Réttur - 01.06.1947, Blaðsíða 15
RÉTTUR
87
„Sýnir höfundur þar með sönnum dæmum, hve satt
hann hafi frásagt í fyrri bók sinni, eða fyrirsagt um spill-
ingu og stjórnarsiðleysi Chicagóar og fleiri stcrbæja þar
í landi. Þar lýsti hann því með dæmafárri dirfsku, hversu
sérplægnin og auðvaldið halda. þar öllu frelsi í helgreip-
um. . . .“. „Rétt er þar allsengan að fá, allt er háð auð-
mönnunum: dagblöðin, atkvæðin, dómstólarnir, borgar-
ráðið, og 'hávaðinn af kirkjunum líka.“
Dregur hann nú upp nokkrar myndir af spillingunni og
þvínæst kaupkúgun auðmannanna. Lýsir hann auðfélagi
Pullmanns, járnbrautarvagnafélaginu alræmda og hinu
mikla verkfalli járnbrautarverkamanna gegn kaupkúgun
Pullmanns. Var það mesta verkfall, sem háð hafði verið
í Bandaríkjunum til þess tíma og hafði Eugene Debs,
verkalýðsleiðtoginn frægi, forustu þess og hlaut fangelsi
fyrir. Lýkur Matthías greininni með þessum orðum, er
hann hefur lýst ósigri verkamanna: „Er það haft eftir
Pullmann að þar mætti sjá, hvert vit það væri fátækling-
um, þótt margir væru, að bjóða byrginn auðvaldi Ame-
ríku“.
í 22. tbl. Stefnis birtist annar kafli ritgerðarinnar undir
fyrirsögninni: „Aðsig nýrra byltinga í Ameríku". 1 sama
blaði birtist kvæði Páls: „Auðvaldið".
Lýsir nú Matthías hinum ýmsu mönnum og hreyfing-
um, er beinist gegn yfirdrottnun auðmannanna. Farast
honum m. a. svo orð um prófessor Herron, einn af „þeim,
sem þruma gegn auðvaldinu, samkeppnis-ofsanum og
sjálfræðisstefnu aldarinnar, eða þeirri illu þrenningu, sem
á ensku er kölluð — ekki faðir, sonur og h. a., beldur
Píutocracy, Competition og Individualism.* Boðar hann
ógurleg Ragnarök fyrir dyrum, ef landið haldi áfram að
afkristnast og fylla mæli sinna. synda, vill að menn snúi
gjörsamlega um grundvallarskipulagi félagsins — líkt og
Allar leturbr. Matthíasar.