Réttur


Réttur - 01.01.1946, Side 33

Réttur - 01.01.1946, Side 33
RÉTTUR 33 ins um Hergilseyjarbóndann, þegar hann bauð höfðingja- valdinu byrginn og barg útlaganum, er það ofsótti: ,,Því sál lians var sterk af því eðli sem er í ættlandi hörðu, sem dekrar við fátt, sem fóstrar við hættur — því það kennir þér, að þrjózkast við dauðann með trausti á þinn mátt, í voðanum skyldunni víkja ei úr, og vera í lífinu sjálfum þér trúr.“ Það, sem Schiller kallar „Mánnerstolz vor Königsthronen" (stolt manna frammi fyrir hásætum konunga) er eitt af skil- yrðunum fyrir raunhæfu lýðræði, hvort sem um er að ræða hásæti einvaldsdrottna eða auðkónga. Og þessi tilfinning hefur verið sterk í þjóð vorri, einmitt sökum þess að öll til- vera vor liefur kennt oss í sjö aldir að hata kúgunina og elska frelsið. Og sú kúgun, sem íslendingar Iiafa hatað mest er einmitt fjárhagslega kúgunin: arðrán einokunarkaupmann- anna var oss enn sárara en ægileg stjórnmálakúgun danskrar embættismannastéttar. Orðatiltæki alþýðunnar við drembi- láta dóna: „Heldurðu, að þú sért kóngurinn eða kaupmað- urinn“, sýnir bezt, hvernig alþýðan mat báða Jjætti kúgunar- valdsins. Ogsvo mun reynast enn: í augum íslenzkrar alþýðu mun lýðræði á stjórnmála- og atvinnusviðinu verða óað- skiljanleg hugtök, hvort tveggja frumskilyrði fyrir fullu frelsi fjöldans af klafa alls höfðingjavalds. Fyrir íslenzkan bónda, fiskimann, verkamann, sem síðustu aldir hefur þekkt kúgun einokunarkaupmannsins, auðhringsins, stóratvinnu- rekandans, — fengið að kenna á ánauð okurvaxta, ófrelsi skuldaklafans og ógnum atvinnuleysisins, — fyrir hann er hugtakið frelsi órjúfanlega tengt því að vera efnahagslega sjálfstæður, vera öruggur um atvinnu og afkomu og engum öðrum háður, geta um frjálst liöfuð strokið, Jmrfa ekki að biðja einhvern höfðingjann um leyfi til þess að fá að lifa mannsæmandi lífi. Það er ekki að ófyrirsynju að íslenzka þjóðin hafði það 3

x

Réttur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.