Réttur - 01.06.1947, Blaðsíða 11
EÉTTUR
83
stað þess róttæka lýðræðis, sem einkenndi Bandaríkin,
meðan sjálfstæð bændastétt var eitt sterkasta þjóðfélags-
aflið og eignaðist í Abraham Lincoln táknrænan fulltrua
sinn, kom nú smámsaman eitt spilltasta stjórnarkerfi
heims, þar sem mútur og skipulögð stjórnmálaspilling
keyrðu svo úr hófi fram að eigi varð lengur aðgreint hvar
glæpsamlegir auðdrottnar á borð við Rockefeller, Morg-
an og Vanderbilt hættu og auðugir glæpamenn á borð við
A1 Capone og Vandergast tóku við að stjórna borgum og
ríkjum eða jafnvel ríkisstjórn og forsetunum sjálfum.
★
fslenzkt þjóðarbrot hafði flúið til Ameríku til að finna
frelsi úr ánauðinni heima og fundið það um tíma.
En beztu menn þjóðar vorrar sáu brátt hvert stefndi
þar. Vægðarlaus undirokun þess verkalýðs, er amerískt
auðvald hafði náð fullum tökum á, birti þeim 'hvers aðrir
mættu vænta, þegar þessum auðdrottnum yxi fiskur um
hrygg. Stephan G. sá þá þróun með skarpskyggni snill-
ingsins. Matthíasi Jochumssyni birtist hún í sýn spá-
mannsins. Skal síðar í þessari grein rætt nánar um þá
„uppreisnin" 3. nóv., en daginn áður fengu fjögur herskip Banda-
ríkjanna skipun um að hindra her Kolumbíustjórnar í því að kom-
ast til eiðisins. Gerðu þau það með því að setja sjóher á land 6. nóv.,
viðurkenndi Bandaríkjastjórn siðan stjórn uppreisnarmanna sem
stjórn hlns sjálfstæða lýðveldis Panama. 18. nóvember undirrituðu
svo þessir aðilar, Bandaríkjastjórn og stjórn Panama samning um
að Bandaríkin fengju 10 mílna breitt landsvæði yfir eiðið til ævar-
andi eignar fyrir 10 millj. dollara staðgreiðslu og 250 þús. dollara ár-
lega greiðslu. —- Hin löglega stjórn Kolombíu varð að láta sér nægja
að mótmæla ofbeldinu og landráninu, sem skeð hafði á 15 dögum. •—-
Panama er fjórðungi minna en Island. Þjóðernislegar ástæður til
sjálfstæðis þess gagnvart Kolombíu eru álíka og þær að gera
Reykjanesið óháð Islandi.