Réttur - 01.06.1947, Page 19
K É T T U R
91
firra þjóðirnar þessum ógnum væri sósíalisminn. Um
Stephan G. Stephansson, einn bezta brautryðjanda sósíal-
ismans á íslandi, er það kunnara en frá þurfi að segja.
En einnig á Matthías Jochumsson 'hefur fátækt Islands
og síðar misnotkun auðsins af auðmönnum Ameríku haft
þau áhrif að skapa samúð með sósíalismanum.
I ,,Stefni“ 10. des. 1896 ritar Matthías eftirmæli undir
fyrirsögninni „Skáldið William Morris.“ Þar segir hann
m. a. frá síðustu heimsókn sinni til skáldsins og samtali
þeirra 1885. Spyr Matthías þá m. a.:
,,Hvað vantar okkur Islendinga fyrst og fremst?
Heimastjórn ? Betri og fleiri atvinnuvegi? Auknar sam-
göngur? Item betri skóla og uppfræðslu?“
„Því ekki allt þetta og meira til, segir Morris, en ég
ætlaði að segja, allar þessar framfarir, þó sjálfsagðar séu
er ekki nema hálf leiðin til þeirrar siðmenningar, sem
framtíðin heimtar."
„Hvað heitir sú siðmenning?“ segi ég.
,,Hún heitir þjóðfélagsskapur byggður á sameign.“
(leturbr. Matth.).
Nú skyldi ég hvað 'hann fór og tók að ræskja mig eins
og væri ég heima.
,,Þér meinið“, segi ég, ,,socialismi“.
,,Já, og ekkert land undir sólunni, sagði Morris, ætti
hægra með að koma honum á en þið Islendingar."
(Síðan rekur Matthías samtal þeirra nokkru nánar og
lauk því með að Morris fékk honum bæklinga og blöð að
lesa. Síðan segir Matthías í greininni).
„En þegar ég á dögunum las blaðagrein eftir Guðmund
prest í Gufudal minntist ég hinna tilfærðu orða Morrisar;
blöðum hans týndi ég norður í Nýkastala, en orð hans eru
nú mín eigin skoðun, þótt ekki sé mitt færi og hafi aldrei
verið að rökstyðja hana. Spyrjum að leikslokum.“
(Síðan ræðir Matthías um hvað Morris hafi gert fyrir
Island og lýkur greininni með þessum orðum):