Réttur


Réttur - 01.01.1946, Page 50

Réttur - 01.01.1946, Page 50
50 RÉTTUR bæta úr þessum göllum við meðferð málsins á Alþingi, enda þótt ekkert tillit væri tekið til tillagna þeirra og þær allar felldar. Einn lielzti galli laganna er sá, að fjáröflunin er á engan hátt tryggð, eins og gert var livað stofnlán sjávarútvegsins snertir með skyldulánunum hjá seðladeildinni. Eins og nú standa sakir er skuldabréfamarkaðurinn það þröngur, að ekki hefur tekizt að selja nema lítinn hluta af því þriggja milljón króna láni, sem byggingarsjóður verkamannabústað- anna bauð út fyrir nokkrum mánuðum síðan. Er því alveg útilokað að takast megi að afla með skuldabréfasölu á opn- um markaði þess mikla fjár, sem nauðsynlegt myndi verða, ef lögin ættu að koma að verulegu haldi. Þess vegna lagði Sósíalistaflokkurinn til, að Landsbankinn væri skyldaður til að kaupa skuldabréf byggingarsjóðsins allt að 30 milljón- um króna. Þetta var fellt. Sömuleiðis við aðra umræðu til- laga, er gekk nokkru skemmra, eða um kaup á skuldabréfum allt að 15 millj. kr. Er því ekki á neinn hátt séð fyrir fjár- öflun til byggingarframkvæmdanna, og getur'það riðið fram- kvæmdum byggingarfélaganna að fullu. Sósíalistaflokkurinn mun á næsta þingi aftur beita sér fyrir löggjöf, er tryggi nægt og ódýrt lánsfé til bygginga lands- manna, svo að löggjöfin um verkamannabústaði og bygging- arsamvinnufélög geti komið að gagni, og lánastarfsemi til bygginga einstaklinga sé lyft af því villimannlega stigi okur- starfseminnar, sem hún nú er á. Að þessu marki á banka- starfsemi landsins að beinast, þá fyrst uppfyllir hún þær kröf- ur, er gera verður til hennar. Bankarnir og verðbólgan Það verður að teljast eitt af aðalmarkmiðum bankastarf- seminnar að stuðla að því, að verðgildi peninganna haldist að mestu óbreytt. Að vísu er ekki hægt að ná því marki með bankastarfseminni einni saman. Þar verður fjármálapólitík

x

Réttur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.