Réttur - 01.01.1946, Síða 5
RÉTTUR
5
flokkar með eigin tungu og menningu eru sviptir þeim
mannréttindum, er aðrir þjóðfélagsþegnar njóta. Raunhæft
jafnrétti mannanna er því einn aðalhornsteinn lýðræðisins.
í fjórða lagi: Lýðrœði er brceðralag mannanna, því að án
bræðralags mannanna fær fullkomið lýðræði ekki staðizt.
En bræðraiag manna er þjóðfélagslega óhugsandi nema hags-
munaandstæðurnar séu upphafnar og stéttakúgun ófram-
kvæmanleg, — það er ekki hægt að koma á bræðralagi, með-
an einn maður fær kúgað annan eða hægt er að hagnýta
einn mann sem tæki fyrir annan. En það má vissulega segja,
að þegar þróun lýðræðisins væri komin svo langt, að þess-
ari kröfu þess væri fullnægt, þriðja og síðasta kjörorðinu,
sem franska byltingin letraði á skjöld sinn: „frelsi, jafnrétti
og bræðralag", þá væri lýðræðið líka um leið sem pólitískt
valdaform að up.phefja sjálft sig. Það liggur í augum uppi,
að þegar fjöldinn í þjóðfélaginu tekur völdin og vinnur
markvisst að því að skapa sér frelsi og jafnrétti, þá hlýtur
hann eðlilega að stefna að því að afmá allt höfðingjavald í
hvaða mynd, sem það birtist, allt vald örfárra manna, hvort
lieldur það er vald aðalsmanna, embættismanna eða auð-
manna, yfir jörðinni eða atvinnutækjunum, sem fjöldinn á
afkomu sína og líf undir. Með því gerir liann lýðræðið raun-
liæft og festir svo í sessi vald, frelsi og jafnrétti hinna mörgu,
að engin hætta sé á, að upp geti komið slíkt vald nokkurra
manna í þjóðfélaginu, að jDeir fái raskað jaessu valdi fólksins,
afskræmt jjað eða eyðilagt á einn eða annan hátt. Eina ör-
ugga tryggingin gegn uppkomu eða áframhaldi slíks fá-
mennis-, höfðingja- eða ein-veldis er vald lýðsins sjálfs yfir
öllum þeim atvinnu- og áhrifatækjum í þjóðfélaginu, sem
hætta væri á, að fámenn yfirstétt ella gæti hagnýtt til jiess
að drottna yfir lýðnum og kúga hann. Þess vegna hlýtur
lýðræðið óhjákvæmilega að stefna að því, að fjöldinn leggi
sjálfur valdið yfir þessum valda- og áhrifatækjum ýmist í
hendur hins lýðræðislega þjóðfélags sjálfs eða í hendur sam-
taka, er fólkið skapar sér í því skyni, samvinnufélaga o. s.