Reykjavík hefur sett fram skýra
stefnu sem tekur mið af hags-
munum ólíkra sjónarmiða og
finnur sameiginlega lausn. Flug-
völlur á Lönguskerjum er þjóðar-
sátt í þessu erfiða deilumáli.
Þessi þjóðarsátt er tillaga okkar
framsóknarmanna og staðsetn-
ing á samgöngumiðstöð í höfuð-
borginni þarf að taka mið af
henni. Hversu mótsagnakennt
sem það kann að virðast að þá
verður Sturla sennilega að bíða
eftir því að Framsóknarflokkur-
inn verði í aðstöðu til að úthluta
honum lóð undir samgöngumið-
stöð því félagar hans í Sjálfstæð-
isflokknum geta ekki tekið
ákvörðun í málinu. Ekki frekar
en Samfylkingin.
Höfundur skipar 2. sæti B-list-
ans í Reykjavík.
Samgöngumiðstöð í Vatnsmýrinni
UMRÆÐAN
ALMENNINGS-
SAMGÖNGUR
ÓSKAR BERGSSON
REKSTRARFRÆÐINGUR
Kort af samgöngumiðstöð
Reyndar er flokksbróðir sam-
gönguráðherrans, Vilhjálmur
Þ. Vilhjálmsson, ekki alveg viss
hvernig hann vill leysa framtíð
innanlandsflugsins heldur,
þannig að lausnina á staðsetn-
ingu samgöngumiðstöðvar er
alveg örugglega ekki að finna
hjá Samfylkingunni og Sjálf-
stæðisflokknum. Síðasta vetur átti ég málefnalega fundi með Samfylkingarfólki um
Akureyri í öndvegi og verðlauna-
tillöguna sem lögð er til grund-
vallar við endurskipulagningu
miðbæjarins. Ekki var annað að
skilja á því góða fólki en þeim
þætti allt þetta mál mjög álitlegt
og sú lausn sem felst í verðlauna-
tillögunni – að grafa bátaskurð
upp að Skátagili – uppfylli þau
markmið íbúaþings að mynda
þarna „skjól og sól“.
Ég er líka algjörlega sammála
dómnefnd arkitektasamkeppninn-
ar um að verðlaunatillagan sé vel
til þess fallin að ná þessu mark-
miði og tryggir að byggingar þró-
ist meira til austurs og vesturs á
svæðinu. Það verður til þess að
skjól myndast gagnvart ríkjandi
vindáttum auk þess sem skurður-
inn og bakkarnir í kringum hann
tryggja að sólar nýtur mun meira
í miðbænum en annars væri. Við
það bætist að sportbátar og skútur
leggja þar við festar og auðga
svæðið viðbótarlífi eins og margir
hafa séð í útlöndum og hrifist að.
Um þá möguleika sem við þetta
myndast væri hægt að hafa mörg
orð enda eru flestir sem hafa
kynnt sér málið af alvöru sam-
mála um að með þessari lausn hafi
nýir möguleikar skapast til þess
að gera miðbæinn að lifandi, skjól-
góðu og aðlaðandi umhverfi sem
íbúar og gestir leita til.
Eitthvað annað?
Það kom mér því eins og köld
vatnsgusa þegar vinur minn
Ásgeir Magnússon tilkynnti fyrir
hönd Samfylkingarinnar að best
væri að halda áfram að skoða allar
hugmyndir um breytingar á mið-
bænum, rétt eins og menn hefðu
ekkert verið að leiða hugann að
því undanfarið. Þegar því er svo
bætt við að best sé að hverfa frá
þeirri lausn sem verðlaunatillag-
an býður upp á og þar á meðal
þeim möguleikum sem skurðurinn
veitir, get ég ekki betur séð en
að flokkurinn ætli sér að setja allt
þetta mál í uppnám og gera svo
bara eitthvað. Með þessu er
flokkurinn að gefa öllu því ágæta
starfi sem unnið hefur verið í
þessu máli langt nef. Allt frá íbúa-
þinginu og til meðferðarinnar
innan bæjarkerfisins.
