Fréttablaðið - 13.09.2006, Blaðsíða 23
Heimild: Almanak Háskólans
Smáauglýsingasími
550 5000
Auglýsingasími Allt
550 5880
Þú getur pantað
smáauglýsingar á visir.is
FASTEIGNIR HEIMILI HEILSA HÚS BÖRN NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR TÍSKA ATVINNA BRÚÐKAUP TILBOÐ O.FL.
ÁRLEG FJÖLSKYLDUFERÐ FARIN ÞANN 16. SEPTEMBER.
Laugardaginn 16. september næstkomandi verður haldið í hina
árlegu 4x4 fjölskylduferð Hyundai.
Safnast verður saman í B&L húsinu klukkan 8.30 um morguninn
og farið yfir ferðatilhögun og öryggisreglur. Lagt verður í hann
stundvíslega klukkan 9.
Áfangastaðurinn er Brautarholt í Skeiðahreppi og verður ekið
þangað um Hrunmannaafrétt. Leiðin státar bæði af mikilli nátt-
úrufegurð og skemmtilegum 4x4 akleiðum, sem reyna aðeins á
jeppaeiginleikana.
Að vanda verður grillað og brugðið á leik á áfangastað, auk
þess sem allir fá smá ferðanesti í bílinn áður en lagt er af stað.
Formlegri dagskrá lýkur klukkan 17, en frá Brautarholti í
Skeiðahreppi er ekki nema 30 mínútna akstur
til Selfoss, á malbikuðum vegi.
Nánar um ferðina og leiðarlýs-
inguna á www.bl.is.
4x4 ferð Hyundai
Ferðin er tilvalið tæki-
færi fyrir þá sem eiga
fjórhjóladrifsbíla frá
Hyundai til að kynnast
landinu og hver öðrum.
Mazda bílar eru vinsælir í ár en
mesta söluaukningin hefur orðið
á þessari bílategund það sem af
er árinu. Alls munu 459 Mazda
bílar hafa selst á fyrstu átta mán-
uðunum, sem er 74,5 prósenta
aukning samanborið við sama
tímabíl í fyrra.
Mývatnssveit – með kostum
og kynjum – árbók Ferðafélags
Íslands 2006 er komin út. Í
henni er fjallað um Mývatnssveit
og nánasta umhverfi. Jón Gauti
Jónsson landfræðingur ritaði
bókina en fuglaljósmyndarinn
Jóhann Óli Hilmarsson tók
myndir. www.fi.is.
Dr. Motoshi Suzuki heldur fyrir-
lesturinn „Viðbrögð svæðisbund-
inna stofnana við mannréttinda-
brotum“ í dag kl. 16.15 í Lögbergi
stofu 102. Alþjóðamálastofnun
og japanska sendiráðið standa
fyrir fyrirlestrinum sem fluttur
verður á ensku.
ALLT HITT
[ BÍLAR FERÐIR NÁM ]
SCHUMACHER LEGGUR
KEPPNISSKÓNA Á HILLUNA
Einn farsælasti ökuþór allra tíma
lýkur ferlinum á toppnum.
BÍLAR 2
GÓÐAN DAG!
Í dag er miðvikudagurinn
13. september, 256. dagur
ársins 2006.
Sólarupprás Hádeigi Sólarlag
Reykjavík 6.44 13.24 20.01
Akureyri 6.26 13.08 19.49
Hrafnhildur Helgadóttir er nemandi
á listnámsbraut Fjölbrautaskólans
í Breiðholti. Hún segir að námið sé
skemmtilegt og kennararnir góðir.
Listnámið í Fjölbrautaskólanum í Breiðholti
er þriggja ára nám en hægt er að bæta við
einu ári í bóklegum fögum og útskrifast með
stúdentspróf. „Flestir bæta þessu ári við sig
og ég er að gera það núna og verð stúdent um
jólin,“ segir Hrafnhildur.
Hægt er að velja á milli þriggja sviða á
listnámsbrautinni. „Brautirnar eru mynd-
listarbraut, sem ég er á, arkitektasvið og
hönnunarbraut þar sem er kennd fatahönn-
un.“
Hrafnhildur er mjög ánægð á myndlistar-
brautinni og segir að námið sé fjölbreytt og
kennararnir góðir. „Við lærum grunnteikn-
ingu, módelteikningu, anatómíu, myndbygg-
ingu og litafræði. Þegar við erum búin með
grunninn förum við svo í verkáfanga þar
sem við veljum okkur verkefni sem við vinn-
um sjálfstætt.“
Vídeólistaverk höfða mikið til Hrafnhild-
ar og hún hefur gert dálítið af þeim. „Þegar
maður er búinn með grunninn og fer í þessa
frjálsu áfanga getur maður valið sér miðil og
ég reyni að gera mest af vídeólistaverkum.“
Hrafnhildur er búin með flesta myndlist-
aráfangana og er núna að klára það sem hana
vantar upp á til þess að ljúka stúdentsprófi.
„Núna er ég eiginlega bara í bóklegum áföng-
um. Ég er reyndar í einum photoshop áfanga
en það var eina valið sem ég gat tekið með.“
Eftir áramót ætlar Hrafnhildur svo að
taka sér frí frá skóla en hana langar að fara í
listnám á háskólastigi næsta vetur. „Ég ætla
að sækja um listaháskólann hér og svo lang-
ar mig dálítið að sækja um listaháskóla í
Skotlandi og á Kúbu. Ég kann reyndar enga
spænsku en það er aldrei að vita nema ég
noti vorið til þess að læra eitthvað í henni.
Það er allt opið,“ segir hún og hlær.
emilia@frettabladid.is
Vídeólistaverk heilla
Hrafnhildur stefnir á að fara í listaháskóla á næsta ári. FRÉTTABLAÐIÐ/HÖRÐUR
SKÍÐAPARADÍS UTAN
EVRÓPU
Sólríkt er á skíðasvæðunum í
Colorado í Bandaríkjunum.
FERÐIR 4