Réttur


Réttur - 01.06.1943, Page 56

Réttur - 01.06.1943, Page 56
Sverrir Kristjánsson: Örlagastund einræðisherra Ræða flutt á samkomu sovétsöfnunarinnar 22. júní 1943 22. júní virðist vera örlagastund einvaldsherra. Þann dag árið 1812 stóð Napóleon á bökkum Njemenfljótsins og boðaði her sín- um að halda skyldi inn í Rússland. Tveim dögum síðar gekk her- inn yfir fljótið. Tuttugasta og annan júní var Napóleon drottnari Evrópu. Þrem árum siðar var hann fangi Evrópu. Sporin hefðu átt að hræða, dagsetningin hefði átt að vekja til íhugunar, en hér sannaðist hið fornkveðna, að guðirnir blinda þá, er þeir vilja tor- tíma. Adolf Hitler rikiskanslari og leiðtogi Þýzkalands lét sér ekki reynslu sögunnar að kenningu verða, hann hirti ekkert um viðvaranir reyndustu hershöfðingja Prússlands allt frá dögum Clausewitz til von Fritschs hershöfðingja, er hann lét myrða á víg- völlunum hjá Varsjá, hann kærði sig kollóttan um hina óttablöndnu virðingu, sem þýzka herforingjaráðið hefur jafnan borið fyrir víðáttum Rússlands og baráttukjarki hins rússneska hermanns. Maðurinn, sem hafði fetað sig upp í valdastól meiri en dæmi eru til í sögu Evrópu, með fótvissu svefngengilsins, stefndi hinum ólmu brúnstakkasveitum sínum inn á örlagaslóðir svo margra lið- inna herforingja, sem týndu þar bæði mönnum og ríki. En því fer þó fjarri, að Adolf Hitler hafi eingöngu treyst hermætti sínum, er hann hóf Rússlandsför sína. Innrásin í Rússland var pólitískt leyni- vopn hans. Hann þóttist öruggur um það, að England mundi ekki standast freistinguna, ef hann nú klæddist búnaði hins heilaga Georgs og rendi spjóti sínu í gin hins bolsévíska dreka. Hann trúði því fastlega, að gamlar væringar, tortryggni á báða bóga, mundu ónýta alla hernaðarlega samvinnu með Rússlandi, Englandi og hinu engilsaxneska stórveldi hinu megin Atlantshafsins. En Hitler brást bogalistin, því að Bretland brást ekki köllun sinni.

x

Réttur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.