Réttur - 01.06.1947, Side 3
RÉTTUR
75
því fimmtungur fáliðaðs kynstofns
sé falinn með erlendri þjóð.
þá ber þess að geta, sem græddist:
Það gaf okkar metnaði flug
að fylgjast með landnemans framsókn
og frétta um Væringjans dug.
Þeir sýndu það svart á hvítu
með sönnun, er stendur gild,
að ætt vor stóð engum að baki
að atgerfi, drengskap og snilld.
Og kraftaskáld Klettafjalla
þar kvað sín Hávamál,
sem aldalangt munu óma
í Islendinga sál."
En hvers vegna var Ameríka á síðari hluta 19. aldar-
innar hið fyrir'heitna land frelsisins, athvarf hinna kúg-
uðu og framsæknu, sem flýðu áþján afturhaldsins í Ev-
rópu? Hvað var það, sem skóp þessi skilyrði frelsis og
þroska ?
Það voru ekki aðeins friálshuga og fátækir Islending-
ar, sem flúðu til Ameríku á síðari hluta 19. aldar, eða
voru jafnvel sendir burt.
*
Fyrir réttum hundrað árum síðan, í febrúar 1848 og
næstu mánuði þar á eftir, gerði alþýða allmargra landa
í Evrópu hinar sögulegu tilraunir^ sem hófust með
Febrúarbyltingunni í París til þess að skapa frjálst
þjóðfélag en hrinda kúgun aðals og afturhaldssamra auð-
drottna. Á næstu árum á eftir var þessi frelsishreyfing
brotin á bak aftur. En í Ameríku hafði byltingin og upp-
reisnin gegn nýlendukúgun Breta í lok 18. aldarinnar
lagt grundvöll að þjóðfélagi, sem aðall og einvaldskon-