Réttur - 01.06.1947, Blaðsíða 36
108
RÉTT U R
um, sem kalla sig íslenzk, undir yfirumsjón dómsmálaráð-
herra, sem kennir sig við íslenzkt sjálfstæði.
Skal nú gefið nokkurt yfirlit yfir hvað unnið hefur
verið af hálfu erindreka hins ameríska auðvalds á því ári
sem liðið er:
1. Islenzk lög þverbrotin, réttindi Islendinga fótum troð-
in, Amerikanar á íslandi gerðir að sérréttindastétt:
herraþjóð.
Samkvæmt Keflavíkursamningnum* áttu Bandaríkih
að njóta, tollfrelsis af vörum þeim, er þau fluttu inn vegna
herflutninga sinna til Þýzkalands. Ekki af neinu öðru.
Sömuleiðis skyldu þeir Bandaríkjamenn vera tekjuskatts-
* 4. g'r. hans hljóðar svo: „Flugförum þeim, sem rekin eru af
Bandaríkjastjórn eða á hennar vegum í sambandi við framkvæmd
þeirrar skyldu, er Bandarikin hafa tekizt á hendur, að hafa á hendi
herstjórn og eftirlit i Þýzkalandi, skulu áfram heimil afnot af Kefla-
víkurflugvellinum. 1 þessu skyni skal stjórn Bandaríkjanna heimilt
að halda uppi á flugvellinum á eigin kostnað, beinlinis eða á eigin
ábyrgð þeirri starfsemi, þeim tækjum og þvi starfsliði, sem nauð-
synlegt kann að vera til slíkra afnota. Taka skal tillit til sérstöðu
slíkra flugfara og áhafna þeirra að því er varðar tolla, landvistar-
leyfi og önnur formsatriði .Engin lendingargjöld skal greiða af
slíkum flugförum."
9. gr. segir svo: „Eigi skal leggja neina tolla eða önnur gjöld á
efni það, útbúnað, nauðsynjar eða vörur, sem inn eru flutt til afnota
fyrir stjórn Bandaríkjanna eða umboðsmenn hennar samkvæmt
þessum samningi eða til afnota fyrir starfslið það, sem dvelur á
Islandi vegna starfa, sem leiðir af framkvæmd samnings þessa. Út-
flutningsgjalda skal heldur eigi krefjast af útflutningi téðra vara.
10. gr. segir: „Eigi skal leggja tekjuskatt á þær tekjur þess
starfsliðs Bandarikjanna, sem dvelur á Islandi við störf, er leiðir af
framkvæmd samnings þessa, er koma fré aðiljum utan Islands."