Þegar þeir segja að „Samfylk-
ingin vilji skoða allar hugmyndir
um breytingar sem tryggja lifandi
og spennandi miðbæ“ þá spyr ég
nú bara: Hvar hafið þið eiginlega
verið? Hefur umræðan og ákvarð-
anaferlið sem unnið hefur verið
eftir farið algjörlega fram hjá
þessu ágæta fólki? Veit það ekkert
hvað hefur verið að gerast? – eða
er verið að nota allt þetta mál til
að skapa sér pólitískt svigrúm til
að ná sér í prik fyrir kosningarnar?
Svei því.
Fráleitar kostnaðartölur
Þó tekur alveg út yfir allt þegar
Ásgeir heldur því blákalt fram að
gerð skurðarins upp að Skipagötu
(fyrri áfangi) muni kosta milli 700
til 1000 milljónir króna og segir að
betra sé að nota það fé til „þarfari
þjónustu við bæjarbúa“. Þessar
tölur eru auðvitað bara bull og
vitna ég þá í mjög vandaða kostn-
aðarúttekt um gerð skurðarins,
sem unnin var af sérfræðingum
Siglingastofnunar. Þeir komast að
þeirri niðurstöðu að kostnaður
gæti numið allt að 250 milljónum
króna og er þá verið að tala um
skurðinn í fullri lengd – upp að
Hafnarstræti – en ekki upp að
Skipagötu. Við það bætist kostnað-
ur við gerð brúar, sem ríkið mun
væntanlega taka þátt í, og ýmis
frágangur svo þeir sem vilja
byggja á þessum stað geti hafist
handa, auk niðurrifs bygginga
þegar að því kemur að fara alla
leið upp að Hafnarstræti. En að
kostnaður bæjarins verði allt að
einum milljarði króna við að gera
skurðinn upp að Skipagötu er gjör-
samlega út í bláinn. Raunar spyr
ég mig að því hverju svona mál-
flutningur á að þjóna.
Jákvæð viðbrögð fjárfesta
Þegar þess er svo gætt að fjárfest-
ar hafa sýnt mikinn áhuga á að
byggja í kringum skurðinn og
hefja þar öfluga starfsemi, eru
þeir auðvitað um leið að lýsa yfir
því að skipulagið í samræmi við
verðlaunatillöguna sé mjög áhuga-
vert. Þeir eru þess vegna tilbúnir
að leggja fram mikla fjármuni til
að taka þátt í uppbyggingu á þeim
grunni en ekki einhverjum allt
öðrum. Hins vegar veit enginn
hvort þeir hafa áhuga á að bíða
eftir niðurstöðum Samfylkingar-
manna um annað skipulag þar sem
kostum verðlaunatillögunnar
hefur verið kastað fyrir róða.
Þess vegna er þetta furðulega
innlegg Samfylkingarinnar í þetta
mál nú nokkrum mínútum fyrir
kosningar hið versta mál. Vonandi
verður þetta rugl ekki til að raska
þeim áformum sem mótaðar voru
á íbúaþingi og fengu líf með þeirri
snjöllu lausn sem felst í verð-
launatillögunni. Þetta mikilvæga
málefni má ekki verða söluvara í
dægurþrasi pólitískrar umræðu
og skammtímasjónarmiða. Til
þess er það allt of mikilvægt fyrir
þróun bæjarins.
Snjöll lausn orðin að
pólitísku bitbeini?
UMRÆÐAN
SKIPULAGSMÁL Á
AKUREYRI
RAGNAR SVERRISSON
KAUPMAÐUR
Það kom mér því eins og köld
vatnsgusa þegar vinur minn
Ásgeir Magnússon tilkynnti
fyrir hönd Samfylkingarinnar
að best væri að halda áfram
að skoða allar hugmyndir um
breytingar á miðbænum, rétt
eins og menn hefðu ekkert
verið að leiða hugann að því
undanfarið.