Réttur - 01.01.1946, Blaðsíða 67
RÉTTUR
67
þess hversu mjög hún snertir afturhaldsviðleitni vorra tíma;
hún var afhjúpuð í tímaritinu Labour Montley í október
1941, þar sem rætt er um afturhaldsstefnu hinnar ráðandi
stéttar:
„Um leið og ráðamenn vorir reyna að varðveita brezku
herina óskerta og óvirka á tíma hættu og tvísýnu, þegar að-
gerðir þeirra gætu orðið hinum sameiginlega málstað að
mestu gagni, liafa þeir í hyggju að láta síðar til skarar skríða,
þá er hástigi framleiðslunnar er náð og báðar stríðsþjóðirnar
í austri eru að þrotum komnar, og tryggja þannig að engil-
saxnesku ríkin verði drottnar Evrópu og skipulagið gamla
haldist eftir hrun fasismans. Þannig verður Miinchenstefnan
nýja.“
Ráðagerð þessi var látin í ljós á barnalegan hátt og opin-
skáan af hinum flasmála ráðherra Moore-Barbizon á einka-
fundi þann 31. júlí 1941. Ráðherrann lýsti því yfir, að hann
væri „því feginn að engir fréttaritarar væru viðstaddir" og
kvaðst, samkvæmt óvefengdri frásögn formanns A. E. U. á
ráðstefnu verkalýðssambandsins . . . vona að herir Rússlands
og Þýzkalands gereyði hvor öðrurn, og á meðan því fari fram
ínunurn vér, heimsveldið brezka, efla svo mjög loftflota vorn
og aðra heri, að vér fáum úrslitavald í Evrópu, ef Rússland
og Þýzkaland uppræta hvort annað.
Moore-Barbizon, hinn saklausi maður, ljóstaði aðeins upp
áætlunum sér æðri valdamanna. Þegar uppljóstur þetta varð
og kostaði ráðherrann stöðu hans í ríkisstjórninni, sneri hið
opinbera reiði sinni gegn þeim, sem gerzt höfðu sekir urn
að skýra frá gerðurn einkafundar, en taldi ráðherranum það
til málsbóta, að hann hefði talað blaðalaust og raunar ein-
ungis hugsað upphátt. Þannig komst Gallacher að orði:
„Ráðherra flughergagnaframleiðslunnar hefur gefið þá
skýringu á ræðu sinni, að hún hafi verið mælt af rnunni
fram, hann hafi ekki hugsað um það, sem hann sagði. En
einmitt vegna þess, að hann hugsaði ekki unr það, sem hann
sagði, .kornu einlægustu hugsanir lrans. í ljós.“. -.....