Réttur - 01.06.1947, Page 37
RÉTTUR
109
frjálsir, sem beinlínis ynnu að þessum störfum — og að-
eins að svo miklu leyti sem þeir unnu að þeim. Að öllu
öðru leyti skyldu auðvitað allir þessir Bandaríkjamenn
heyra undir íslenzk lög og öll þeirra starfsemi hér.
En hvernig hefur svo verið farið að ?
Bandaríkjamenn á Keflavíkurflugvellinum hafa verið
látnir brjóta a. m. k. eftirfarandi íslenzk lög:
1. ÖIl íslenzk tollalög. Þeir hafa flutt inn vörur sínar
allar án þess að greiða toll af þeim. Þegar þingmenn sósí-
alista afhjúpa þetta hneyksli á Alþingi í október 1947, er
farið að reyna að semja við Amerikanana. Ríkisstjórnin
virðist helzt biðja þá um að gera sér ekki of mikla skömm
með þessu framferði. En manndóm þorir hún ekki að
sýna — eða á hann ekki til. Auðvitað áttu Bandaríkja-
menn samkvæmt samningnum að greiða tolla af öllum
innflutningi sínum og fá svo endurgreitt það, sem þeir
áttu að hafa tollfrjálst. — En í stað þess að standa þarna
á rétti Islendinga ,gerist dómsmálaráðherra Islands,
Bjarni Benediktsson, beinlínis málflutningsmaður hinna
amerísku lögbrjóta og yfirgangsseggja og lýsti því að
lokum yfir á Alþingi ,er málstaður hans hafði beðið al-
geran ósigur í rökræðunum, að Bandaríkin hefðu „sjálf-
Sem sé, réttur Bandaríkjanna takmarkast eftir samningnum al-
gerlega af nauðsyn vegna framkvæmd herstjórnar í Þýzkalandi, er
reynslan hefur sýnt að ca. 10% af umferð Keflavíkurflugvallarins
stendur í sambandi við þá framkvæmd.
5. gr. samningsins segir: „Hvorki ákvæðin i næstu grein á und-
an né nein önnur ákvæði í samningi þessum raska fullveldisrétti né
úrslita yfirráðum lýðveldisins íslands varðandi umráð og rekstur
flugvallarins, mannvirkjagerð eða athafnir þar“.
Þessi grein tekur af öll tvímæli um hver skuli ráða Keflavíkur-
ílugvelli, og að íslenzk lög og fyrirmæli gildi um allt, sem ekki er
beinlínis framtekið skýrt og ótvírætt að undanþegið sé í samningn-
um.