Réttur - 01.06.1947, Page 12
84
RÉTTUR
spámannlegu hvatningu þjóðskáldsins til íslendinga aust-
an hafs og vestan. En aðvörun Stephans G. skal ljúka
þessum kafla. Hann leggur hana í munn Pedro, konungi
Brasilíu, er hann hafði á alþjóðasýningunni í Fíladelfíu
1876 fyrst séð hina miklu tækni kolanámueigenda í Penn-
sylvaníu og síðan óskað eftir að sjá heimkynni og ásig-
komulag kolanámumanna og ógnað sú sjón. Kvæðinu um
þennan atburð, „Drottins-orðið“ lýkur svo:
„Don Pedro úr djúpri þögn
draumasjóna vakti sögn:
„Aldrei verði í voru ríki
vinnumennskan yðrar líki!
1 því hliði að engill stæði,
allra bæna lengst ég bæði,
landið mitt þeim voða verði.
Væri í nauð — með brugðnu sverði!“
★
Beztu mönnum Islands stóð nú ógn af þeirri ánauð,
er þeir sáu breiðast út, í álfunni þar, sem þeir höfðu
leitað frelsisins.
II.
„Mammonsríki Ameríku"*
„Þið Vesturlieims auðmenn, nieð gnægtir gulls og fjár,
sem glaðir hvílið mjúkt á rósabeði,
þið horfið á annarra hungur, nekt og tár
með hluttekningarlausu kuldageði.
* 1 kvæði Matth. Jochumssonar: „Til Vestur-Islendinga".