Réttur


Réttur - 01.06.1943, Blaðsíða 2

Réttur - 01.06.1943, Blaðsíða 2
78 RÉTTUR honum á, — allir, sem sjá að stórveldakúgun þýðir nýjar styrjaldir. I Frakklandi er mynduð raunveruleg samfylking allra andstæðinga fasismans, allt frá kommúnistum til borgaralegra íhaldsflokka, um að skapa þjóðfélag eftir stríðið, þar sem franska þjóðin og allir andfasistískir flokkar hennar starfi frjálst, þar sem einræðisvald hinna 200 auðmannafjölskyldna yfir atvinnulífi landsins verði að víkja fyrir lýðræðinu með því að þjóðin taki sjálf bankana, nám- urnar, stáliðnaðinn og stærstu auðhringana undir sína stjórn. Franska þjóðin ætlar ekki að gefa samvizkulausum auðmönnum og valdabröskurum tækifæri til þess á ný að leiða yfir hana erlenda áþján og innlenda harðstjórn, bara til þess að þeir geti féflett þjóðina áfram í krafti auðmagns síns og ríkisvalds. Og þannig munu flestar þær þjóðir hugsa, sem þolað hafa nú ógnir fasismans. En það eru fleiri en þeir, sem sjálfir hafa orðið að engjast sund- ur og saman undir járnhæl fasismans, sem sjá, að skapa verður heiminum nýtt þjóðfélagskerfi. I Bandaríkjunum boðar varaforset- inn sjálfur, Iienry Wallace „öld alþýðumannsins11 (Century of the Common Man) og Wendell Willkie, mótframbjóðandi Roosevelts úr síðustu forsetakosningum, segir að heimurinn verði að verða eitt, ef hann eigi ekki að forganga. Stórveldastefnurnar verði að hverfa, hin góða nágrannasambúð verði að koma í staðinn. — Og hið gamla íhald Evrópu, sem hélt dauðahaldi í nýlenduyfirráð sín í Asíu, þangað til það var orðið um seinan, lýsir því nú yfir, að eftir stríð skuli Austur-Indíur Hollands verða frjálsar, Indland fá fullveldi og Kínverjar eru nú viðurkenndir sem frjáls stórþjóð, og forréttindi Evrópumanna í Kína afnumin, — þegar Japan var búið að ná borgunum, sem hvítu stórveldin höfðu forréttindi í. Fordæmingin á stórveldastefnunni og einokun auðlinda jarðar- innar í höndum nokkurra bankadrottna og auðhringa verður því almennari sem mannkynið sér að framleiðslugetu þess hefur fleygt svo fram í þessari styrjöld að hægðarleikur er að uppfylla þarfir allra jarðarbúa og skapa í stað eyðileggingarinnar, sem nú er unn- in, lífsþægindi í stærri stíl en menn hefði dreymt um. Þegar naz- isminn er að velli lagður, er hægt að skapa skipaflota á 2—3 árum stærri en heimurinn hefur áður átt, til þess að flytja um friðsæl
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Réttur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.