Réttur - 01.06.1947, Blaðsíða 40
112
RÉTTUR
Bandaríkjanna, en með þeim eru þau raunverulega að
skapa sér nýlendu á Reykjanesskaga. Þeir, sem hættir
við að líta á þessi tollmál og önnur lögbrot hinna erlendu
yfirgangsmanna sem smáatriði, ættu að minnast þess að
1773 ætlaði brezkur auðhringur, Austur-indverska verzl-
unarfélagið, að flytja inn mjög ódýrt te til Boston, og
eyðileggja verzlunina fyrir amerísku kaupmönnunum!
Ameríkanar gerðu sér þá hægt um hönd, tóku te-ið og
hentu því í sjóinn. Þannig hófst byltingin í Ameríku og
frelsisstríð Bandaríkjamanna byrjaði tveim árum síðar.
— En það er engin von til þess að Bandaríkjamenn hlíf-
ist við að ganga á hagsmuni Islendinga og skirrist við að
haga sér svipað og Bretar gerðu þá í Bandaríkjunum,
nema þeim sé sagt í fullri alvöru: Hingað og ekki lengra.
Og Island er þó sjálfstætt lýðveldi, en ekki nýlenda eins
og Nýja England var þá.
2. Unnið að því að brjála dómgreind þjóðarinnar, fá
hana til þess að hætta að hugsa sem íslendingar og
fara að liugsa sem málalið amerískra auðdrottna.
Islenzka þjóðin hafði áratugum saman vanist því að
breyta í sjálfstæðisbaráttu sinni eftir kjörorði forustu-
mannsins mikla: Eigi víkja. Alltaf þegar á reið stóð
meirihluti þjóðarinnar sem einn maður um rétt sinn, þótt
það kostaði að rjúfa þing eftir þing og fá ekkert fram
sökum þess að konungsvaldið vildi ekki ganga að kröfum
Islendinga um fullan rétt.
Það þarf því meir en lítið til þess að spilla slíkri þjóð
svo siðferðilega eða brjála svo dómgreind 'hennar, að húr
standi ekki vörð um sjálfstæði sitt eða láti glepjast til
þess að fá öðrum forráð í hendur á landi sínu.
En þetta spillingarverk ætlar samt ameríska aftur-
haldið að vinna hér með tilstyrk erindreka sinna. I því
skyni er nú sett í gang hér samskonar múgsef junarstarf-