Réttur


Réttur - 01.01.1946, Page 7

Réttur - 01.01.1946, Page 7
RÉTTUR 7 anna á síðasta áratug. Og vér megum aldrei láta hversdags- legan vana, hina daglegu reynslu vora af lýðræðislegum lífs- formum eða galla og rnistök ýmislegs lýðræðislegs skipulags svipta lýðræðið þeim hugsjónabúningi í augum vorum, sem það sögulega séð á heimtingu á að vera skrýtt. Sóknin til lýðræðis „Og munið, að ekki var urðin sú greið til áfangans, þar sem við stöndum, því mörgum á förinni fóturinn sveið, er frumherjar mannkynsins ruddu þá leið af alheimsins öldum og löndum." Þorst. Erl. „Braulin". Vér íslendingar höfum sem aðrar þjóðir kynnzt lýðræð- inu sem hugsjón og stríðandi stefnu, — og aðeins sem slíku, sem striðandi lýðræði, ekki sem „sigrandi lýðræði", ef nota má hin gömlu kirkjulegu lnigtök. Því að lýðræðið hefur hvergi unnið sinn lokasigur ennþá, hvergi verið fullkom- lega framkvæmt í samræmi við þá hugsjón þess, sem ég hef nú greint. Ýmist eru í lýðræðislöndutn lieims mismunandi tegundir hins stríðandi lýðræðis eða lýðræðisform, sem skap- azt hefur í sókn fólksins á sínum tíma, en stirðnað og spillzt, þannig að það hefur að vísu á sér yfirskyn lýðréttindanna, en valdhafar Jress afneita þeirra krafti, ef lýðurinn tekur þau alvarlega. (Því er eins farið um lýðræðið og Goethe lætur Faust segja um frelsið og lífið, að „aðeins sá verðskuldar það, sem daglega verður að berjast fyrir því.“ Samanburður- inn t. d. á baráttu Abrahams Lincolns fyrir frelsi negranna og svo misréttið og ofsóknirnar, sem negrar Bandaríkjanna búa við nú, eru góð dæmi um muninn á lýðræði: lifandi og stríðandi eða stirðnuðu og kölkuðu. Táknrænn um þetta sama er sá atburður er gerðist í Bandaríkjunum eftir stríðið 1914—18, er ræðumaður var tekinn fastur fyrir að lesa upp úr frelsisskrá Bandaríkjanna frá 4. júlí 1776 og talinn vera að boða bolsjevisma. — En innan stirðnaðra lýðræðisforma

x

Réttur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.