Réttur


Réttur - 01.01.1946, Side 60

Réttur - 01.01.1946, Side 60
60 RÉTTUR eru öil skilyrði þess að koma í veg fyrir nýja hemisstyrjöld ósegjanlega miklu hagstæðari en áður. En þegar að því hlut- verki er gengið er ærið nauðsynlegt að nema af reynslunni og athuga vandlega aðstæður þær, sem leiddu til annars heimsstríðsins, svo að vér villumst ekki af nýju af réttri leið, lieldur framkvæmum stefnu vora í fyllsta samræmi við breyttar aðstæður vorra daga. ÞaS sem sagan kennir oss Hvers vegna sigldi önnur heimsstyrjöldin í kjölfar þeirr- ar fyrstu? Svarið við þeirri spurningu er nægilega Ijóst, ef bent er á heimsvaldastefnuna, hinar skerptu liagrænu and- stæður milli aukinnar framleiðslugetu, hafta og einokunar er gátu af sér heimskreppuna miklu — og ef bent er á hinar harðnandi deilur um nýja skiptingu veraldar, þá liatrömu viðureign er skýrast kom í ljós í ógnunum hinna valdfíknu, landgráðugu heimsvelda, Þýzkalands, Ítalíu og Japans, gagn- vart nýlenduríkjunum, hinum vestrænu stórveldum. Allt sýndi þetta, hvernig eðlilegur samrekstur heimsveldanna leiðir til stríðs og var endurtekning þróunar þeirrar, sem á undan fór heimsstyrjöldinni fyrstu, aðeins á liærra stigi. En í öðru heimsstríðinu birtist nýtt atriði og einkenndi þann ófrið öðru fremur. Þetta nýja atriði samsvarar hinu nýja stigi veraldarsögunnar er hófst á allsherjarkreppu auð- valdsskipulagsins, fyrsta sigri verkalýðshreyfingarinnar og framkvæmd sósíalismans í Rússlandi, sókn verkalýðsstéttar- innar á dögum vaxandi þjóðfélagskreppu og örvæntingar- fullrar gagnsóknar af hendi liinnar ráðandi stéttar með fas- ismann að vopni — gagnsóknar er leggja skyldi að velli verka- lýðshreyfinguna, lýðræðið og Sovétríkin. Og þetta nýja at- riði réði mestu um þá sögulegu atburðarás er leiddi til ann- arrar heimsstyrjaldarinnar, og setti óafmáanlegt mark sitt á allan ófriðinn.

x

Réttur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.