Réttur - 01.06.1947, Page 1
RÉTTUR TlMARIT UM ÞJÓÐFÉLAGSMÁL
31. árgangur
2. hefti
1947
ísland og Ameríka
Afstaða íslands og Islendinga til Ameríku og þá sér-
staklega hins volduga auðvalds í Bandarikjum Norður-
Ameríku er orðið brennandi vandamál, sem hver ein-
asti Islendingur verður sjálfs sín vegna og þjóðar sinn-
ar að átta sig á til fullnustu. Svo þýðingarmikið sem
það var fyrir þjóð vora á undanförnum öldum að henni
skildist til fulls afstaða hennar til Danmerkur og kúg-
unarvalds danskra yfirstétta, svo hún gæti háð frelsis-
baráttuna gegn þeim, — þá veltur nú jafnvel enn meira
á því að Islendingar nútímans skilji til hlítar, hvað í
húfi er sakir þeirrar afstöðu, sem nú hefur skapast milli
íslands og Ameríku. Framtíð landsins og sjálf tilvera
þjóðarinnar getur oltið á því að núlifandi kynslóð verði
því vandaverki vaxin að varðveita frelsi þjóðarinnar
og tryggja friðhelgi hennar og öryggi — og á það reynir
nú þegar. Þess vegna þarf þjóðin að geta gengið að þessu
verki, án þess að láta hleypidóma eða bábiljur villa sig,
og í fullri vitund þess, hve afdrifaríkar þær ákvarðanir
eru, sem hún og valdamenn hennar taka. Ameríka hefur
breytzt mjög í augum Islendinga tvo til þrjá síðustu
mannsaldrana og það er nauðsynlegt að við rif jum sam-
skipti okkar við hið mikla vestræna meginland upp og
kynni okkar af því, til þess að hafa fastara undir fótum,
þegar við gerum upp sakirnar við það nú.
6