Réttur - 01.01.1946, Blaðsíða 64
64
RÉTTUR
„Verrci en Miinchen"
í ræðu sem Griffin kardínáli flutti nýlega í Westminster
dómkirkju lýsti hann því hátíðlega yfir að heimsástandið
á vorum dögum sé „verra en á Munchen-tímanum“ og
„heimurinn í meiri voða staddur en fyrir ráðstefnuna í
Miinchen“. Það er alls eigi undariegt þótt honum og hans
nótum finnist ástandið „verra en Miinchen"; hið geðslega
samkomutag við Hitler og Mússólíni er ekki lengur og von-
irnar brostnar um stórfenglegakrossferðgegnSovétríkjunum.
Hitler og Mússólíni eru dauðir, Sovétríkin öflugri en nokkru
sinni fyrr, og þjóðir Evrópu rísa upp til þess að sópa á burt
hinum fasísku úrhrökum og þeirra vinum og taka völdin í
sínar hendur. Það er engin furða þótt hann og fylgifiskar
hans sýti og kveini. En raunar er það ekki þessi boðskapur,
sem hann ætlaði sér að flytja. Hann og þúsundir áróðrar-
manna af iíkum toga, og sumir þeirra ræðumenn brezka
útvarpsins, reyna af fremsta megni að umhverfa með öllu
minningunni um „Munchen" og „friðunina" þar, og gefa
í skyn að stefna, vinsamleg Ráðstjórnarríkjunum, sé „Mún-
chen“ og samkomulag við þau „friðun" eða „sefun“. Þetta
er fláttskapur, sem um munar. Aðall Múnclien-fundarins og
„sefunarinnar" var fjandskapur við Ráðstjórnarríkin og
stuðningur við fasismann. Og nú reyna falsarar þessir að
færa sér í nyt hatur almennings á stefnunni frá Múnchen
til þess að vekja upp fjandskapinn við Sovétríkin og stuðn-
ing við fasismann. En svo gagnsæ flærð og augljós blekk-
ir fáa.
Viðvörun Stalíns
Um vorið 1939 sýndi Stalín fram á afleiðingar þær, sem
hljótast myndu af stefnu heimsvaldasinnanna vestrænu, og
það er vert að minnast viðvörunar hans nú, þegar reynt er
að endurvekja þá sömu meginstefnu undir nýjum aðstæð-
um. Á 18. þingi Kommúnistaflokksins mælti Stalín: