Réttur - 01.06.1943, Side 5
RÉTTUR
81
heima fyrir geri sér ekki nógu snemma ljóst, hvert auðmannaklíkan
stefnir, og fái ekki á að ósi stemmt. Nú þegar eru frumdrætlir
heimsdrottnunarstefnu farnir að koma þar í ljós, svo undarlega á-
þekkir nazisma Hitlers. Það er tekið að boða þann fagnaðarboð-
skap, að Ameríkumenn séu öllum öðrum mönnum fremri — líkt og
þegar kennt var að Þjóðverjar væru „herra-fólk“, fætt til þess að
drottna yfir öðrum. Það er í blaði auðkýfingsins Luce (,,Life“)
farið að tilkynna „ameríska öld“ (hverju Wallace varaforseti
dyggilega mótmælti í ræðu sinni um „öld alþýðumannsins“) —
líkt og þegar Hitler forðum boðaði „þúsund ára ríki“ Germana
hér á jörð. Það er farið að skipuleggja einræðiskenndar „fimmtu
herdeildir“ í öðrum löndum, — eins og Darlan-málið í Alsír sýndi
bezt. En það, sem örlagaríkast verður og óhjákvæmilega heimtar
skjóta lausn, er það: að eftir stríðið standa í Bandaríkjunum til-
búnar verksmiðjur, sem framleitt getá yfir 120 þúsund flugvélar
á ári, — skapað í vetfangi ósigrandi flugflota, er máske gefi herra
sínum heimsvöld, og við þessar verksmiðjur er aðeins tvennt að
gera: framleiða annað hvort hergögn eða nauðsynjar lianda jólk-
inu, — og þær síðari seljast ekki til lengdar, ef þeim framleiðslu-
háttum auðvaldsins er haldið, að borga verkalýðnum sem heild
svo lág laun, að hann geti ekki keypt það, sem hann framleiðir. —
Onotaðar stálsmiðjur, atvinnulaust fólk, varnarlítil lönd og gróða-
gráðugir auðhringar, — það var grundvöllurinn, sem fasismi
þýzku stálhringanna reis upp af sem eina leið auðvaldsins þar til
þess að lifa, ræna og drottna.
Eru ekki auðhringar Ameríku að undirbúa hið sama nú?
Verða forsetakosningarnar 1944 í Bandaríkjunum ef til vill svip-
aðar þeim, sem fóru fram 1932 í Þýzkalandi?
Á veröldin máski eftir að upplifa það, að Ford og du Pont traðki
álika á andlegum arfi Jeffersons og Franklins, eins og Hitler á kenn-
ingum Lessings og Kants, — að þjóðfrelsi annarra þjóða verði
trampað undir járnhæli Morgans af herjum úr landi Washingtons
og amerísku þjóðfrelsisbyltingarinnar, eins og verkalýðshreyfing
Evrópu var sundurtætt af böðlunum úr landi Marx og Engels, —
að svartir menn og gulir, máski þeir. sem ekki eru „innfæddir11, og