Réttur


Réttur - 01.01.1946, Page 39

Réttur - 01.01.1946, Page 39
RÉTTUR 39 frelsið. Alþýðan vill ofbeldið útlægt, ef hún mætti ráða. Hún teldi því ekki eftir sér að einskorða baráttu sína fyrir fullu frelsi við ósanngjarnar leikreglur borgaralega lýðræð- isins, ef það mætti verða til þess að yfirstéttir þær, — sem mótað hafa leikreglur þessar sér í hag og brotið þær, ef völdum þeirra var hætta búin, — einskorðuðu sig einnig við þær og þjóðfélag vort yrði þar með firrt hættu ofbeld- isins. Alþýðan treystir í þessu á mátt síns góða málstaðar, á þroska og skynsemi fjöldans, á áhuga og eldmóð þeirra, sem fyrir fullkomnun lýðræðisins berjast. Hún trúir því, að eins og lýðræðissinnum 18. aldar tókst að vinna sigur á aðli og einveldi þess tíma, Jrrátt fyrir ofsóknir og bönn, einokun yfirstétta á andlegu og veraldlegu sviði, — eins muni og lýð- ræðissinnum 20. aldar, sósíalistum, takast að sigrast á pen- ingaaðli og einokunarhringum vorra tíma, þrátt fyrir ein- ræði Jreirra í atvinnulífinu og ofurvald þeirra yfir áhrifa- tækjunr þjóðfélagsins. íslenzka Jrjóðin bar gæfu til að koma á einni stórfelldustu breytingunni á Jrjóðfélagi sínu síðustu þúsund ár: kristnitökunni árið 1000 — með friðsamlegum liætti. Mikil væri gifta Jrjóðar vorrar, ef lienni auðnaðist einnig að framkvæma róttækustu breytinguna, sem hægt er að gera á þjóðfélagi nútímans, sósíalismann, í anda Jreirrar vizku, samheldni og siðmenningar, sem einkennt hefur þjóð vora á beztu stundum ævi hennar.

x

Réttur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.