Réttur - 01.06.1943, Blaðsíða 1
RETTUR TÍMARIT UM ÞJÓÐFÉLAGSMÁL
28. árgangur
2. hejti
1943
Einar Olgeirsson:
Baráttan um tilvem íslendinga
Sú er von allra góð'ra manna, að upp úr |>ví ægilega blóðbaði,
sem nú stendur yfir, rísi ný jörð, nýr heimur, þar sem orsakirnar
til þeirra ólýsanlegu þjáninga, sem mennirnir nú hafa orðið að þola,
hafa verið brottnumdar. Flestum þeim mönnum, sem um málið
hugsa og ihuga fraintíðina, er það ljóst að mannkyninu er tortím-
ing vís, ef nokkrum gírugum auðjöfrum og samvizkulausum valda-
bröskurum á að haldast það uppi að leiða aftur á ný fasisma yfir
mannkynið með öllum þeim ógnum, er honum fylgja: stríði og
hvers konar eyðileggingu.
Því er svo komið, að um gervallan heim hljóma nú kröfurnar
um það að eftir þetta stríð verði yfirgangur nokkurra auðdrottna
meðal stórþjóða gagnvart öðrum þjóðum að hverfa, sjálfsákvörð-
unarrétt allra þjóða verði að fullu að viðurkenna, skipting heims-
ins í „áhrifasvæði“ milli auðjötna stórveldanna verði að eilífu að
vera úr sögunni, sem gersamlega ósamrímanleg öllu þjóðfrelsi, lýð-
ræði og mannrétlindum, — og milli þjóða verði að komast á vin-
samlegt náið samstarf, byggt á virðingu þeirra fyrir frelsi hvor ann-
arrar og gagnkvæmum þörfum.
Það eru ekki aðeins sósíalistar, sem boða þessa stefnu, sem þá
einu, er tryggt geti framtíð mannkynsins. Um þessa stefnu skipa
sér á einn eða annan hátt allir frjálshuga menn, sem sjá hvert ella
stefnir, — allir, sem hata fasismann og þau öfl, sem hafa komið